Þriðjungur ungra kvenna með óheilbrigt viðhorf gagnvart mat

Konur eru tvö­falt lík­legri til að hafa óheil­brigð við­horf gagn­vart mat heldur en karlar. Eftir því sem fólk er óánægð­ara með eigin lík­ams­þyngd eykur líkur á óheil­brigðu við­horfi gagn­vart eigin matar­æði. Þetta eru nið­ur­stöður nýrrar íslenskrar rann­sóknar.

Ungar konur í yfirþyngd eru líklegastar til að hafa óheilbrigt viðhorf til eigin mataræðis.
Ungar konur í yfir­þyngd eru lík­leg­astar til að hafa óheil­brigt við­horf til eigin matar­æðis. Mynd: EPA

Tvöfalt fleiri konur hafa óheil­brigt við­horf til matar­æðis heldur en karlar. 22 pró­sent kvenna hafa svokölluð hamlandi fæðu­við­horf, en ell­efu pró­sent karla. Óheil­brigð við­horf til matar eru algeng­ust meðal yngri kvenna á aldr­inum 18 til 29 ára, en 36 pró­sent þeirra falla undir skil­grein­ing­una, en aðeins 15 pró­sent karla á sama aldri. Tæplega 40 pró­sent kvenna sem eru ósáttar við eigin lík­ams­þyngd hafa óheil­brigt við­horf gagn­vart mat og 23 pró­sent karla. Þetta kemur fram í rann­sókn um við­horf Íslend­inga til eigin matar­æðis sem birt var í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins.

Líðan og við­horf fólks í tengslum við eigið matar­æði hefur lítið verið rann­sakað meðal full­orð­inna Íslend­inga. Fram kemur í ágripi rann­sókn­ar­innar að í flestum vest­rænum sam­fé­lögum sé mikil áhersla lögð á granna og stælta lík­ama en á sama tíma þyngj­ast alltaf fleiri og fleiri. Slíkt getur haft slæm sál­fræði­leg áhrif, valdið kvíða og stuðlað að hamlandi við­horfum í tengslum við mat og fæðu­val. Ein ástæðan fyrir óheil­brigðu við­horfi gagn­vart fæðu gæti verið tengd fyrri reynslu af megr­un­ar­kúrum.

Þær Ólöf Dröfn Sig­ur­björns­dóttir lýð­heilsu­fræð­ingur, Jóhanna Eyrún Torfa­dóttir, nær­ingar- og lýð­heilsu­fræð­ingur, Anna Sigríður Ólafs­dóttir nær­ing­ar­fræð­ingur og Laufey Stein­gríms­dóttir nær­ing­ar­fræð­ingur gerðu rann­sókn­ina og var hún birt í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins.

Fram kemur í blað­inu að end­ur­tekin megrun geti orðið að við­var­andi ástandi og leitt til óheil­brigðs við­horfs til eigin matar­æðis. Slíkt getur valdið kvíða og van­líðan ásamt átrösk­unum og öðrum alvar­legum kvillum. Eins og áður segir eru konur í yfir­þyngd eru tvö­falt lik­legri til að hafa óheil­brigð við­horf gagn­vart mat heldur en konur í kjör­þyngd. Hins vegar er hættan á því þre­föld meðal karla í yfir­þyngd sam­an­borið við karla í kjör­þyngd.

Rann­sóknin byggir á könnun Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins árið 2007 sem var lögð fyrir 5.861 ein­stak­ling á aldr­inum 18 til 79 ára. Í grein­inni er vitnað í skýrslu frá árinu 2012 þar sem fram kom að tæp 42 pró­sent kvenna hafi reynt að létta sig og tæp átta pró­sent á aldri­enum 18 til 44 ára hafi verið með átröskun á ein­hverjum tíma­punkti.

Í þeirri rann­sókn kom fram að helm­ingur kvenna er ósáttur við eigin lík­ams­þyngd og 35 pró­sent karla. Um 30 pró­sent beggja kynja fær sam­visku­bit þegar borðuð eru sæt­indi og meira en helm­ingur telur sig þurfa að hafa stjórn á því hvað er borðað.

Samkvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar er sú ályktun dregin að hamlandi við­horf til eigin matar­æðis eru algeng­ari meðal kvenna en karla. Eftir því sem fólk er yngra, óánægð­ara með eigin lík­ams­þyngd og ofþyngd sýnir meiri tengls við hamlandi fæðu­við­horf hjá báðum kynjum. Há lík­ams­þyngd, óánægja með eigin lík­ams­þyngd, ungur aldur og það að vera kona eykur lík­urnar á hamlandi fæðu­við­horfum. Þetta end­ur­speglar nið­ur­stöður sam­bæri­legra rann­sókna sem gerðar hafa verið erlendis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár