„Að vera í sóttkví er eins og að vera í fangelsi“

Ellen DeGeneres sagði brand­ara á dög­unum þar sem hún líkti sótt­kví sinni við það að vera í fang­elsi að því leyti að hún hefði verið í sömu föt­unum í 10 daga og að þeir einu sem væru í kringum hana væru sam­kyn­hneigðir. Brand­ar­inn hefur farið mis­vel í fólk.

Ellen DeGeneres
Ellen DeGeneres Mynd: EPA

Banda­ríska sjón­varps­konan, Ellen DeGeneres, hefur heldur betur vakið athygli vestan hafs fyrir brand­ara sem hún sagði í þætti sínum á dög­unum sem hún birtir frá heim­ili sínu. Hún er eins og fjöl­margir aðrir landar hennar í sótt­kví en kór­ónu­veiran hefur herjað af miklum krafti á Banda­ríkin und­an­farnar vikur.

Ellen sagði að það að vera í sótt­kví væri eins og að vera í fang­elsi. „Það er aðal­lega vegna þess að ég hef verið í sömu föt­unum í tíu daga og allir hér inni eru sam­kyn­hneigðir,“ sagði hún en Ellen býr með eig­in­konu sinni, leikkon­unni Portiu de Rossi, í glæsi­villu í Kali­forníu.

[adspot]

Mike Sington, einn stjórn­enda NBCUniversal, tísti um brand­ara Ellenar á Twitter og má með sanni segja að hann hafi fengið mis­jöfn við­brögð. Mynd­bandið hefur verið tekið af Youtube-reikn­ingi Ellenar síðan gagn­rýnin komst í hámæli í gær.

Gagn­rýnin gekk meðal ann­ars út á það að 27 millj­óna doll­ara villan sem hún býr í svip­aði nú ekki beint til fang­elsis. Umræðan á sam­fé­lags­miðlum beind­ist jafn­framt að þeim starfs­mönnum í Banda­ríkj­unum sem ekki hafa tæki­færi til að vera heima í sótt­kví á COVID-tímum og þurfa að vinna – og setja sig þar af leið­andi í hættu. 

Ellen hefur á sam­fé­lags­miðlum reynt að vera jákvæð í far­aldr­inum en í færslu á Instagram fyrir um þremur vikum sagði hún að þeir tímar sem nú standa yfir væru krefj­andi en að mik­il­vægt væri að muna að allir væru í þessu saman. „Deilið ást, verið almenni­leg og haldið áfram að synda,“ skrif­aði hún.

Fólkið á lægstu laununum í mestu hættunni

Starfs­menn í skyndi­bita­iðn­að­inum hafa verið sagðir ómissandi í far­aldr­inum í Banda­ríkj­unum. Það hefur þó ekki linað áhyggjur þeirra og ótta um heils­una. Fram hefur komið í fréttum að starfs­menn skyndi­bita­keðj­anna McDonald's, Taco Bell og Jack in the Box hafa haft miklar áhyggjur af heilsu sinni vegna óvið­un­andi ráð­staf­ana varð­andi sótt­hreinsun og annað.

„Ég nán­ast baða mig í spritti,“ sagði starfs­maður McDonald's í sam­tali við vef­miðil Business Insider í lok mars. „Ég ótt­ast að ég sé eins og her­maður í fremstu víg­línu, dæmd til að vera fyrst í röð­inni til að fara. Vegna osta­ham­borg­ara.“

Fram kemur í frétt Business Insider að skyndi­bita­keðjur vinni nú að því að bæta örygg­is­ráð­staf­anir en mörgum starfs­mönnum þeirra líði þó þannig að þeir séu enn í hættu. Fæstir hafi efni á því að taka sér leyfi frá vinnu en þeir hafa ekki rétt á því nema að þeir finni fyrir ein­kennum kór­ónu­veirunnar.

Enn fremur segj­ast starfs­menn­irnir þurfa að eiga við dóna­lega við­skipta­vini, öryggis­ótta og í erf­ið­leikum með að halda uppi fjar­lægð milli fólks. Mörgum líði þannig að þeir séu neyddir til að fórna eigin heilsu og heilsu fjöl­skyldu þeirra fyrir lág­marks­laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár