Endurskoðun á veiðigjöldum getur leitt til hækkunar eða lækkunar

Kristján Þór Júl­í­us­son vill end­ur­skoða álagn­ingu veiði­gjalds og segir að sú breyt­ing getið ýmist leitt til hækk­unar eða lækk­unar á því. Kristján telur sig ekki van­hæfan til að ákvarða um veiði­gjöld vegna tengsla sinna við Samherja.

Kristján Þór Júliusson sést hér með Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins.
Kristján Þór Júli­us­son sést hér með Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, segir að veiði­gjald sem lagt er á útgerðir lands­ins þurfi að byggja á nýj­ustu upp­lýs­ingum um afkomu þeirra og að það þurfi að taka í meira mæli mið af afkomu ein­stakra útgerð­ar­flokka. Hann telur nauð­syn­legt að end­ur­skoða núver­andi fyr­ir­komu­lag veiði­gjalda. Nið­ur­staða þeirrar end­ur­skoð­unar kann, að sögn Krist­jáns, að leiða til breyt­inga á álagn­ingu veiði­gjalda ýmist til hækk­unar eða lækk­unar. Áætlað er að veiði­gjöld verði um ell­efu millj­arðar króna á yfir­stand­andi fisk­veiði­ári.
[links]Kristján sagði í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar í síð­ustu viku að vegna tengsla sinna við Samherja muni hann hugs­an­lega ekki koma að ákvarð­ana­töku sem teng­ist rekstri sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins beint, en Kristján er fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Samherja auk þess sem hann hefur tví­vegis farið túra á skipum fyr­ir­tæk­is­ins í þing­hléum.
Samherji er stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins og greiddi sam­tals 3,1 millj­arð króna í tekju­skatt og veiði­gjöld á árinu 2016. Aðspurður um hvort ákvörðun um breyt­ingar á veiði­gjöldum telj­ist tengj­ast rekstri Samherja beint segir Kristján svo ekki vera. Álagning veiði­gjalda sé almenn aðgerð sem snerti öll útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins. Hann telur sig því ekki vera van­hæfan til að koma að ákvörðun veiði­gjalda vegna tengsla sinna við Samherja.

Segir að endurskoða þurfi álagningu veiðigjalds

Í við­tali við Við­skipta­Mogg­ann í síð­ustu viku sagði Kristján að ljóst sé að end­ur­skoða þurfi álagn­ingu veiði­gjalds­ins. Vert væri að skoða hvaða leiðir hægt væri að fara til að „ein­falda gjald­tök­una um leið og við fær­um for­send­ur henn­ar nær okk­ur í tíma og lát­um hana spegla bet­ur af­komu ein­stakra út­gerð­ar­flokka.“

[adspot]Kjarninn sendi Krist­jáni fyr­ir­spurn vegna þessa og spurði hvað felist í þeirri ein­földun og því að láta gjald­tök­una end­ur­spegla betur afkomu ein­stakra útgerð­ar­flokka. Kristján segir að almennt telji hann að það sé allra hagur að hafa ein­falt skatt­kerfi og gegn­sætt þar sem álagn­ing byggir á bestu fáan­legu upp­lýs­ingum á hverjum tíma. „Gjaldið þarf að byggja á nýj­ustu upp­lýs­ingum um afkomu og jafn­framt þarf í meira mæli að taka mið að afkomu ein­stakra útgerða­flokka.“

Aðspurður um hvort til greina komi að lækka veiði­gjöld segir Kristján að hann sé þeirrar skoð­unar að það þurfi að end­ur­skoða núver­andi fyr­ir­komu­lag til að tryggja að það end­ur­spegli betur mis­mun­andi verð­mæti og afkomu­mögu­leika þeirra sem innan atvinnu­grein­ar­innar starfa. „Nið­ur­staða slíkrar end­ur­skoð­unar kann að leiða til breyt­inga á álagn­ingu veiði­gjalda ýmist til hækk­unar eða lækk­unar.“

Verða ellefu milljarðar

Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SFS, sagði í sjáv­ar­út­vegs­blaði 200 mílna og Morg­un­blaðs­ins, sem birt­ist 17. nóv­em­ber, að veiði­gjöld séu orðin „tals­verð byrði“ fyrir sjáv­ar­út­veg. Kristján seg­ist hafa heyrt þá umræðu og það hafi meðal ann­ars verið ákveðið af fyrri rík­is­stjórn að kanna sér­stak­lega afkomu ein­stakra útgerð­ar­flokka, meðal ann­ars með hlið­sjón af veiði­gjöldum. „Ég hef verið upp­lýstur um að von sé á nið­ur­stöðu þeirrar athug­unar á næst­unni.“

Hagnaður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja í fyrra sló öll fyrri met. Hann var 55 millj­arðar króna og aðeins hærri en 2013, þegar hann var mjög sam­bæri­legur. Sam­an­lagt hafa íslensku sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin hagn­ast um 342 millj­arða króna eftir hrun. Bein opin­ber gjöld sem geir­inn greiddi í fyrra voru 19,1 millj­arðar króna og lækk­uðu um 3,5 millj­arða króna á milli ára. Veiði­gjöldin ein og sér voru 6,4 millj­arðar króna á síð­asta ári og lækk­uðu um 1,1 millj­arð króna frá árinu á undan. Fyrir liggur að þau eigi að hækka vegna árs­ins í ár í um ell­efu millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár