Vill setja 90-98 prósent skatt á bónusgreiðslur

Þorsteinn Sæmundsson sést hér á milli Agnesar Sigurðardóttur biskups og Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands.
Þor­steinn Sæmunds­son sést hér á milli Agnesar Sig­urð­ar­dóttur bisk­ups og Vigdísar Finn­boga­dóttur, fyrr­ver­andi for­seta Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, leggur til að lagður verði 90-98 pró­sent skattur á bón­us­greiðslur hið fyrsta. Helgi Hjörvar, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, lagði einnig til háan skatt á slíkar. Þetta kom fram í umræðum um bón­us­greiðslur á Alþingi í dag.

Þar sagði Þor­steinn að skatt­ur­inn ætti að leggj­ast á bón­us­greiðsl­urnar til þess að „við getum tryggt að þessi fram­lög slita­bú­anna sem eru að koma til Íslands lendi ekki í fjög­urra til fimm manna hóp heldur hjá þjóð­inni allri.“

Ástæða umræð­unnar eru fréttir í DV und­an­farna daga um áætl­anir eign­ar­halds­fé­laga sem tóku við eignum slita­búa Kaup­þings og gamla Lands­bank­ans um að greiða starfs­mönnum sínum him­in­háar bón­us­greiðslur fyrir að koma eign­unum í verð.

Fjórir má hundruð milljóna hver

Í DV í dag var greint frá því að fjórir stjórn­endur LBI, eign­ar­halds­fé­lags utan um eignir gamla Lands­bank­ans, geti fengið sam­tals mörg hund­ruð millj­ónir króna í bón­us­greiðslur hver um sig á kom­andi árum ef vel gengur að koma eignum félags­ins í verð. Á meðal fjór­menn­ing­anna eru Kol­beinn Árna­son, sem hætti sem fram­kvæmda­stjóri hjá Sam­tökum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) fyrr á þessu ári og sett­ist í stjórn LBI. Þar er líka Ársæll Haf­steins­son, fram­kvæmda­stjóri LBI. Hinir tveir menn­irnir sem fá slíka bónusa eru Ric­hard Katz, stjórn­ar­for­maður LBI, og Christ­ian And­ers Dig­emose, danskur ráð­gjafi og lög­maður sem starfað hefur fyrir kröfu­hafa föllnu íslensku bank­anna á und­an­förnum árum.

Gangi til­teknar for­sendur eftir sem bónus­kerfið grund­vall­ist á gætu heild­ar­bón­us­greiðslur til þess­ara fjög­urra æðstu stjórn­enda félags­ins hæg­lega hlaupið sam­tals á millj­örðum króna.

1,5 millj­arður hjá Kaup­þingi

Greint var frá því í DV í síð­ustu viku að um tutt­ugu starfs­­­menn eign­­­ar­halds­­­­­fé­lags­ins Kaup­­­þings, sem tók við hlut­verki slita­­­bús Kaup­­­þings að loknum nauða­­­samn­ingum bank­ans í lok árs í fyrra, geta fengið sam­tals tæp­­­lega 1.500 millj­­­ónir króna í bón­us­greiðslur ef mark­mið um hámörkum á virði óseldra eigna félags­­­ins næst. Bón­us­greiðsl­­­urnar eiga að greið­­­ast út ekki síðar en í lok apríl 2018. Langstærsta óselda eign Kaup­­­þings er 87 pró­­­sent hlutur í Arion banka, við­­­skipta­­­banka sem starfar að mestu á íslenskum mark­aði og var end­­­ur­reistur af íslenska rík­­­inu með íslenskum inn­­­­­stæð­­­um.

Bón­us­greiðsl­urnar sem stjórn­endur LBI geta fengið ef vel gengur að selja eignir félags­ins eru mun hærri en þær sem starfs­menn Kaup­þings eiga von á að fá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár