Stórum hópum og fjölskyldum með eldri börn finnst skimunargjaldið hátt

Í júní og júlí bjóða níu flug­fé­lög ferðir milli Íslands og um 20 áfanga­staða, aðal­lega í Evrópu. Icelandair seg­ist finna fyrir miklum áhuga á ferðum til Íslands en að Íslend­ingar ætli frekar út í haust eða vetur.

Icelandair ætlar að fjölga áfangastöðum um næstu mánaðamót.
Icelandair ætlar að fjölga áfanga­stöðum um næstu mán­aða­mót. Mynd: Icelandair

Icelandair finnur fyrir miklum áhuga á Íslandi á öllum sínum mörk­uðum eftir að skimun á landa­mær­unum hófst. Áhuginn helst að miklu leyti í hendur við hvernig gengið hefur að takast á við COVID-19 í við­kom­andi landi. „Almennt sýna ferða­menn skimun­ar­ferl­inu skiln­ing og auð­velt að útskýra að það sé í sam­ræmi við aðgerðir Íslands í bar­átt­unni við COVID og að þetta skapi öryggi á ferða­lag­inu,“ segir Ásdís Ýr Pét­urs­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Icelandair. „Hins vegar finnum við að sér­stak­lega stærri hópum og fjöl­skyldum með eldri börn þykir þetta hátt gjald. Þá hefur þetta í ein­hverjum til­fellum leitt til afbók­ana á eldri bók­unum fyrir sum­arið og þess að hætt er við að bóka Íslands­heim­sókn.“

Skimun við landa­mæri Íslands hófst 15. júní og er far­þegum að kostn­að­ar­lausu. Þann 1. júlí þarf að greiða 15 þús­und krónur fyrir skimun­ina. Börn fædd árið 2005 eða síðar þurfa ekki að fara í sýna­töku.

Ásdís Ýr segir að þónokkuð sé um bók­anir bæði frá Þýska­landi og Danmörku en að þær séu færri frá Bret­landi og Frakk­landi. „Við finnum einnig fyrir áhuga í Banda­ríkj­unum og margir sem bíða eftir því að landa­mæri Banda­ríkj­anna og ytri landa­mæri Schengen verði opnuð fyrir ferða­mönnum. Þetta er þó auð­vitað ekk­ert í lík­ingu við síð­ustu ár og ljóst að færri hyggja á ferða­lög, að minnsta kosti til skamms tíma.“

Í kjöl­far COVID og lok­unar á landa­mærum víða um heim varð Icelandair að upp­færa flug­á­ætlun sína aðeins viku fram í tím­ann þar sem óvissan var mikil. En í júní og einnig í júlí verður reynt að upp­færa áætl­un­ina tvær vikur fram í tím­ann að sögn Ásdísar. „Við erum þó stöðugt að end­ur­meta flug­á­ætl­un­ina enda hlut­irnir að breyt­ast hratt dag frá degi.“´

Íslendingar heimsækja nágrannaríkin

Milli 15 og 30. júní flýgur Icelandair til 11 áfanga­staða, um 5-6 brott­farir á dag. Þeir eru: Kaup­manna­höfn, Stokk­hólmur, Ósló, Berlín, Frank­furt, Munchen, Amster­dam, Zurich og París. Félagið heldur svo uppi lág­marks flug­sam­göngum til London og Boston í sam­starfi við íslenska ríkið en það eru tvö flug á viku á hvorn stað. „Við gerum ráð fyrir að bæta þónokkrum áfanga­stöðum við frá og með 1. júlí en það er háð því hvenær landa­mæri Banda­ríkj­anna og ytri landa­mæri Schengen verði opnuð fyrir ferða­menn,“ segir Ásdís Ýr.

Íslend­ingar eru farnir að bóka sér flug til útlanda en flestir lengra fram í tím­ann, í haust og vetur. „En það er hópur af fólki sem er til­bú­inn að ferð­ast strax í sumar og þá er það að mestu til nágranna­landa okkar, Norð­ur­land­anna og til Þýska­lands.“

Ásdís segir Icelandair bjart­sýnt á að ferða­lög haldi áfram að auk­ist hægt og örugg­lega á næstu miss­erum.

Á upp­lýs­inga­síðu ISAVIA má finna yfir­lit yfir alla áfanga­staði og flug­fé­lög sem fljúga til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli í júní og júlí. Á þeim lista er nú að finna níu flug­fé­lög, að Icelandair með­töldu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár