„Umgangist einungis þá sem þið búið með“

Stefan Löfven for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar brýndi fyrir lands­mönnum að sýna meiri ábyrgð í glímunni við veiruna í ávarpi í gær. Átta manna sam­komu­tak­mark­anir taka gildi víða í land­inu á morgun, en þó ekki alls staðar.

Stefan Löfven forsætisráðherra Svíþjóðar.
Stefan Löfven for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar. Mynd: EPA

Stefan Löfven for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar var ómyrkur í máli er hann ávarp­aði þjóð sína í sjón­varpi í gær­kvöldi um stöðu kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins í land­inu. „Umgang­ist ein­ungis þá sem þið búið með. Ef þið búið ein, veljið einn eða að hámarki tvo vini til þess að hitta. En haldið áfram að virða fjar­lægð­ar­mörk,“ sagði Löfven meðal ann­ars í ávarpi sínu.

Hann hvatti lands­menn til að sýna ábyrgð í verki og slá öllu á frest sem ekki sem ekki þyrfti nauð­syn­lega að gera. Það hvernig lands­menn myndu bregð­ast við til­mælum nú myndi hafa afleið­ingar síðar, meðal ann­ars á hvernig jóla­haldið yrði. Og á það hverjir yrðu ennþá lif­andi um jólin.

„Þetta hljómar kannski harka­lega. Ef til vill hrotta­lega. En raun­veru­leik­inn er einmitt svona harka­legur og hrotta­legur,“ sagði Löfven í ávarpi sínu, sem var hans annað sjón­varps­ávarp um kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn á árinu. Slík ávörp for­sæt­is­ráð­herra eru afar fátíð, en fyrir veiru­far­ald­ur­inn höfðu sænskir for­sæt­is­ráð­herrar ein­ungis tví­vegis ávarpað þjóð­ina utan hefð­bund­inna ávarpa á hátíð­is­dögum.

Far­ald­ur­inn hefur verið í örum vexti í Svíþjóð und­an­farnar vikur og í síð­ustu viku brugð­ust yfir­völd við með því að lækka fjölda þeirra sem mættu koma saman á opin­berum fjölda­sam­komum niður í átta manns. Þessar reglur taka form­lega gildi á morgun, 24. nóv­em­ber.

Sænsku sýsl­urnar, sem hafa mikið um það að segja hvernig tak­mörk­unum er fram­fylgt innan þeirra sýslu­marka, hafa allar í sam­ein­ingu ákveðið að taka upp átta manna sam­komu­tak­mark­anir á við­burðum þar sem gestir eru sitj­andi, eins og til dæmis á íþrótta­við­burðum. Eina und­an­tekn­ingin eru jarð­ar­farir, en í þær mega 20 manns mæta að hámarki.

Stjórnarskráin skóp „sænsku leiðina“

Þessar reglur gilda þó ekki um starf­semi fyr­ir­tækja né einka­við­burði nema þeir séu leyf­is­skyldir hjá opin­berum aðilum. Versl­anir, lík­ams­rækt­ar­stöðvar og veit­inga­staðir þurfa þannig ekki að fara eftir þessum stífu fjölda­tak­mörk­unum, þrátt fyrir að mælst sé til þess að allir sýni ábyrgð og fari ekki á slíka staði.

Það er sænska leiðin, að segja fólki til í stað þess að beita vald­boði sem við liggja refs­ingar eins og flestar aðrar þjóðir Evrópu. Ástæðan er sænska stjórn­ar­skráin. Hún er í reynd lyk­ill­inn að sænsku leið­inni og hefur verið það allt frá því að veiran fór að láta á sér kræla. Hún bindur hendur sænskra yfir­valda í raun að nokkru leyti í glímunni við veiruna.

Þetta hefur ekki verið fyr­ir­ferða­mikið í frétta­flutn­ingi af við­brögðum Svía, hvorki í alþjóða­press­unni, sem hefur ýmist lof­samað eða lastað sænsku leið­ina, né heldur inn­an­lands í Svíþjóð, þrátt fyrir að hlut­verk stjórn­ar­skrár­innar hafi reyndar verið útskýrt í innslagi sænska sjón­varps­ins SVT fyrir skemmstu.

Í stuttu máli sagt þá er eng­inn grund­völlur í stjórn­ar­skrá lands­ins fyrir nokkru sem kall­ast gæti „lockdown“ nema Svíþjóð sé í stríði. Sænska stjórn­ar­skráin tryggir nefni­lega öllum sænskum rík­is­borg­urum frjálsa för innan landamæra kon­ungs­rík­is­ins og kemur sömu­leiðis í veg fyrir að stjórn­völd lýsi yfir neyð­ar­stigi inn­an­lands nema stríðs­á­stand ríki.

Nánar má fræð­ast um þetta í grein sem Lars Jonung, pró­fessor í hag­fræði við Háskól­ann í Lundi, skrif­aði um hlut­verk stjórn­ar­skrár­innar í við­brögðum Svía við veirunni í vefritið VoxEU fyrr á árinu.

Smit eða grunur um smit á elli- eða hjúkrunarheimilum í 93 af 290 sveitarfélögum

Fjöldi smita hefur sem áður segir auk­ist hratt í Svíþjóð und­an­farnar vikur og dauðs­föllum hefur einnig fjölgað, þrátt fyrir að staðan sé ekki orðin neitt í lík­ingu við það þegar fyrsta bylgjan reið yfir með til­liti til sjúkra­húsinn­lagna og dauðs­falla. Þá var staðan víða þung á hjúkr­un­ar­heim­ilum og illa gekk að koma í veg fyrir að smit bær­ust til við­kvæmra hópa sem þar voru.

Sænska útvarpið SR segir frá því í dag að víða í Svíþjóð, eða í alls 93 af 290 sveit­ar­fé­lögum lands­ins, séu nú ýmist stað­fest COVID-19 smit eða grunur um smit inni á elli- eða hjúkr­un­ar­heim­ilum sem eru rekin af hinu opin­bera. Átta sveit­ar­fé­lög segja stöð­una alvar­lega og ekki undir stjórn, en 46 sveit­ar­fé­lög segja stöð­una alvar­lega þrátt fyrir að þau hafi stjórn á útbreiðslu smit­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár