722 samtals sagt upp hjá tveimur hótelum og Bláa lóninu

Samtals var 722 starfs­mönnum sagt upp í þremur stærstu hóp­upp­sögnum maí­mán­aðar; hjá Bláa lón­inu, Flug­leiða­hót­eli og Íslands­hót­eli. Vinnu­mála­stofnun bár­ust 23 til­kynn­ingar um hóp­upp­sagnir í maí.

Fosshótel Hellnar er hluti af Íslandshótelum.
Foss­hótel Hellnar er hluti af Íslands­hót­elum. Mynd: Af vef Íslandshótela

Alls bár­ust 23 til­kynn­ingar um hóp­upp­sagnir Vinnu­mála­stofnun í maí þar sem 1.323 starfs­mönnum var sagt upp störfum. Bætist það ofan á hóp­upp­sagnir mars- og apr­íl­mán­aðar þar sem yfir 80 fyr­ir­tæki sögðu upp nærri 5.900 manns. Í heild eru yfir 7.000 manns að missa vinnu vegna hóp­upp­sagna frá maí og fram í sept­em­ber.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Vinnu­mála­stofnun.

Stærsta ein­staka hóp­upp­sögn maí­mán­aðar er frá Bláa lón­inu þar sem 401 var sagt upp og því næst Flug­leiða­hótel þar sem 162 var sagt upp og loks Íslands­hótel þar sem 159 misstu vinn­una. Isavia sagði 100 manns upp en þar var öllum boðin end­ur­ráðn­ing á öðrum kjörum.

Þetta eru þriðju mán­aða­mótin í röð þar sem upp­sagnir eru hjá Íslands­hót­elum og alls hefur 515 starfs­mönnum verið sagt upp að því er fram kemur í frétt DV um málið. Þar er haft eftir Davíð Torfa Ólafs­syni, fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, að þau hótel sem verði opin í sumar verði að stærstu leyti mönnuð starfs­fólki á upp­sagn­ar­fresti.

[links]Flestar upp­sagn­irnar sem Vinnu­mála­stofnun var til­kynnt um í maí voru úr ferða­tengdri starf­semi; tíu í ýmiss konar ferða­þjón­ustu þar sem sagt var upp 720 manns, fjórar voru úr gisti­þjón­ustu þar sem 400 var sagt upp störfum, ein úr þjón­ustu­starf­semi þar sem 53 manns var sagt upp, ein úr versl­un­ar­starf­semi þar sem 39 manns var sagt upp og tvær úr veit­inga­þjón­ustu þar sem 30 var sagt upp. Einnig voru tvær hóp­upp­sagnir úr upp­lýs­inga­tækni og útgáfu­starf­semi þar sem 26 manns var sagt upp, ein úr iðn­aði þar sem 24 var sagt upp, ein í fisk­veiðum þar sem 21 starfs­manni var sagt upp og ein í far­þega­flutn­ingum þar sem 10 manns var sagt upp.

Upp­sagn­ar­frestur þeirra sem sagt er upp í þeim hóp­upp­sögnum sem nú eru að ber­ast Vinnu­mála­stofnun er í flestum til­vikum þrír mán­uðir þannig að stofn­unin áætlar að þann 1. sept­em­ber muni lang flestir þeirra sem sagt var upp nú í maí ljúka sínum upp­sagn­ar­fresti. Nokkrir missa vinn­una í júní og júlí.

Á heild­ina litið eru yfir 7.000 manns að missa vinnu vegna hóp­upp­sagna frá maí og fram í sept­em­ber. „Í ein­hverjum til­vikum má gera ráð fyrir að fólk verði end­ur­ráðið áður en ráðn­ing­ar­sam­bandi lýkur, í ein­hverjum til­vikum er starfs­mönnum boðin end­ur­ráðn­ing á öðrum kjörum, ein­hverjir munu trú­lega hafa fundið sér vinnu, hyggja á nám eða koma ekki inn á atvinnu­leys­is­skrá af öðrum ástæðum,“ segir í til­kynn­ingu Vinnu­mála­stofn­unar. „Þó verður að gera ráð fyrir að stærstur hluti þeirra muni koma inn á atvinnu­leys­is­skrá þegar líður á sum­arið þó það ráð­ist að ein­hverju marki af því hvort erlendir ferða­menn muni koma til lands­ins í ein­hverjum mæli þegar líður á sum­arið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár