Bláa lónið segir upp 403 starfsmönnum

Bláa lónið ætlar að segja upp 403 starfs­mönnum um mán­aða­mótin. Er þetta gert til að „bregð­ast við miklum sam­drætti og óvissu í ferða­þjón­ustu“.

Bláa lónið hefur gripið til aðgerða til að „bregð­ast við miklum sam­drætti og óvissu í ferða­þjón­ustu næstu miss­eri. Nú er orðið ljóst að áhrifin af Covid-19 eru miklu umfangs­meiri og lang­vinn­ari en vænt­ingar voru um“.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu. Í henni kemur fram að 403 starfs­mönnum verði sagt upp störfum frá og með næstu mán­aða­mótum. Bláa lónið von­ast hins vegar til að geta ráðið það starfs­fólk sem sagt verður upp aftur til starfa þegar aðstæður breyt­ast til hins betra.

Laun þeirra starfs­manna sem ekki fá upp­sögn verða skert, mest hjá for­stjóra og stjórn um 30 pró­sent, 25 pró­sent hjá fram­kvæmda­stjórn og minna hjá öðrum.

„Þrátt fyrir mikla óvissu hefur verið ákveðið að opna allar starfs­stöðvar Bláa lóns­ins á ný þann 19. júní næst­kom­andi, eftir tæp­lega þriggja mán­aða lokun en á því tíma­bili hefur fyr­ir­tækið verið nær tekju­laust,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Markmið þeirra aðgerða sem Bláa Lónið hefur nú gripið til er að gera fyr­ir­tæk­inu kleift að kom­ast í gegnum þá óvissu­tíma sem framundan eru. „Bláa lónið, sem leið­andi fyr­ir­tæki í íslenskri ferða­þjón­ustu, ætlar sér að taka þátt í við­spyrnu grein­ar­innar af fullum krafti þegar birta tekur að nýju.“

Bláa lónið nýtti sér úrræði stjórn­valda vegna COVID-19 og setti rúm­lega fjögur hund­ruð manns á hluta­bætur í mars og apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár