Allir með búsetu á Íslandi sem koma til landsins í sóttkví

Sótt­varna­læknir hefur ákveðið að útvíkka enn frekar háá­hættu­svæðin vegna COVID-19.

Sótt­varna­læknir hefur ákveðið að útvíkka enn frekar háá­hættu­svæðin vegna COVID-19. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Almanna­vörnum í dag.

Þá segir í til­kynn­ing­unni að frá og með fimmtu­deg­inum 19. mars 2020 sé Íslend­ingum og öðrum með búsetu á Íslandi og koma til lands­ins skylt að fara í tveggja vikna sótt­kví án til­lits til hvaðan þeir eru að koma.

Und­an­þegnir þessu er flug­á­hafnir og áhafnir flutn­inga­skipa.

[links]Á upp­lýs­inga­síð­unni covid.is kemur fram að fólk þurfi að fara í sótt­kví þegar það hefur mögu­lega smit­ast en upp­lifir engin ein­kenni.

Þú gætir hafa smit­ast ef þú

  • hefur verið á ferða­lagi á skil­greindum áhættu­svæðum
  • hefur umgeng­ist fólk sem svo grein­ist með COVID-19

Aðrir á þínu heim­ili sem voru útsettir fyrir smiti á sama tíma geta verið sam­tímis í sótt­kví á sama stað. Mik­il­vægt er að fylgja leið­bein­ingum um sótt­kví á heim­il­inu, segir á síð­unni.

Takmarka snertingu við þann í sóttkví

Ef ein­hver á heim­il­inu hefur verið útsettur fyrir smiti og fer í sótt­kví heima en ekki þú, er æski­legt að þú sért ekki á sama stað. Ef þú vilt ekki eða getur ekki farið af heim­il­inu er nauð­syn­legt að tak­marka snert­ingu eins og þú getur við þann sem er í sótt­kví.

Sóttkví vegna COVID-19 eru 14 dagar frá síð­asta mögu­lega smiti eða þar til ein­kenni koma fram. Ef þú ferð að upp­lifa ein­kenni og sýk­ing er stað­fest í kjöl­farið þarf að fara eftir leið­bein­ingum um ein­angrun í heima­húsi, að því er fram kemur á covid.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár