Vilja að fyrirtæki sem skiluðu ekki umsókn á réttum tíma fái líka uppsagnarstyrki

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar hefur lagt fram frum­varp þar sem fyr­ir­tækjum sem skil­uðu ekki umsóknum um svo­kall­aða upp­sagn­ar­styrki í tíma fái samt sem áður styrk­ina, upp­fylli þau önnur skil­yrði sem sett voru.

Óli Björn Kárason, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Óli Björn Kárason, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar hefur lagt fram frum­varp sem á að gefa fleiri fyr­ir­tækjum kost á því að sækja svo­kall­aða upp­sagn­ar­styrki í rík­is­sjóð. Í frum­varp­inu er því haldið fram að krafa um mán­að­ar­leg skil á umsóknum til Skatts­ins fyrir 20. hvers mán­aðar hafi reynst sumum atvinnu­rek­endum erfið. Tíma­frest­ur­inn hafi reynst óþarf­lega knappur. „Ábend­ingar hafa komið fram um að atvinnu­rek­endur, sem upp­fylla að öðru leyti skil­yrði lag­anna, hafi ekki náð að skila inn umsóknum í tæka tíð vegna hins skamma skila­frests.“

Meiri­hluti nefnd­ar­innar, sem sam­anstendur af þing­mönnum stjórn­ar­flokk­anna í henni, leggur því til að fyr­ir­tæki sem upp­fylli að öðru leyti skil­yrðin, en náð ekki að skila unn umsókn innan núgild­andi frests, fái samt afgreiðslu á umsókn sinni. Lagt er til að breyt­ingin verði aft­ur­virk frá og með gild­is­töku lag­anna, sem var í byrjun júní.

Mælt verður fyrir mál­inu á Alþingi síðar í dag. Fyrsti flutn­ings­maður þess er Óli Björn Kárason, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Kjarninn greindi frá því um liðna helgi að sam­kvæmt síð­ustu birtu tölum stjórn­valda, sem sýna stöð­una 13. októ­ber síð­ast­lið­inn, höfðu borist 1.028 umsóknir frá 351 mis­mun­andi rekstr­ar­að­ilum um svo­kall­aða upp­sagn­ar­styrki úr rík­is­sjóði.

[adspot]Sam­an­lögð upp­hæð umsókna er upp á 10,1 millj­arð króna. Ekki er til­greint hversu stór hluti umsókna hefur verið afgreiddur.

Þegar frum­varp um upp­­­sagn­­­ar­­­styrki var lagt fram um miðjan maí var gert ráð fyrir því að bein útgjöld rík­­­is­­­sjóðs vegna úrræð­is­ins yrðu 27 millj­­­arðar króna. Því er upp­hæðin sem sótt hefur verið um enn sem komið er ein­ungis 37 pró­sent af ætl­aðri upp­hæð.

Dregið úr gjald­þrotum og eign hlut­hafa varin

Þann 28. apr­íl var til­­­­kynnt um að rík­­­­is­­­­stjórnin ætl­­­­aði að veita ákveðnum fyr­ir­tækj­um, sem hefðu orðið fyrir umfangs­­­­miklu tekju­tapi, eða að minnsta kosti 75 pró­­­sent, styrki til að eyða ráðn­­­­ing­­­­ar­­­­sam­­­­böndum þeirra við starfs­­­­fólk sitt.

Þegar þessi áform voru kynnt lá ekk­ert frum­varp fyr­ir, ekk­ert kostn­að­­­­ar­­­­mat hafði verið gert opin­bert og engin kynn­ing á áformunum hafði átt sér stað meðal þing­­­­flokka. Fyr­ir­tæki hófu að segja fólki upp í miklu magni strax í kjöl­far­ið, og áður en nýr mán­uðum hæf­ist.

Frum­varp var svo lagt fram um miðjan maí mánuð og kostn­að­­­­ar­­­­mat kynnt sam­hliða. Það gerði ráð fyrir því að rík­­­­is­­­­sjóður greiði fyr­ir­tækjum sem upp­­­­­­­fylla sett skil­yrði alls 27 millj­­­­arða króna í styrki í ár til að hjálpa þeim að segja upp fólki.

Yfir­­­­lýst mark­mið var að draga úr fjölda­gjald­­­­þrotum og tryggja rétt­indi launa­­­­fólks. Hlið­­­­ar­á­hrif eru að eign hlut­hafa er var­in.

Hátt í fjórir millj­arðar króna til Icelandair og tengdra félaga

Upp­­­lýs­ingar um hverjir hafa nýtt sér úrræðið og hversu mik­inn stuðn­­­ing þessir aðilar hafa feng­ið, áttu að birt­­ast á vef Skatts­ins eftir 20. ágúst. Þær voru fyrst birtar snemma í sept­em­ber og upp­færðar í síð­ustu viku með tölum um stuðn­ing vegna launa­kostn­aðar í ágúst­mán­uði lík­a.

[links]Líkt og áður var Icelandair ehf. það félag sem hefur fengið mest greitt, eða 2.996 millj­ónir króna vegna upp­sagna 1.889 starfs­manna. Flug­leiða­hótel hf., sem eru í 25 pró­sent eigu Icelandair Group, fékk 562 millj­ónir króna vegna upp­sagna á 481 starfs­manni og Iceland Travel, ferða­skrif­stofa að fullu í eigu Icelandair Group fékk 147 millj­ónir króna fyrir að segja upp 82 starfs­mönn­um.

Þá fékk Flug­fé­lag Íslands, líka að öllu leyti í eigu Icelandair Group, 83 millj­ónir króna tvegna upp­sagna á 41 starfs­manni, og bíla­leiga Flug­leiða fékk 21 milljón króna vegna upp­sagna á alls 27 manns. Sam­tals nema greiðslur til fyr­ir­tækja að öllu leyti eða hluta í eigu Icelandair Group vegna upp­sagn­ar­styrkja því um 3,8 millj­örðum króna.

Bláa lónið fékk 571 milljón króna

Bláa Lónið fékk næst hæstu ein­stöku upp­sagn­ar­styrk­ina, alls um 571 milljón króna vegna upp­sagna 545 manns. Fjórða fyr­ir­tækið sem fékk upp­sagn­ar­styrki yfir hálfri milljón króna var Íslands­hótel hf., sem fékk alls 560 millj­ónir króna fyrir að segja upp alls 468 starfs­mönn­um.

Hótel eru raunar fyr­ir­ferða­mikil á list­an­um. Centerhotels fékk 243 millj­ónir króna, Foss­hótel 154 millj­ónir króna, Kea­hótel 135 millj­ónir króna og Hótel Saga 114 millj­ónir króna.

Rútu­fyr­ir­tækið Allra­handa, sem rekur vöru­merkin Grey Line og Air­port Express, fékk 184 millj­ónir króna og tvö félög tengd Kynn­is­ferð­um, sem reka vöru­merkið Reykja­vik Exc­ursions, fengu sam­tals um 175 millj­ónir króna.

Önnur fyr­ir­tæki á list­anum sem fengu yfir 100 millj­ónir króna eru öll tengd ferða­þjón­ustu með einum eða öðrum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár