Sigmundur Davíð bætir Matthíasi Imsland við sem aðstoðarmanni

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur ráðið Matthías Pál Imsland sem aðstoð­ar­mann sinn. Mattías hefur starfað sem aðstoð­ar­maður Eyglóar Harð­ar­dóttur félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra það sem af er þessu kjör­tíma­bili. Samkvæmt til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu verða verk­efni Matth­í­asar

meðal ann­ars á sviði stefnu­mörk­unar og sam­ræm­ingar til að styðja við for­gangs­verk­efni rík­is­stjórn­ar­innar. Þar segir einnig að Sig­mundur Davíð hafi haft einn aðstoð­ar­mann, Jóhannes Þór Skúlason, síðan að Ásmundur Einar Daðason, þing­maður og þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, lét af starfi aðstoð­ar­manns á árinu 2015. Nú verði þeir aftur tveir.

Matthías er 41 árs. Hann var kosn­inga­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 2013. Á póli­tískum vett­vangi hefur Matthísas verið for­maður Félags ungra Fram­sókn­ar­manna í Reykja­vík, for­maður kjör­dæma­sam­bands­ins í Reykja­vík, í stjórn Sambands ungra Fram­sókn­ar­manna, í mið­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins og í lands­stjórn flokks­ins. Hann lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum að Laug­ar­vatni, BA-prófi frá Háskóla Íslands í stjórn­mála­fræði og síðar MS-prófi frá Háskól­anum í Lundi í Svíþjóð. Þá hefur hann stundað nám í við­skipta­fræði við Háskóla Íslands og stjórn­un­ar­nám við North Park Uni­versity í Chicago í Banda­ríkj­unum. Áður vann hann sem ráð­gjafi fyrir erlend fyr­ir­tæki á sviði fram­taks­fjár­fest­inga. Þar áður var Matthías fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­sviðs flug­fé­lags­ins WOW-air og fyrir stofnun þess var hann for­stjóri Iceland Express. Matthías starf­aði um tíma í opin­berri stjórn­sýslu, fyrst sem sviðs­stjóri fræðslu-, félags- og menn­ing­ar­sviðs á Blöndu­ósi og síðar í iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu. Að loknu námi starf­aði hann hjá Símanum við ýmis stjórn­un­ar­störf.

Með fjölmarga ráðgjafa

Auk aðstoð­ar­manna sinna hefur Sig­mundur haft fjöl­marga ráð­gjafa á sínum snærum innan for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Þannig hefur Sigurður Már Jónsson, fyrrum rit­stjóri Við­skipta­blaðs­ins, starfað sem upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar með aðsetur í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu frá því í sept­em­ber 2013. Benedikt Árnason hefur starfað sem sér­legur efna­hags­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra frá 27. ágúst 2013. Þann 1. sept­em­ber 2014 var Lilja Alfreðs­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri á skrif­stofu banka­stjóra og alþjóða­sam­skipta í Seðla­banka Íslands, ráðin í tíma­bundna verk­efna­stjórn sem tengd­ist vinnu ráðu­neyt­is­ins við losun fjár­magns­hafta. Hún snéri aftur til starfa í Seðla­bank­anum um miðjan des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Hrannar Pét­urs­son, fyrrum upp­lýs­inga­full­trúi Vodafone, var ráð­inn til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins í lok árs 2014 til að móta stefnu Stjórn­ar­ráðs­ins í upp­lýs­inga- og sam­skipta­málum. Hann starf­aði þar í tæpt ár en er nú að íhuga for­seta­fram­boð. Í mars 2014 var Margrét Gísla­dóttir ráðin sem sér­stakur ráð­gjafi í for­sæt­is­ráðu­neytið, en hún hafði áður verið aðstoð­ar­maður Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra. Hún hætti störfum í jan­úar 2015 og starfar nú í einka­geir­anum.

Auk þess var, líkt og áður sagði, alþing­is­mann­inn Ásmund Einar Daðason aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs í um tvö ár sam­hliða þing­mennsku, og varð þar með fyrsti þing­maður þjóð­ar­innar til að vera ráð­inn aðstoð­ar­maður ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár