Evrópa opnar á ný

Frá og með 15. júní mun stór hluti íbúa Evrópu geta ferð­ast til ann­arra landa álf­unar. Útgöngu­bann í Bret­landi líður senn undir lok. Danir í fjar­sam­bandi geta hitt ást­vini á ný.

Um þessar mundir eru fáir á ferli við Brandenborgarhliðið.
Um þessar mundir eru fáir á ferli við Brand­en­borg­ar­hliðið. Mynd: EPA

Stjórn­völd víðs­vegar í Evrópu skoða nú að aflétta ferða­tak­mörk­unum til að blása lífi í ferða­þjón­ust­una, nú þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn er í rénun. Sums staðar hafa slíkar til­slak­anir verið sam­þykktar. Til að mynda hefur rík­is­stjórn Spánar sam­þykkt að frá og með 1. júlí munu erlendir ferða­menn sem sækja landið heim ekki þurfa að fara í sótt­kví.

Ákvörð­unin er sögð gíf­ur­lega mik­il­væg fyrir spænskan efna­hag sem reiðir sig mikið á ferða­þjón­ustu. Hluta­bréf í evr­ópskum ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum hækk­uðu mikið við opnun mark­aða í morgun, STOXX vísi­talan sem heldur utan um fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu tók um 7 pró­sent kipp upp á við.

Þjóð­verjar íhuga nú að aflétta ferða­tak­mörk­unum á milli Þýska­lands og 31 lands í Evrópu þann 15. júní næst­kom­andi. Löndin sem um ræðir eru aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins, lönd innan Schengen-svæð­is­ins og Bretland. BBC greinir frá því að rík­is­stjórn Angelu Merkel taki fyrir frum­varp þess efnis á morgun, mið­viku­dag. Nú þegar hafa landa­mæri Þýska­lands og Lúx­em­borgar verið opnuð. Þjóð­verjar höfðu enn fremur stefnt að því að opna landa­mærin við nágranna­ríkin Aust­ur­ríki, Frakk­land og Sviss þann 15. júní en ein­hverjar til­slak­anir í landamæra­eft­ir­liti þar á milli komu til fram­kvæmda 15. maí.

Mun fleiri lönd í Evrópu setja stefn­una á að opna landa­mærin á sama tíma og Þýska­land. Það sama er uppi á ten­ingnum hér en stefnt hefur verið að því að geta boðið ferða­mönnum sem hingað koma upp á COVID-19 próf á Kefla­vík­ur­flug­velli eigi síðar en 15. júní.

[links]Á Bret­landseyjum hefur útgöngu­bann verið í gildi í sjö vikur. Íbúar Englands mega nú fara út úr húsi og hitta einn ein­stak­ling af öðru heim­ili utandyra. Þá eru ferða­lög innan Englands leyfi­leg en ekki til Wales, Skotlands eða Norður-Írlands því þar er útgöngu­bann enn við lýði. Skotar þurfa að vísu ekki að bíða lengi því Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra skosku stjórn­ar­innar, hefur sagst ætla að aflétta útgöngu­banni á föstu­dag.

Íbúar Dan­merkur sem eru í fjar­sam­bandi geta tekið gleði sína á ný, að því gefnu að makar þeirra séu frá Norð­ur­löndum eða Þýska­landi. Landa­mærin hafa verið opnuð fyrir maka danskra þegna frá þessum löndum en þó þarf að færa sönnur á sam­bandið, með fram­vísun ljós­mynda, smá­skila­boða eða tölvu­pósta. Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær landa­mærin munu end­an­lega opna en ákvörðun verður tekin um það eigi síðar en 1 júní.

Þegar kemur að ferða­tak­mörk­unum skera Eystra­salts­ríkin sig nokkuð úr. Íbúar þeirra hafa mátt ferð­ast á milli land­anna síðan 15. þessa mán­aðar. Ferða­frelsið hefur verið til­tölu­lega óhindrað, að minnsta kosti í sam­an­burði við önnur lönd álf­unnar. Þeim ein­stak­lingum sem vilja ferð­ast eru sett nokkur skil­yrði. Þeir mega ekki hafa heim­sótt önnur lönd síð­ast­liðnar tvær vikur, þeir þurfa að vera ósmit­aðir af kór­ónu­veirunni auk þess sem þeir mega ekki hafa umgeng­ist smitað fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár