Rúmlega 40 Porsche bílar verða innkallaðir á Íslandi

Samkvæmt umboðs­að­ila Porsche verða um 40 Porsche Cayenne bílar inn­kall­aðir vegna hug­bún­að­ar­galla. Alls verða um 22.000 bílar inn­kall­aðir um alla Evrópu.

Þriggja lítra Porsche Cayenne dísilbílar verða innkallaðir.
Þriggja lítra Porsche Cayenne dísil­bílar verða inn­kall­aðir. Mynd: EPA

Alex­ander Dobrindt, sam­göngu­ráð­herra Þýska­lands, til­kynnti í gær að inn­kalla ætti alla þriggja lítra Porsche Cayenne dísil­bíla þar sem útblást­ur­s­kerfi bíls­ins sé hugs­an­lega ólög­legt.

Umboðs­að­ili Porsche telur lík­legt að þeir þurfi að inn­kalla 40 slíka bíla á Íslandi.

Í gær til­kynnti Porsche að óreglu­legur vél­ar­bún­aður hafi verið fund­inn í innra meng­urn­ar­eft­ir­liti bíl­anna. Í kjöl­far þess sagð­ist bíla­fram­leið­and­inn hafa sam­þykkt að inn­kalla alla bíl­anna sem gætu haft þennan vél­ar­búnað. Þetta kom fram á vef Reuters.

Sam­göngu­ráð­herra Þýska­lands, Alex­ander Dobrint, til­kynnti svo opin­ber­lega að allir Porsche Cayenne dísi­bílar með þriggja lítra Euro 6 vél sem keyptir hafa verið í Evrópu skuli skilað til­baka til við­eig­andi umboðs. „Fram­leið­and­inn mun að sjálf­sögðu bera 100% kostn­að­ar­ins,“ bætti Dobrint við. „Það er engin útskýr­ing af hverju hug­bún­að­ur­inn er svona í þessum bíl.“

[links]Fram­leið­andi bíl­anna, Porsche AG, er í eigu Volkswagen, en fyr­ir­tækið gerð­ist sekt um ófull­nægj­andi hug­búnað fyrir tæpum tveimur árum síðan. Málið var Volkswagen kostn­að­ar­samt, en talið er að fyr­ir­tækið hafi tapað að jafn­virði 500 millj­arða króna af því.

Samkvæmt Dobrint eru um 7.500 bílar af þess­ari teg­und skráðir í Þýska­landi og 22.000 í Evrópu allri. Ekki er hins vegar vitað hversu margir af þessum bílum séu enn í bíla­sölum.

Í sam­tali við Kjarnann sagði starfs­maður Bíla­búðar Benna, umboðs­að­ila Porsche á Íslandi, að um það bil 40 Porsche Cayenne dísíl­bílar með þriggja lítra Euro 6 vél hafi verið seldir af þeim. Hins vegar sé ekki vitað hvort allir þeirra séu með umræddan hug­bún­að­ar­galla þar sem vöntun sé á frek­ari upp­lýs­ingum. Starfs­maður umboðs­ins bætir við að lík­legt sé að fleiri bílar verði inn­kall­aðir hér á landi þar sem margir kjósi að kaupa bíl erlendis frá og flytja hann inn sjálfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár