Benz innkallar diesel-bíla vegna mengunarásakana

Eigendur þriggja millj­óna Mercedes-Benz-bíla munu senda bíla sína til þjón­ustu­að­ila svo hægt sé að laga galla í stýri­kerfi bíl­anna. Óvíst er hvort bílar á Íslandi falli undir þetta.

Mercedes-Benz er í eigu Daimler.
Mercedes-Benz er í eigu Daimler. Mynd: EPA

Þrjár millj­ónir Mercedes-Benz-bílar verða inn­kall­aðir í Evrópu á næst­unni svo hægt verði að lag­færa galla í stýri­kerfi diesel-bíla sem veldur of mik­illi mengun.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Öskju, umboðs­að­ila Mercedes-Benz á Íslandi, hafa engar til­kynn­ingar borist að utan um að bílar á Íslandi falli undir inn­köll­un­ar­skil­yrðin.

Daimler, móð­ur­fé­lag Mercedes, hefur sætt rann­sókn yfir­valda ríkja Evrópu vegna hugs­an­legra galla í eða mis­notk­unar á stýri­kerfi dies­elknú­inna bíla sem veldur því að bíl­arnir menga mun meira í venju­legum akstri en þegar þeir eru í skoðun.

[links]Tals­maður Daimler segir að það muni kosta um 220 milljón evrur (tæp­lega 27 millj­arða íslenskra króna) að inn­kalla alla bíl­ana sem þurfa stýri­kerf­is­upp­færslu. Á vef breska rík­is­út­varps­ins BBC er haft eftir tals­mann­inum að ráð­ist væri í inn­köllun bíl­anna að frum­kvæði fyr­ir­tæk­is­ins en ekki vegna skip­ana frá yfir­völdum.

Daimler seg­ist ekki ætla að rukka við­skipta­vini fyrir þjón­ust­una sem mun standa til boða á næstu vikum. Yfirmenn Mercedes-Benz sátu fyrir svörum þýskrar þing­nefndar í síð­ustu viku en áður hafði fyr­ir­tækið hleypt full­trúum sam­göngu­yf­ir­valda í Þýska­landi að rann­saka útblástur Benz-bíla á nýjan leik. Þá gerði þýska lög­reglan hús­leit í ell­efu skrif­stofu­bygg­ingum Mercedes-Benz í maí.

Óskar Páll Þor­gils­son, for­stöðu­maður þjón­ustu­sviðs Öskju, sagði í sam­tali við Kjarnann að engin meld­ing hefði borist að utan um að inn­kalla ætti bíla á Íslandi. Hann telur það lík­legra að hér séu ein­fald­lega engir bílar sem falla undir inn­köll­un­ar­skil­yrðin. „Það er óvana­legt að það séu komnar fréttir um eitt­hvað svona og ég hafi ekki fengið e-mail um það,“ segir Óskar Páll. Hann hafi sent fyr­ir­spurn til fram­leið­and­ans um leið og hann las frétt­irnar en ekki verið búinn að fá svar þegar Kjarninn náði tali af honum.

[adspot]

Allt vegna Volkswagen svindlsins

Eftir að upp komst um svindl þýska bíla­fram­leið­and­ans Volkswagen haustið 2015 hafa evr­ópsk sam­göngu­yf­ir­völd hafið ítar­lega rann­sókn á því hvernig bíla­fram­leið­endur skrá útblástur bíla sinna.

Lang­flestir – ef ekki allir – bílar sem fram­leiddir eru í dag eru búnir tölvu­stýr­ingu sem sem skráir ýmsar hag­nýtar og mik­il­vægar upp­lýs­ingar um bíl­inn, hvort sem hann er í akstri eða ekki. Þessar upp­lýs­ingar geta reynst mik­il­vægar fyrir öku­menn, sem fá upp­lýs­ingar um loft­þrýst­ing í dekkjum, ástand vélar og við­var­anir um aðstæður á vegum beint í mæla­borðið. Tölvu­tæku upp­lýs­ing­arnar eru hins vegar einnig mik­il­vægar fyrir yfir­völd sem reiða sig á þessi tölvu­kerfi til þess að meta megnun frá bíl­unum.

Volkswagen varð upp­víst að því að svindla á mæl­ingum útblást­urs frá dies­elknúnum bílum sínum í sept­em­ber 2015. Svindlið fólst í því að þegar bíll­inn var tengdur tölvu eft­ir­lits­að­ila eða ein­hvers sem þurfti upp­lýs­ingar um útblástur vél­ar­innar, skipti tölva bíls­ins um gír, ef svo má segja, dró úr afli vél­ar­innar miðað við hvað eðli­legt getur talist og þannig minnk­aði útblástur frá bílnum allt að 40-falt.

Í kjöl­farið hafa yfir­menn fyr­ir­tæk­is­ins bæði misst vinn­una og sumir eiga yfir höfði sér dóms­mál vegna svindls­ins. Kostn­aður Volkswagen er tal­inn í millj­örðum evra vegna svindls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár