Íbúðum á Íslandi fjölgaði um 1800 í fyrra

Íbúðum þarf að fjölga um sam­tals 17.000 árin 2017 til 2019 til að mæta að fullu þörf og upp­söfn­uðum skorti, sam­kvæmt Íbúða­lána­sjóði.

Íbúðum hér á landi fjölg­aði um 1.759 í fyrra. Til sam­an­burðar fjölg­aði þeim um 1.580 árið 2016 og er aukn­ingin því tæp­lega 200 íbúðir milli ára. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Íbúða­lána­sjóði sem send var út í dag.

Jafn­framt kemur fram að fjölg­unin hafi þó verið hæg­fara í sam­an­burði við eft­ir­spurn og fjölgun íbúða í fyrra hafi verið enn undir með­al­tali síð­ustu tveggja ára­tuga. Íbúðum sé því enn að fjölga mun hægar en þörf er á og upp­safn­aður skortur sé enn til staðar eftir hæga fjölgun íbúða und­an­farin 8 ár.

Íbúðum fjölg­aði mest í Mos­fellsbæ eða um 401 íbúð. Næst kemur Reykja­vík en þar fjölg­aði íbúðum um 322 í fyrra sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár. Til sam­an­burðar fjölg­aði íbúðum í borg­inni um 635 árið 2016. Kópa­vogur er í þriðja sæti í fjölgun íbúða í fyrra, en íbúðum í bænum fjölg­aði um 269 í fyrra borið saman við 168 árið 2016.

Ólafur Heiðar Helgason, hag­fræð­ingur í hag­deild Íbúða­lána­sjóðs, sagði þegar ný grein­ing Íbúða­lána­sjóðs og Íslenska bygg­inga­vett­vangs­ins var kynnt í gær að ljóst væri að mikil þörf er á upp­bygg­ingu hús­næðis víða um land. Það skipti miklu máli að sú upp­bygg­ing verði hag­kvæm og í sam­ræmi við þörf lands­manna. Um ára­bil hefðu Íslend­ingar búið við miklar sveiflur í hús­næð­is­málum. „Það þarf að minnka þessar sveiflur til þess að auka fram­leiðni, lækka bygg­inga­kostnað og tryggja að hús­næði fáist á við­ráð­an­legu verði fyrir almenn­ing. Aukin fram­leiðni í bygg­ing­ar­iðn­aði er því ekki aðeins góð fyrir þá sem starfa í grein­inni sjálfri, heldur er hún lyk­il­at­riði til að stuðla að auknum stöð­ug­leika í hús­næð­is­málum,“ sagði hann.

Þörf á 17.000 íbúðum næstu tvö ár

Í nýlegri skýrslu Íbúða­lána­sjóðs kemur fram að íbúðum þyrfti að fjölga um sam­tals 17.000 árin 2017 til 2019 til að mæta að fullu þörf og upp­söfn­uðum skorti. Nú þegar liggur fyrir að íbúðum fjölg­aði um tæp­lega 1.800 í fyrra má segja að íbúðum þyrfti að fjölga um um það bil 15.000 í ár og næsta ár, 2018 og 2019, til að mæta að fullu þörf og upp­söfn­uðum skorti. Samkvæmt þessum upp­lýs­ingum er talið ólík­legt að upp­bygg­ing­ar­hrað­inn verði nægj­an­legur næstu tvö árin til að það náist að mæta þörf almenn­ings fyrir íbúðir.

Sigrún Ásta Magn­ús­dóttir, deild­ar­stjóri á hús­næð­is­sviði Íbúða­lána­sjóðs, segir að þessar tölur séu áhyggju­efni en séu þær bornar saman við nýja grein­ingu hag­deildar Íbúða­lána­sjóðs um þörf á íbúð­ar­hús­næði kemur í ljós að lík­lega verður enn mik­ill skortur á íbúðum næstu 2 til 3 árin. Þessar nýju tölur um fjölgun íbúða sýni að lang­tíma­sýn og áætl­ana­gerð í hús­næð­is­málum hefur verið ábóta­vant og að skortur hefur verið á áreið­an­legum upp­lýs­ingum.

„Tölurnar sýna okkur hversu mik­il­vægt það er að sveit­ar­fé­lög marki stefnu í hús­næð­is­málum og geri áætl­anir um hvernig þau ætla að mæta þeim mikla skorti sem ríkir á hús­næð­is­mark­aði. Hús­næð­is­á­ætl­anir sveit­ar­fé­laga eru lyk­il­þáttur í því að stuðla að stöð­ug­leika og sjá til þess að fram­boð hús­næðis mæti eft­ir­spurn,“ segir Sigrún Ásta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár