Bjarni: Hlutabótaleiðin heppnaðist sérlega vel

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að hluta­bóta­leiðin verði fram­lengd því hún hafi heppn­ast vel og sé mik­il­væg fyrir heim­ilin.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir á Facebook í dag að hann telji að hluta­bóta­leiðin hafi heppn­ast sér­lega vel.

„Hluta­starfa­leiðin var úrræði stjórn­valda til að forða upp­sögnum hjá fyr­ir­tækjum sem urðu fyrir tekju­falli vegna COVID-19. Það var eng­inn munur gerður á litlum eða stórum fyr­ir­tækjum, við vildum ein­fald­lega hvetja fyr­ir­tæki til að við­halda ráðn­ing­ar­sam­band­inu ef það gat verið val­kostur að lækka starfs­hlut­fall tíma­bundið. Greiðslur frá rík­is­sjóði fara til starfs­manna, ekki fyr­ir­tækja og fyr­ir­tæki gátu ekki notið starfs­krafta þeirra nema að því marki sem þau sjálf greiddu launin,“ skrifar hann.

Ráð­herr­ann segir að þessa dag­ana sé smá­sölu­verslun að taka aftur við sér og að störfin séu örugg­ari. „Við náðum mark­miði okkar. Fólk upp­lifði lítið tekju­tap þrátt fyrir að það hafi ekki haft fulla vinnu. Þetta tryggði fram­færsl­una, rekstur heim­ila fór ekki úr skorðum. Einka­neysla er að taka við sér aftur. Vinnu­tengd rétt­indi eru óhreyfð.“

Kæmi á óvart ef ekki mætti birta nöfn fyrirtækja sem tóku þátt í aðgerðinni

[links]Töluverð gagn­rýni hefur verið á reglu­verkið í kringum leið­ina og gerir Bjarni sér það að umtals­efni í færsl­unni. „Ef dæmi eru um að fyr­ir­tæki sem ekki urðu fyrir tekju­falli eða dreifðu pen­ingum út til eig­enda sinna á sama tíma og þau nýttu úrræðið finnst mér alveg ljóst að það var ekki í sam­ræmi við til­gang lag­anna. Við þurfum að finna þau til­vik með eft­ir­liti, en þau eru örugg­lega und­an­tekn­ing. Alvarleg und­an­tekn­ing og ekki lýsandi fyrir það sem við vorum að standa saman um. Slíkar und­ar­tekn­ingar rjúfa mik­il­væga sam­stöðu.“

Hann segir að í ljós komi hvort Íslend­ingar hafi reist sér slíkar skorður í per­sónu­vernd­ar­lögum að ekki sé hægt að birta lista yfir fyr­ir­tæki sem gerðu samn­inga um lægra starfs­hlut­fall. Vinnu­mála­stofnun gaf út þá yfir­lýs­ingu í gær að ekki væri hægt að birta lista yfir þau fyr­ir­tæki sem nýtt hafa hluta­bóta­leið­ina.

„Ég vænti nið­ur­stöðu í það mál innan fárra daga og það kæmi á óvart að ekki mætti birta nöfn fyr­ir­tækja sem tóku þátt í þess­ari aðgerð. Ég heyri vanga­veltur um að eitt kunni að eiga við stór fyr­ir­tæki annað um lítil. Sjáum til. Hver sem nið­ur­staðan verður vil ég segja að í mínum huga snýst þetta ein­fald­lega um gagn­sæi.

Fyr­ir­tæki sem urðu fyrir tekju­falli vegna þessa far­ald­urs breyttu rétt með því að segja ekki upp fólki heldur nýta þetta úrræði frekar. Við vorum bein­línis að biðja þau um að bíða og sjá hvernig myndi spil­ast úr efna­hags­legu stöð­unni. Við óskuðum eftir því að fólki yrði ekki sagt upp ef þessi leið gat verið val­kostur,“ skrifar hann.

Hlutabótaleiðin verður framlengd

Bjarni seg­ist þess vegna ekki sjá hvers vegna þetta ætti að vera við­kvæmt mál frá sjón­ar­hóli fyr­ir­tækj­anna. Það sem kunni að hafa áhrif hér er almenn­ings­á­litið. Og því sé aftur oft og tíðum stjórnað af fjöl­miðlaum­fjöllun.

„Við skulum ekki láta það ger­ast að úrræði sem við vorum sam­mála um að skipti miklu fyrir fjöl­skyldur og heppn­að­ist vel í fram­kvæmd fái á sig óorð vegna fárra und­ar­tekn­inga­til­vika. Þau til­vik er nú rætt um í fjöl­miðlum. Ég sé fáar sögur sagðar af öllum þús­und­unum sem nutu góðs af úrræð­inu, fjöl­skyldum sem komust í skjól og þurftu ekki að fást við áhyggjur og kvíða vegna atvinnu­missis.

Hluta­starfa­leiðin hafði mikla þýð­ingu þegar mest þurfti á að halda: Á meðan við beittum ströngum úrræðum eins og sam­komu­banni sem olli lokun margra fyr­ir­tækja og hruni í tekjum ann­arra sem reyndu að hafa opið,“ skrifar hann.

Bjarni endar færsl­una með því að greina frá því að hluta­bóta­leiðin verði fram­lengd því hún hafi heppn­ast vel og sé mik­il­væg fyrir heim­ilin. „Hún er enn­fremur tákn­ræn fyrir sam­stöð­una sem við þurfum svo mikið á að halda. Stöndum áfram saman um mik­il­vægar aðgerðir til að lág­marka skaða sam­fé­lags­ins af þessum far­aldri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár