Niðurstaða komin í plastbarkamálið í Svíþjóð

Paolo Macchiarini verður ekki ákærður fyrir mann­dráp af gáleysi. Fyrsti sjúk­ling­ur­inn sem hann fram­kvæmdi plast­barka­að­gerð á Karol­inska-sjúkra­hús­inu var á vegum íslenskra heil­brigð­is­yf­ir­valda.

Paolo Macchiarini
Paolo Macchiarini Mynd: CARLO FERRARO / EPA

Paolo Macchiarini, ítalski skurð­lækn­ir­inn sem græddi plast­barka í þrjá ein­stak­linga á Karol­inska-sjúkra­hús­inu, verður ekki ákærður fyrir mann­dráp af gáleysi. Þetta eru nið­ur­stöður sænskra dóm­stóla sem birtar voru í gær­morgun. Maccharini var sá eini sem hafði stöðu sak­born­ings í þessu umdeilda máli. Rann­sóknin tók ein­göngu til þeirra aðgerða sem fram­kvæmdar voru á Karol­inska-sjúkra­hús­inu. Fyrsti sjúk­ling­ur­inn til að und­ir­gang­ast slíka aðgerð var Eretr­íu­mað­ur­inn Andemariam Beyene sem var á vegum íslenskra heil­brigð­is­yf­ir­valda og var sendur af þeim til­rauna­að­gerð­ina. Áður hafði Macciharini gert aðgerðir með barka úr látnum gjöfum sem allar mistók­ust.

Sak­sókn­arar komust að þeirri nið­ur­stöðu að ekki væru nægar sann­anir til að krefj­ast sak­fell­ingar Macchiarini á dauða Beyene. Macciharini hafi þó sýnt mikla van­rækslu, eins og Anders Tordai, sak­sókn­ari orð­aði það. Macciharini græddi einnig plast­barka á árunum 2011-2013 í tvo aðra ein­stak­linga, Banda­ríkja­mann og konu frá Tyrk­landi en allar aðrar ákærur verða látnar niður falla og rann­sóknir á mál­unum sömu­leiðis. Dóms­nið­ur­stöður ná ekki til vís­inda­legra þátta í þessu máli.

Tilraunaaðgerðir á fólki

Andemariam Beyene var greindur með ill­kynja æxli í hálsi og eftir að meinið hafði tekið sig upp var talið að engin hefð­bundin með­ferð myndi gagn­ast honum og hann því sendur í plast­barka­ígræðsl­una til að lengja líf hans. Anemariam Beyene voru gefnar vonir um að geta lifað í átta ár með plast­bark­ann en hann lifði tæp þrjú ár. Innan við ári eftir til­rauna­að­gerð­ina var búið að setja stoð­net í plast­barka hans til að önd­un­ar­veg­ur­inn félli ekki saman þar sem aðgerðin mistókst. Sú aðgerð var gerð í Svíþjóð og var Macciharini við­staddur hana. Beyene var illa hald­inn og leið kvalir síð­asta árið, eftir því sem eig­in­kona hans hefur lýst í þætti Bosse Lindquists í sænska sjón­varp­inu.

Aðgerðin á Beyene var til­rauna­að­gerð og ekk­ert sem lá fyrir um að hún myndi heppn­ast. Þessi nýstár­lega aðgerð byggð­ist á með­höndlun plast­barka sem var bað­aður í stofn­frumum sem ein­angr­aðar höfðu verið úr sjúk­lingnum í um 36 klst. og átti þetta að leiða til mynd­unar önd­un­ar­færa­vefs í bark­anum. Þar með átti bark­inn að vera sveigj­an­legur,og því sem næst eðli­legur. Hann ætti jafn­framt að starfa eðli­lega.

Kostn­að­ur­inn við aðgerð­ina hefur ekki feng­ist upp­gef­inn en Trygg­inga­stofnun rík­is­ins segir að aðgerðin sjálf hafi ekki verið greidd af þeim. Eins og fram kom í grein í Kjarn­anum hafði Maccharini ekki stað­fest til­skilin leyfi, hvorki til að nota plast­bark­ann né að gera aðgerð­ina og hann hafði heldur ekki gert þær til­raunir á dýrum sem hann full­yrti að hann hefði gert áður en hann gerði aðgerð á lif­andi ein­stak­lingi.

„Við Íslendingar verðum að skoða vel okkar eigin aðkomu að þessu máli“

„Við verðum að hafa í huga að hér er um að ræða mjög alvar­legt mál sem felur í sér grun um óboð­lega og lífs­hættu­lega lækn­is­með­ferð, rann­sóknir á fólki þar sem ekki var gætt til­hlýði­legrar var­úðar og jafn­framt ásak­anir um mis­ferli eða jafn­vel svik í rann­sóknum sem hafa hugs­an­lega haft alvar­legar afleið­ingar og jafn­vel leitt til þess að fjöldi manns hefur lát­ist. Þetta mál teygir anga sína til fjöl­margra landa og er mjög flókið,“ segir Ástríður Stef­áns­dóttir, læknir og dós­ent í hag­nýtri sið­fræði.

Vís­indasið­fræði­legur þáttur þess­ara aðgerða hefur verið harð­lega gagn­rýndur en rann­sókn hefur staðið yfir hér á landi á vegum Land­spít­ala og Háskóla Íslands og er Páll Hreins­son hæsta­rétt­ar­dóm­ari for­maður nefnd­ar­innar sem vinnur að henni. Í grein í hinu virta lækn­is­fræði­tíma­riti Lancet voru jákvæðar nið­ur­stöður aðgerð­ar­innar á fyrsta sjúk­lingnum, Beyene, sem fékk ígræddan plast­parka kynntar en greinin var svokölluð „Proof of concept“-grein sem þýðir að nið­ur­stöð­urnar ráða miklu um hvort um fram­hald verður að ræða eða ekki. Frekari aðgerðir Macciharini byggðu á meintum jákvæðum nið­ur­stöðum sem kynntar voru í Lancet-grein­inni. Tveir íslenskir læknar eru með­höf­undar grein­ar­innar og hafa þeir hafa báðir óskað eftir að nöfn þeirra verði fjar­lægð af grein­inni en ekki fengið það sam­þykkt.

Vil­hjálmur Árnason, pró­fessor í heim­speki við HÍ, sagði í við­tali við Kjarnanní fyrra að Íslend­ingar þurfi að ræða þær sið­ferði­legu spurn­ingar sem þessi til­rauna­með­ferð veki. Vil­hjálmur sagði jafn­framt: „Sú umræða þarf bæði að snú­ast um breytni heil­brigð­is­starfs­manna og þau kerfi eða ferli sem við búum yfir til að hafa eft­ir­lit með með­ferð og rann­sóknum. Þetta þarf að gera óháð því hverjar nið­ur­stöður rann­sókn­ar­máls­ins um ábyrgð ein­stakra starf­manna eða stofn­ana verða. Þetta er hörmu­legt mál þar sem virð­ist hafa verið brotið gegn grund­vall­ar­at­riðum í vís­indasið­ferði.“

Rann­sókn­ar­nefndin á vegum Land­spít­ala og Háskóla Íslands mun senda frá sér skýrslu um þetta mál á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár