Landsbankinn færði niður lán upp á rúma fimm milljarða og tapaði 3,6 milljörðum

Arðsemi eigin fjár Lands­bank­ans var nei­kvæð upp á 5,9 pró­sent á fyrsta árs­fjórð­ungi. Alls nema útlán bank­ans til ferða­þjón­ustu 95,7 millj­örðum króna en sá geiri hefur orðið verst úti vegna COVID-19.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans. Mynd: Landsbankinn

Yfir tíu millj­arða króna við­snún­ingur var milli ára á afkomu Lands­bank­ans á fyrsta árs­fjórð­ungi. Bankinn, sem er að nær öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, tap­aði 3,6 millj­örðum króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2020 en skil­aði 6,8 millj­arða króna hagn­aði á sama tíma­bili í fyrra.

Arðsemi eigi fjár hans var nei­kvæð upp á 5,9 pró­sent en var jákvæð um 11,2 pró­sent á fyrsta árs­fjórð­ungi í fyrra. Þetta kemur fram í árs­fjórð­ungs­upp­gjöri Lands­bank­ans sem birt var í dag.

Virð­is­rýrnun útlána bank­ans nam 5,2 millj­örðum króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins, sem jafn­gildir um 0,4 pró­sent af lána­safni bank­ans.

Alls eru útlán bank­ans til ferða­þjón­ustu, sem hefur orðið verst allra geira úti vegna áhrifa af COVID-19 far­aldr­inum, 95,7 millj­arðar króna sem nemur um 8,1 pró­sent af heild­ar­út­lánum bank­ans. Þau hafa lækkað um rúman hálfan millj­arð króna frá árs­lokum 2019.

[adspot]Rekstr­ar­tekjur bank­ans á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2020 námu 3,4 millj­örðum króna, sam­an­borið við 15,0 millj­arða króna á sama tíma­bili árið áður. Aðrar rekstr­ar­tekjur voru nei­kvæðar um 8 millj­arða króna sam­an­borið við tekjur upp á 2,7 millj­arða króna á sama tíma­bili árið áður. Kostn­að­ar­hlut­fall fyrstu þrjá mán­uði árs­ins var 72,6 pró­sent, sam­an­borið við 38,7 pró­sent á sama tíma­bili árið 2019.

Útlán til ein­stak­linga og fyr­ir­tækja juk­ust um 4,4 pró­sent frá ára­mótum, eða um rúma 50 millj­arða króna en þar af voru um 33 millj­arðar króna vegna geng­is­breyt­inga. Innlán hjá Lands­bank­anum juk­ust um 47 millj­arða króna frá ára­mótum, sem er 6,7 pró­sent aukn­ing.

Eigið fé Lands­bank­ans var 244,1 millj­arður króna þann 31. mars síð­ast­lið­inn og eig­in­fjár­hlut­fallið var 24,8 pró­sent.

Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, segir að upp­gjör bank­ans end­ur­spegli greini­lega þau áhrif sem COVID-19 hafi haft á efna­hags­líf lands­ins. „Virð­is­rýrnun útlána nam 5,2 millj­örðum króna sem má rekja til þeirra aðstæðna sem hafa skap­ast í kjöl­far COVID-19 heims­far­ald­urs­ins. Mat á virðirýrnun er í sam­ræmi við alþjóð­legan reikn­ings­skila­staðal og til­mæli frá Evrópsku banka­eft­ir­lits­stofn­un­inni og Seðla­banka Íslands. Þessi var­úð­ar­færsla, ásamt áhrifum af óróa á hluta­bréfa­mörk­uðum, á stærstan þátt í því að bank­inn bók­færir tap á fyrsta árs­fjórð­ungi 2020 upp á um 3,6 millj­arða króna, sam­an­borið við hagnað upp á 6,8 millj­arða króna vegna fyrsta árs­fjórð­ungs 2019.“

Lilja segir að ekki sé útséð um end­an­leg áhrif far­ald­urs­ins. Þó megi telja lík­legt að minni tekjur við­skipta­vina og aukin skuld­setn­ing muni hafa nei­kvæð áhrif á láns­hæfi þeirra sem leiðir til enn meiri virð­is­rýrn­unar útlána.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár