Stjórnarflokkarnir tapa samanlögðu fylgi og mælast í vandræðum í Reykjavík

Þeir sem eru með háskóla­menntun eru lík­legri til að kjósa Sam­fylk­ing­una, Pírata eða Viðreisn en þeir sem eru með grunn­skóla­menntun. Flokk­arnir sem sitja saman í meiri­hluta í Reykja­vík njóta sam­an­lagt meiri stuðn­ings þar en á nokkru öðru land­svæði.

Stjórn­ar­flokk­arnir þrír: Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur og Vinstri græn, fengu sam­tals 54,3 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum. Samkvæmt nýj­ustu könnun Maskínu hefur sam­eig­in­legt fylgi þeirra dreg­ist saman um 5,2 pró­sentu­stig og mælist nú 49,1 pró­sent. Minnst mælist fylgi þeirra í Reykja­vík, þar sem sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist nú 41,3 pró­sent.

Þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar mæl­ast með meira fylgi í dag en þeir fengu í kosn­ing­unum 2021. Það eru Píratar, Sam­fylk­ing og Viðreisn. Sam­an­lagt fengu þessir þrír flokkar 26,8 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum sem var 1,2 pró­sentu­stigi minna en þeir fengu í kosn­ing­unum 2017. Tölu­verður með­byr mælist með þessum þremur flokkum, sem mynda meiri­hluta í næst stærsta stjórn­valdi lands­ins, Reykja­vík­ur­borg, með Vinstri grænum. Sam­an­lagt fylgi þeirra mælist nú 35 pró­sent. Fylgi þeirra hefur því sam­an­lagt auk­ist um 8,2 pró­sentu­stig frá því í lok sept­em­ber eða um tæp­lega þriðj­ung. Bæði Píratar og Sam­fylk­ing mæl­ast sterk­ari í Reykja­vík en ​ann­ars­staðar á land­inu og Viðreisn mælist ein­ungis sterk­ari í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­innar. Sam­an­lagt fylgi flokk­anna þriggja í höf­uð­borg­inni mælist 44,6 pró­sent, sem er nokkuð hærra en sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja í Reykja­vík

Samanlagt fylgi stjórnarandstöðu aukist umtalsvert

Einn flokkur í stjórn­ar­and­stöðu stendur nokkurn veg­inn í stað frá síð­ustu kosn­ingum, Flokkur fólks­ins.Fylgi hans mælist nú 8,3 pró­sent, sem er 0,5 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2021.

[adspot]Áttundi flokk­ur­inn sem á full­trúa á þingi er Mið­flokk­ur­inn. Hann fékk 5,4 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum en mælist nú með 3,7 pró­sent fylgi á lands­vísu sem myndi senni­lega ekki duga til að ná manni inn á þing.

Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna mælist því nú 47 pró­sent en þeir fengu 41 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum.

Eini flokk­ur­inn sem er ekki með full­trúa á þingi sem stendur sem mælist í könnun Maskínu er Sós­í­alista­flokkur Íslands, en fylgi hans mælist 3,7 pró­sent.

Yngri vilja Pírata, eldri styðja Flokk fólksins

Í könnun Maskínu er fylgi líka brotið niður á breytur á borð við aldur, tekjur, búsetu og menntun. Nokkrar athygl­is­verðar vís­bend­ingar er hægt að lesa úr því nið­ur­broti þótt taka verði til­lit til þess að fjöldi svar­enda var ein­ungis 1.548 alls.

Þannig má sjá að fylgi Pírata, sem bætt hafa flokka mest við sig frá síð­ustu kosn­ingum, er mun meira hjá yngri fólki en eldra. sömu sögu er að segja um Sam­fylk­ing­una. Raunar sýna nið­ur­stöður Maskínu að hjá kjós­endum 29 ára og yngri eru báðir þessir flokkar vin­sælli en stærsti flokkur lands­ins, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Það er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn líka sem þýðir að hjá þessum yngsta kjós­enda­hópi lands­manna er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fjórði stærsti flokk­ur­inn.

Hjá næsta ald­urs­hópi fyrir ofan, fólki á fer­tugs­aldri, er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stærstur og Píratar fylgja fast á hæla hans. Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mælist hins vegar undir heild­ar­fylgi hjá þeim ald­urs­hópi.

Fylgi Pírata dalar hins vegar skarpt eftir því sem kjós­endur eru eldri. Þróunin er öfug hjá Sjálf­stæð­is­flokknum sem mælist stærsti flokk­ur­inn hjá öllum ald­urs­hópum yfir 40 ára. Í elsta ald­urs­hópnum, 60 ára og eldri, er Flokkur fólks­ins síðan með afger­andi flesta stuðn­ings­menn. Alls segj­ast 13,4 pró­sent kjós­enda í þeim ald­urs­hópi styðja flokk Ingu Sæland. Til sam­an­burðar nýtur hann ein­ungis stuðn­ings 4,1 pró­sent lands­manna á fer­tugs­aldri.

Sjálfstæðisflokkur með 16,6 prósent í Reykjavík

Sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram eftir 108 daga. Í könnun Maskínu má sjá hvernig fylgi flokk­anna á þingi dreif­ist eftir búsetu. Eina ein­staka sveit­ar­fé­lagið sem er þar mælt er höf­uð­borgin Reykja­vík, þótt vert sé að taka fram að ekki sé spurt um afstöðu til borg­ar­stjórn­ar­fram­boða heldur hvaða flokk við­kom­andi myndi kjósa á þing.

Samkvæmt könnun Maskínu er stuðn­ingur við þá flokka sem mynda meiri­hluta í Reykja­vík í dag: Sam­fylk­ingu, Pírata, Viðreisn og Vinstri græn, mun meiri í höf­uð­borg­inni en á land­inu öllu. Samtals mæld­ist heild­ar­fylgi þess­ara flokka 46,2 pró­sent en í Reykja­vík mælist fylgi þeirra 57,3 pró­sent. Þá mælist fylgi Sós­í­alista­flokks­ins meira í Reykja­vík en á öðrum stöðum á land­inu, eða 4,7 pró­sent.

[adspot]Aðrir flokkar mæl­ast með minna fylgi í höf­uð­borg­inni en ann­ars­staðar á land­inu. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur stuðn­ings 16,6 pró­sent íbúa hennar, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með tólf pró­sent stuðn­ing, Flokkur fólks­ins með sjö pró­sent og Mið­flokk­ur­inn með ein­ungis 2,4 pró­sent.

Athygli vekur að Píratar mæl­ast stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík með 17,7 pró­sent fylgi. Þar á eftir koma Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin með nán­ast sama fylgi.

Menntunarstig lykilbreyta hjá sumum flokkum

Þegar kemur að menntun þá nær Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn jafnt til allra mennt­un­ar­hópa. Sömu sögu er að segja af Sós­í­alista­flokknum þótt setja verði þann fyr­ir­vara að dreif­ing atkvæða hans byggir á ein­ungis 58 svörum.

[links]Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er lít­il­lega sterk­ari hjá þeim sem eru með minni menntun en þeim sem lokið hafa fram­halds­prófi í háskóla og Píratar lít­il­lega sterk­ari hjá háskóla­mennt­uðum en hjá öðrum kjós­endum. Sam­fylk­ingin, Vinstri græn og Viðreisn sækja hins vegar mun meiri stuðn­ing til háskóla­mennt­aðra en ann­arra hópa. Það er sér­stak­lega eft­ir­tekt­ar­vert í til­felli Sam­fylk­ing­ar­innar, sem nýtur 19 pró­sent stuðn­ings hjá þeim sem hafa lokið fram­halds­prófi í háskóla en ein­ungis 8,7 pró­sent hjá þeim sem hafa mest lokið grunn­skóla­prófi.

Vænt­an­legir kjós­endur Flokks fólks­ins og Mið­flokks­ins til­heyra nán­ast allir þeim hópum sem mest lokið hafa grunn- eða fram­halds­skóla­prófi. Stuðn­ingur við þá flokka á meðal háskóla­mennt­aðra mælist afar lít­ill.

Þegar horft er á stuðn­ing eftir tekjum vekur mesta eft­ir­tekt að Vinstri græn og Viðreisn njóta meiri stuðn­ings í efsta tekju­hópnum, hjá þeim sem eru með 1,2 millj­ónir króna í heim­il­is­tekjur á mán­uði eða meira, en nokkrum öðrum tekju­hópi en Flokkur fólks­ins og Sós­í­alista­flokk­ur­inn sækja mestan stuðn­ing til lægsta tekju­hóps­ins, þess sem er með minna en 400 þús­und krónur í tekjur á mán­uði.

Könn­unin var lögð fyrir Þjóð­gátt Mask­ínu, sem er þjóð­hópur fólks sem dreg­inn er með til­viljun úr Þjóð­skrá, á net­inu. Alls voru svar­endur 1.548 tals­ins af öllu land­inu. Svar­endur eru alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð sam­kvæmt Þjóð­skrá og end­ur­spegla því þjóð­ina prýði­lega. Könn­unin fór fram dag­ana 6. til 19. jan­úar 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár