Samfylking og Píratar bæta við sig en Sjálfstæðisflokkur langt undir kjörfylgi

Sjö flokkar næðu inn á þing ef kosið yrði í dag. Mið­flokk­ur­inn heldur áfram að hverfa og Vinstri græn mæl­ast nú fimmti stærsti flokkur lands­ins.

Gengi stjórnarflokkanna er misjafnt samkvæmt nýjustu könnun Maskínu.
Gengi stjórn­ar­flokk­anna er mis­jafnt sam­kvæmt nýj­ustu könnun Maskínu. Mynd: Bára Huld Beck

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks dalar um 3,2 pró­sentu­stig milli mán­aða og mælist nú 20,1 pró­sent sam­kvæmt nýj­ustu könnun Maskínu. Flokk­ur­inn er nú að mæl­ast 4,3 pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi sínu.

Þótt Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé enn stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt mæl­ingum þá er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn nú ekki langt undan með 17,8 pró­sent fylgi. Fylgi þess flokks eykst um þrjú pró­sentu­stig milli mán­aða og er nú aðeins yfir því sem Framsókn fékk í kosn­ing­unum í haust.

Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herra, bæta líka við sig á milli mán­aða og mæl­ast nú með 11,2 pró­sent fylgi, sem er samt sem áður 1,5 pró­sentu­stigum frá því sem kom upp úr kjör­köss­unum í síð­ustu kosn­ingum. Flokk­ur­inn mælist nú sá fimmti stærsti á þingi.

Þeir flokkar í stjórn­ar­and­stöð­unni sem hafa bætt við sig mestu fylgi sam­kvæmt könn­unum frá því í síð­ustu kosn­ingum eru Píratar og Sam­fylk­ingin. Píratar mæl­ast nú með 13,5 pró­sent fylgi sem er 4,9 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2021.

Sam­fylk­ingin mælist með 12,3 pró­sent fylgi sem er þremur pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn mæld­ist með í des­em­ber og 2,4 pró­sentu­stigum meira en hann fékk í síð­ustu kosn­ingum.

Viðreisn mælist með 9,2 pró­sent fylgi sem er 0,9 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í sept­em­ber.

[adspot]Flokkur fólks­ins mælist með 8,5 pró­sent fylgi sem er nán­ast það sama og flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum þegar 8,8 pró­sent kjós­enda kusu hann.

Mið­flokk­ur­inn, sem beið afhroð í síð­ustu kosn­ingum og tap­aði helm­ingnum af fylgi sínu, heldur áfram að dala og mælist nú með 3,7 pró­sent fylgi. Það er sama fylgi og Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist með, og myndi þýða að ósenni­legt væri að flokk­arnir tveir næðu inn manni ef kosið yrði í dag.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks sem dreg­inn er með til­viljun úr Þjóðskrá, á net­inu. Alls voru svar­endur 1.548 tals­ins af öllu land­inu. Svar­endur eru alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð sam­kvæmt Þjóðskrá og end­ur­spegla því þjóð­ina prýði­lega. Könnunin fór fram dag­ana 6. til 19. jan­úar 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár