Fréttir

Friðrik keypti varð­skip gegnum Rík­is­kaup og græddi 40 millj­ónir við söl­una

Friðrik Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri LÍÚ, sem heitir SFS í dag, keypti tvö varð­skip af íslenska rík­inu eftir útboð hjá Rík­is­kaupum og seldi þau til Tyrk­lands fyrir tæp­lega 40 millj­ónum krónum meira en hann greiddi fyrir þau. Hann var á sama tíma for­maður nefndar sem starf­aði með Rík­is­kaupum um smíði nýs rann­sókna­skips fyrir Haf­rann­sókna­stofnun.
FréttirPressa

„Fólk sem hefur ekk­ert að fela vill hafa svona hluti uppi á borðum“

Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, segir að stofn­unin hafi ekki fjár­hags­legt bol­magn til þess að hafa yfir­sýn yfir stjórn­unar- og eign­ar­tengsl sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á Íslandi. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hóf nýverið rann­sókn á tengslum Samherja og Sílda­vinnsl­unar, en SKE hefur rann­sakað tengsl þeirra í rúm­lega tíu ár.
GreiningSameining VÍS og Fossa

VÍS borg­aði 2,7 millj­arða króna yfir­verð fyrir Fossa vegna vöru­merkis og við­skipta­vildar

Eitt af stóru trygg­inga­fé­lögum lands­ins, VÍS, keypti fjár­fest­inga­bank­ann Fossa í fyrra fyrir alls 4,7 millj­arða króna í fyrra. End­an­lega verðið var nokkuð frá því sem áður hafði verið í umræð­unni og í nýbirtum árs­reikn­ingi kemur fram að stærsti hluti kaup­verðs­ins hafi verið svo­kallað yfir­verð. Verð sem greitt var fyrir eitt­hvað annað en virði eigna Fossa. Í þessu til­felli vöru­merki og við­skipta­vild.
Viðskipti

Við­skipta­vild helm­ing­ur­inn af 5,5 millj­arða kaupum Kviku af hlut­höfum bank­ans

Almenn­ings­hluta­fé­lagið Kvika, sem er meðal ann­ars í eigu líf­eyr­is­sjóða, keypti meiri­hluta í bresku fast­eigna­veð­lána­fyr­ir­tæki árið 2022. Fyr­ir­tækið var áður í eigu for­stjóra Kviku, Ármanns Þor­valds­sonar, sem starf­aði þar í nokkur ár. Þeir sem seldu Kviku fyr­ir­tækið voru meðal ann­ars stærsti einka­að­il­inn í hlut­hafa­hópi bank­ans, Stoðir. FME hefur áður sektað Kviku út af við­skiptum sem tengj­ast Ortus. Kvika segir ekk­ert athuga­vert við við­skiptin og að hlut­laustir utan­að­kom­andi sér­fræð­ingar hafi komið að þeim.

Mest lesið undanfarið ár