Eins og hvert annað hunds­bit Mynd: Golli

Vestfirsk verslunarferð

Það hafði lítil sem engin áhrif á mat­ar­inn­kaup Ísfirð­inga þótt raf­magns­laust yrði síð­degis á fimmtu­dag fyrir viku. Raf­magns­trufl­anir og jafn­vel raf­magns­leysi er ekki eitt­hvað sem Vest­firð­ingar kippa sér sér­stak­lega upp við. Þúsundir lítra af olíu eru brenndir árlega til að bæta upp fyrir óstöðugt raf­magn.

Rétt fyrir klukkan hálf fimm síð­degis fimmtu­dag­inn 22. þessa mán­aðar voru vel á þriðja tug heima­manna að versla inn í Nettó-versl­un­inni við Hafn­ar­stræti á Ísafirði. Sumir eflaust að sæta lagi og gera helg­ar­inn­kaupin snemma, en aðrir að ná sér í efni­við í kvöld­mat áður en bær­inn sjálfur yrði ill­fær vegna yfir­stand­andi vetr­ar­lægðar. Skyndi­lega varð allt svart, fyrir utan litla birtu af raf­hlöðu­drifnum örygg­is­ljósum.

Og þótt tón­listin sem venju­lega hljómar í bak­grunni slíkra versl­ana væri þögnuð vegna útslátt­ar­ins, var ekki fyllt upp í þá þögn með and­köfum eða geðs­hrær­ingu. Ljóstírur frá vasa­ljósum far­síma kvikn­uðu um alla versl­un­ina og við­skipta­vinir sem voru að koma tóku sér inn­kaupa­kerrur og gerðu sig lík­lega til að byrja að tína ofan í þær eftir að hafa seilst eftir símum sínum.

Næstu tíu mín­út­urnar héldu menn og konur svo áfram að sinna erindum sínum, teygja sig eftir mjólk, brauði og kjöt­meti með annarri hendi …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár