FréttirLaxeldi

Svört skýrsla MAST um far­aldur laxalúsar: Gagnrýna lax­eld­is­fyr­ir­tækin

Mat­væla­stofnun hefur gefið út gagn­rýna skýrslu um laxalúsafar­aldur hjá lax­eld­is­fyr­ir­tækj­unum Arnarlax og Arctic Fish í Tálkna­firði nú í haust. Stofn­unin gagn­rýnir fyr­ir­tækin fyrir að hafa ekki verið nægi­lega við­búin fyrir far­ald­ur­inn. Stofn­unin vill að lög verði sett til að koma í veg fyrir að sam­bæri­legur far­aldur end­ur­taki sig.
FréttirReykjaneseldar

Almanna­varnir sveit­ar­fé­lag­anna í ólestri

Mikill meiri­hluti sveit­ar­fé­laga hefur ekki fram­kvæmt eða skilað grein­ingu á áhættu og áfalla­þoli til Almanna­varna. Meðal þeirra eru Grinda­vík og Suð­ur­nesja­bær á Reykja­nesskaga og fjöl­menn sveit­ar­fé­lög eins og Kópa­vogs­bær. Þær grein­ingar sem hafa verið gerðar mála upp mynd af víð­tækum van­bún­aði og van­getu til að kljást við áföll, á tímum nýrra áskor­ana eins og Reykja­nes­elda.

10 mín. lestur

FréttirFöst á Gaza

Sema segir engar mútur hafa verið greiddar – Ráðamenn reyni að sverta mann­orð sjálf­boða­liða

Stofn­andi og for­seti Solaris, sem hefur unnið að því að koma dval­ar­leyf­is­höfum frá Gaza til Íslands, segir það „gjör­sam­lega sturlað“ að fylgj­ast með ráð­herrum í rík­is­stjórn Íslands, stofn­unum og þing­fólki sem ýji ítrekað að því að hún og aðrir sjálf­boða­liðar séu að brjóta af sér „og jafn­vel fremja lög­brot í við­leitni okkar til að koma fólki undan þjóð­ern­is­hreins­unum.“
Greining

Þor­steinn Már og Helga eiga rúm­lega 71 millj­arð og skulda nán­ast ekki neitt

Miklar breyt­ingar hafa verið gerðar á Sam­herj­a­sam­stæð­unni á síð­ustu árum og eign­ar­hald á henni að stóru leyti fært yfir til barna stofn­enda fyr­ir­tæk­is­ins. Félag í eigu barna Þor­steins Más Bald­vins­sonar sem fékk selj­enda­lán frá for­eldrum sínum til að kaupa hlut þeirra í Samherja hefur ein­ungis greitt vexti af lán­inu og hagn­ast alls um 16 millj­arða króna á þremur árum.
Aðsent

Helgi Þór Ingason

1500 millj­arðar á 20 árum til inn­viða­verk­efna á Íslandi

„Kröf­urnar hafa auk­ist og mikil og vax­andi eft­ir­spurn er í sam­fé­lag­inu eftir reynslu­miklu og fag­mennt­uðu fólki til að leiða umfangs­mikil og kostn­að­ar­söm verk­efni á vegum opin­berra aðila og einka­að­ila á kom­andi árum,“ segir Helgi Þór Ingason, pró­fessor við verk­fræði­deild Háskól­ans í Reykja­vík, um MPM námið við HR í aðsendri grein.
Fréttir

Rektor Háskóla Íslands segir til­boð ráð­herra hafa gert erf­iða fjár­hags­stöðu skól­ans verri

Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, segir að til­boð háskóla­ráð­herra til sjálf­stætt starf­andi háskóla vera umfangs­mikla stefnu­breyt­ingu í fjár­mögnun háskóla­kerf­is­ins. Ekkert sam­ráð hafi verið haft við stjórn­endur skól­ans en ljóst þykir að breyt­ingin muni að óbreyttu hafa nei­kvæð áhrif á fjár­hags­stöðu skól­ans sem sé nú þegar erfið. HÍ sé far­inn að hug­leiða að leggja niður náms­leiðir.

Mest lesið undanfarið ár