Þorsteinn Már og Helga eiga rúmlega 71 milljarð og skulda nánast ekki neitt

Þorsteinn Már og Helga eiga rúmlega 71 milljarð og skulda nánast ekki neitt

Miklar breyt­ingar hafa verið gerðar á Sam­herj­a­sam­stæð­unni á síð­ustu árum og eign­ar­hald á henni að stóru leyti fært yfir til barna stofn­enda fyr­ir­tæk­is­ins. Félag í eigu barna Þor­steins Más Bald­vins­sonar sem fékk selj­enda­lán frá for­eldrum sínum til að kaupa hlut þeirra í Samherja hefur ein­ungis greitt vexti af lán­inu og hagn­ast alls um 16 millj­arða króna á þremur árum.

Fjár­fest­inga­fé­lag í eigu Þor­steins Más Bald­vins­son, for­stjóra Samherja, og Helgu S. Guð­munds­dóttur, fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, hagn­að­ist um 11,7 millj­arða króna á árinu 2022. Félagið, 600 eign­ar­halds­fé­lag ehf., á eignir sem metnar eru á 36 millj­arða króna en er nán­ast skuld­laust. Eina skuld þess er 1,6 millj­ónir króna skuld við tengdan aðila. 

Eigið fé hjón­anna fyrr­ver­andi inni í félag­inu var því 36 millj­arðar króna fyrir 14 mán­uðum síðan.

Það eru alls ekki einu eignir þeirra. 600 eign­ar­halds­fé­lag á syst­ur­fé­lag, Eign­ar­halds­fé­lagið Stein, sem er líka í eigu Þor­steins Más og Helgu. Eigið fé þess félags í lok árs 2022 var 35,4 millj­arðar króna. Samtals áttu hjónin fyrr­ver­andi því rúm­lega 71 millj­arð króna í hreinni eign í þessum tveimur félögum í lok umrædds árs. 

Um er að ræða fé sem …

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÞÓ
    Þórarinn Ólafsson skrifaði
    Kemst því miður ekki inn á þessa grein !
    0
  • Hilmar Baldursson skrifaði
    Gott að vita til þess að þau geta fengið frítt í soðið öðru hvoru
    2
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Allt snýst þetta um að maka krókinn. Mammon sér um sína.
    3
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Hvenær mun samfélagið taka á arðráni sumra einstaklinga vegna fiskveiði kvóta einstaklinga?
    Er einhver stafur sem segið að þó svo að kvóta sé útdeild, þá skuli það vara endanlegt?
    Er ekki í lögum að auðlind innan lögsögu Íslands sé þjóðarinnar??
    Eða er hér um að ræða auða lind fyrir samfélagið?
    Er það svo að kvótahafar stjórna þjóðinni?
    6
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    ,,fjölmiðillinn fékk til að fara yfir ástæðu tilfærslnanna að líklega væri um að ræða fyrsta skrefið í þá átt að færa útgerðarfélagið inn í þetta sama eignarhaldsfélag með tíð og tíma. Ástæðan er sú að ef útgerðarfélagið er í eigu eignarhaldsfélags þá getur Samherji greitt arð af rekstri útgerðarinnar þangað án þess að hann myndi skattskyldar tekjur og Látrafjöll getur svo fjárfest áfram fyrir þessa peninga án skattlagningar." Er þá aðalmál Samherjamanna að komast hjá að taka þátt í íslensku samfélagi ?
    14
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár