Fréttir

Óháður bók­ari skoð­aði fjár­reiður Blaða­manna­fé­lags­ins ára­tug aftur í tím­ann

Blaða­manna­fé­lag Íslands hefur sent KPMG nið­ur­stöður í rýni á fjár­reiðum félags­ins síð­ustu tíu ár og óskað eftir því að fyr­ir­tækið skili sér skýrslu um þær. Skýrslan verður kynnt félags­mönnum í síð­asta lagi um miðjan næsta mánuð. Fram­kvæmda­stjóri félags­ins til tveggja ára­tuga var rek­inn í jan­úar.
Fréttir

Lilja treystir því að fjár­mála­ráð­herra hafi gætt að eigin hæfi

Í nýjasta þætti Pressu ræddu Lilja Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra og Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, um nýleg kaup Lands­bank­ans á TM og við­brögð ráð­herra við þeim við­skiptum. Spurð hvort Þórdís Kolbrún hafi gætt að sínu hæfi áður en hún hóf afskipti af sölu­ferl­inu sagð­ist Lilja treysta því að svo væri.
Fréttir

Bankaráð Lands­bank­ans svarar fyrir sig

Bankaráð Lands­bank­ans sendi fyrir stuttu frá sér til­kynn­ingu um að það hafi svarað bréfi Banka­sýslu rík­is­ins sem stofn­unin sendi ráð­inu 18. mars síð­ast­lið­inn. Í svari banka­ráðs kemur fram að ráðið hafi upp­lýst Banka­sýsl­una um fyr­ir­huguð kaup Lands­bank­ans á TM og Banka­sýslan hafi ekki gert neinar athuga­semdir fyrr en eftir skuld­bind­andi til­boð var sam­þykkt.
Greining

Rík­is­banka stýrt í gegnum hlað­varp, Facebook-færslu og stofnun sem leggja á niður

Banki hefur ákveðið að kaupa trygg­inga­fé­lag. Bankaráð hans telur sig mega það. Kaupin séu í sam­ræmi við eig­enda­stefnu stjórn­valda. Það telur sig líka hafa upp­lýst stofn­un­ina sem fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í bank­anum um mála­vexti, en hún kann­ast ekk­ert við það. Ráð­herr­ann sem fer svo með hluta­bréf rík­is­ins í bank­anum birti Facebook-færslu þar sem hann lagð­ist gegn kaup­unum og sagð­ist hafa gefið út yfir­lýs­ingu þess efnis. Það var gert í hlað­varpi.

10 mín. lestur

Viðtal

Ég teikn­aði hyl­dýpi – en ég réði við það: Myndlist sem tæki til að skoða eigin huga og til­finn­ingar

Ágústa Odds­dóttir hlaut sér­staka við­ur­kenn­ingu á útgefnu efni um mynd­list þegar Íslensku mynd­list­ar­verð­launin voru afhent. Við­ur­kenn­ing­una hlaut hún fyrir bók­ina Art Can Heal, sem er um list­þerapíu og starf Sigríðar Björns­dóttur. Bókin er listi­legur gripur, bók­verk fremur en hefð­bundin bók, en hún kom út á ensku. En hver er Sigríður Björns­dóttir?

15 mín. lestur

FréttirLaxeldi

Arctic Fish segir að far­aldur laxalúsar hafi leitt til slysa­slepp­ingar hjá fyr­ir­tæk­inu

Nýjar skýr­ingar en áður hafa komið fram á slysa­slepp­ing­unni hjá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish er að finna í árs­reikn­ingi þess fyrir síð­asta ár. Þar segir að lúsafar­aldur hjá fyr­ir­tæk­inu hafi leitt til þess að eld­is­laxar sluppu úr sjó­kví fyr­ir­tæk­is­ins. For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Stein Ove-Tveiten segir að laxalúsin sé ekki bein ástæða fyrir slysa­slepp­ing­unni heldur und­ir­liggj­andi ástæða.

Mest lesið undanfarið ár