Alla leið Felix Bergsson og Baldur Þór­halls­son inn­sigla for­seta­fram­boðið með kossi. Mynd: Golli

Ætlar ekki í kónga- eða drottningaleik

Baldur Þór­halls­son ætlar ekki að fara í kónga- eða drottn­inga­leik á Bessa­stöðum, verði hann kjör­inn for­seti. Það yrðu heim­s­tíð­indi nái hann kjöri og verði þar með fyrsti þjóð­kjörni opin­ber­lega sam­kyn­hneigði for­set­inn í heim­inum. En það er ekki ein­göngu þess vegna sem Baldur býður sig fram.

Það er vor­jafn­dægur og alþjóð­legur dagur ham­ingj­unnar. Þetta er líka dag­ur­inn sem Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands, til­kynnir fram­boð til for­seta Íslands. 

Valgeir Magn­ús­son, Valli sport, tekur á móti for­vitnum gestum sem hafa lagt leið sína í Bæjarbíó í Hafn­ar­firði til að heyra „Baldur og Felix opin­bera ákvörðun sína“. Það er einmitt yfir­skrift fund­ar­ins. 

„Hvað á ég að segja, gleði­lega hátíð?“ sagði fund­ar­gestur þegar hann heils­aði. En þetta var ekki eins og hefð­bund­inn fundur. Það var ein­hver hátíð­ar­bragur á öllu saman. Í bland við gott partí. Þegar Valli sport var búinn að bjóða gesti vel­komna tóku hjónin Gunnar Helgason og Björk Jak­obs­dóttir við. Rúmar tvær vikur eru síðan Gunni stofn­aði stuðn­ings­hóp á Facebook, Baldur og Felix – Alla leið, sem telur nú yfir 21 þús­und manns. Og nú var komið að þessu. „Það hefur bara mynd­ast bylgja. Við áttum ekki von á þessu,“ segir Gunni, en allt byrj­aði þetta á nýárs­dag þegar hjónin voru stödd í afmæli hjá Felix Bergs­syni. Þar skor­aði Gunni á vin sinn og sam­starfs­fé­laga til margra ára að bjóða sig fram til for­seta þegar ljóst var að Guðni Th. Jóhann­es­son ætl­aði að láta gott heita. „Hann bara hló og leit á Baldur og það kom smá skrýt­inn svipur á Baldur,“ segir Gunni. Tveimur vikum seinna boð­uðu Baldur og Felix til fundar á heim­ili þeirra þar sem mögu­leik­inn á for­seta­fram­boði var ræddur af alvöru. „Það var eitt­hvað þegar Baldur byrj­aði að tala, ég fékk bara svona: Já! Mig langar í svona for­seta,“ segir Björk og Gunni tekur undir. „Ég líka. Ég hef aldrei verið svona pepp­aður. Ég hef aldrei farið inn í kosn­inga­bar­áttu, aldrei nokkurn tíma, aldrei haft áhuga á því, fyrr en þarna. Hann verður besti for­set­inn.“

Felix kynnti eig­in­mann sinn á svið, sem hann hefur varið helm­ingi ævinnar með. „Þetta eru bestu 28 ár ævi minnar. Og hann er hér í dag.“ Allir í salnum risu á fætur og klöpp­uðu. Baldur steig á svið og það mátti greina örlítið stress í fasi, eðli­lega kannski. Hann þakk­aði fyrir trúna og hvatn­ing­una. Síðustu vikur hefur hann talað um mik­il­vægi þess að hlusta á raddir fólks­ins. „Við ætlum að svara kall­inu hátt og skýrt og taka slag­inn,“ sagði Baldur og sal­ur­inn klapp­aði aftur. 

Voru næstum hættir við

„Þetta er hálf óraun­veru­legt. Ég hef ekki séð mig í þessu hlut­verki, sem for­seta­fram­bjóð­andi, við Felix höfum ekki séð okkur í þessu hlut­verki. Ég við­ur­kenni að þetta er erfið ákvörðun, við höfum verið mjög feimnir gagn­vart þessu,“ sagði Baldur við blaða­konu Heim­ild­ar­innar að fund­inum loknum. En þeir voru næstum því hættir við fyrir fjórum vikum, það við­ur­kennir Felix. Eldræða sem Árni Freyr Magn­ús­son, tengda­sonur þeirra og eig­in­maður Álfrúnar Perlu Bald­urs­dóttur, hélt yfir þeim um mik­il­vægi þess að Baldur færi fram gerði það að verkum að Felix sá fyrir sér að fram­boðið gæti raun­gerst. „Það var þarna þegar Árni Freyr húð­skamm­aði okkur fyrir að vera svona latir sem ég gerði mér grein fyrir að þetta væri að fara að ger­ast.“

Athygl­inni sem fylgir fram­boð­inu mun taka sinn tíma að venj­ast segir Baldur og það verða mikil við­brigði ef Baldur og Felix fara alla leið á Bessa­staði. „Við Felix höfum enga þörf fyrir að trana okkur sjálfum fram. Menn eiga ekki að fara í drottn­inga- eða kónga­leiki á Bessa­stöðum. Ég er algjör­lega á móti því. Ég vildi að það yrði mál­efna­legur grund­völlur fyrir fram­boð­inu og líka að það væri víð­tækur stuðn­ingur.“ Nú er það staðan.  

Fram­boðið hefur áhrif á dag­leg störf Felix hjá Rík­is­út­varp­inu. „Ég er búinn að stimpla mig út, að minnsta kosti næstu tvo mán­uði, svo fer það eftir því hvernig kosn­ing­arnar fara hver næstu skref verða. Og ég verð ekki í for­grunni í Eurovision. Það er bara frá­bært fólk sem tekur við þeim kyndli. Ég fer ekki með til Malmö.“

„En hvað verður um Gunna og Felix?“ er ein spurn­ing­anna sem heyra mátti í Bæjarbíó og Felix hlær góð­lát­lega. „Það er stóra spurn­ingin. Við erum bók­aðir fullt í sumar og ég held að þær bók­anir verði bara virtar, við ætlum að fara á nátt­úru­barna­há­tíð á Ströndum og ýmis­legt annað skemmti­legt,“ segir Felix.  

Ódauðlegt dúó

Verði Baldur kjör­inn for­seti verður hann fyrsti þjóð­kjörni opin­ber­lega sam­kyn­hneigði for­set­inn í heim­inum. „Það yrðu heim­s­tíð­indi. En það er ekki bara vegna þess sem við stígum fram, en það er ein af ástæð­unum,“ segir Baldur.

„Það yrðu heim­s­tíð­indi“

Nái Baldur kjöri ætlar hann að standa vörð um þjóð­ina, horfa á það sem sam­einar hana frekar en sundrar og standa vörð um sam­fé­lags­sátt­mál­ann. Fjöl­skylda Baldurs og Felix stendur þétt við bakið á þeim og það fór ekki á milli mála á fund­inum í Bæjarbíó að þau eru öll í þessu saman. Guð­mundur Felixson segir þau vera sam­heldna fjöl­skyldu, þannig hafi það alltaf verið. Þau eru sterk fjöl­skyldu­heild. „Við erum alltaf saman ein­hvern veg­inn. Það er bara eðli­legt að við séum svo­lítið með í þessu. Þeir tveir eru ódauð­legt dúó þannig manni finnst liggja bein­ast við að þeir fari í þetta saman, þennan pakka.“ Það yrði sterkt fyrir íslensku þjóð­ina að kjósa Baldur sem for­seta, að mati Guð­mundar. „Við erum búin að vera að upp­lifa mikið bakslag í hinsegin bar­átt­unni sem mér finnst mjög skýrt að sé til staðar, sem er ótrú­lega sorg­leg þróun. Mér fynd­ist rosa­lega sterkt hjá okkur sem þjóð að kjósa okkur þjóð­ar­leið­toga sem er hinsegin.“

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásta Jensen skrifaði
    Hverju skiptir það að hann sé samkynhneigður?
    0
  • APA
    Axel Pétur Axelsson skrifaði
    þessi auglýsing er í boði znato&co . .
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár