Ríkisbanka stýrt í gegnum hlaðvarp, Facebook-færslu og stofnun sem leggja á niður
Átök Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, og Helga Björk Eiríks­dóttir, fær áður banka­ráðs hans, eru í átökum um hvað bank­inn má gera við Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, fjár­mála- og efna­hags­ràð­herra, og Jón Gunnar Jónsson, for­stjóra Banka­sýsl­unnar

Ríkisbanka stýrt í gegnum hlaðvarp, Facebook-færslu og stofnun sem leggja á niður

Banki hefur ákveðið að kaupa trygg­inga­fé­lag. Bankaráð hans telur sig mega það. Kaupin séu í sam­ræmi við eig­enda­stefnu stjórn­valda. Það telur sig líka hafa upp­lýst stofn­un­ina sem fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í bank­anum um mála­vexti, en hún kann­ast ekk­ert við það. Ráð­herr­ann sem fer svo með hluta­bréf rík­is­ins í bank­anum birti Facebook-færslu þar sem hann lagð­ist gegn kaup­unum og sagð­ist hafa gefið út yfir­lýs­ingu þess efnis. Það var gert í hlað­varpi.

Lands­bank­inn, að mestu í eigu íslenska rík­is­ins, hefur ákveðið að kaupa trygg­inga­fé­lagið TM á 28,6 millj­arða króna af Kviku banka. Frá þessu var greint á sunnu­dag. Stjórn­endur og banka­ráð bank­ans telja þetta góða fjár­fest­ingu sem muni styrkja hann og auka virði hlut­hafa. 

Skömmu eftir að kaupin, sem eru án fyr­ir­vara um sam­þykki hlut­hafa­fundar, voru kynnt kom í ljós að sá stjórn­mála­maður sem heldur á eign­ar­hlutum í Lands­bank­anum, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herr­ann Þórdís Kolbrún Gylfa­dóttir, var ekki par sátt við þessi kaup. Og þau virt­ust koma henni mjög á óvart. Hún birti Facebook-færslu á sunnu­dags­kvöld þar sem hún sagð­ist hafa óskað „skýr­inga á mál­inu frá Banka­sýslu rík­is­ins sem heldur um eign­ar­hluti rík­is­ins í bank­anum og setur almenn við­mið um áherslur í rekstri auk þess að fylgja eftir eig­enda­stefnu rík­is­ins“.

Daginn eftir, mánu­dag­inn 18. mars, sendi Þórdís bréf á Banka­sýslu rík­is­ins, und­ir­stofnun ráð­herr­ans, sem sett var á lagg­irnar árið 2009 til …

Kjósa
62
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Afar fróðleg grein og flott yfirlit.
    Það er líka fróðlegt að renna yfir gögn vegna aðalfundar Lb, sem átti að vera í fyrradag, og eru aðgengileg á netinu, t.d.: https://arsskyrsla.landsbankinn.is/stjorn-og-skipulag/avarp-formanns-bankarads
    Formaður bankaráðs minnist í engu á viðskipti með TM, ekki heldur bankastjórinn.

    Svo má sjá að bankaráðsfólk er ekki ókunnugt tryggingageiranum og spurningar um hæfi og hagsmuni þeirra hljóta að vakna:

    Elín var stjórnarformaður TM..
    Guðrún var í stjórn Varðar og Varðar líftrygginga.
    Varamaður, Sigríður, er í tilnefningarnefnd Sjóvá.
    1
  • KB
    Kristinn Björnsson skrifaði
    Þetta snerti aldrei þjóðarhagsmuni, þetta er allt hluti af tíðaranda samtímans sjálflægni og narsissisma.

    "Víða í stjórnmálum, jafnt innan ríkisstjórnar, í stjórnarandstöðu og innan viðskiptalífsins, eru uppi efasemdir hjá viðmælendum Heimildarinnar um að viðeigandi sé að Þórdís Kolbrún skipti sér af söluferlinu með bankann.

    Ekki vegna þess að hana skorti getu til þess, heldur vegna þess að bróðir hennar, Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, er forstjóri fjárfestingafélagsins Skeljar. Skel er næststærsti eigandi tryggingafélagsins VÍS, samkeppnisaðila TM, með 8,23 prósent eignarhlut og Ásgeir situr í stjórn VÍS. "
    1
  • KB
    Kristján Baldursson skrifaði
    Ótrúlegur farsi
    2
    • Olafur Kristjansson skrifaði
      Víst er það farsi, en ætti ekki að koma á óvart.
      1
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Enn ein falleinkunn stjórnsýslunnar.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár