Fréttir

Ólga og upp­sögn eftir aðal­fund Pírata

Píratar vinna að sátt­ar­til­lögu sem sögð er fela í sér umdeildar breyt­ingar á fram­kvæmda­stjórn flokks­ins. Ágrein­ingur bloss­aði upp á milli frá­far­andi og nýkjör­innar stjórnar í kjöl­far kosn­ingar á nýrri fram­kvæmda­stjórn. Atla Þór Fanndal, sam­skipta­stjóra Pírata var sagt upp skömmu eftir aðal­fund­inn. „Ég var lát­inn fara bara vegna bræði þing­flokks­ins yfir þess­ari nið­ur­stöðu,“ segir Atli Þór. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, hafnar lýs­ingu Atla Þórs á atburða­rásinni.

12 mín. lestur

Fréttir

Kjós­endur Mið­flokks mun íhalds­sam­ari en Sjálf­stæð­is­flokks

Stjórn­mála­fræð­ingar við Háskóla Íslands gapa ekki yfir því sem virð­ist raunin, að Mið­flokk­ur­inn sæki nú til íhalds­sam­ari kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins og sópi til sín fylgi úr þeirra röðum. Í vænt­an­legri bók sem byggir á gögnum Íslensku kosn­inga­rann­sókn­ar­innar frá 2021 kemur fram að kjós­endur flokk­anna tveggja eru mjög sam­stiga á hinum hefð­bundna vinstri-hægri ás, en kjós­endur Mið­flokks­ins eru íhalds­sam­ari er kemur að sam­fé­lags- og alþjóða­málum.
Umræða

Kalla eftir því að Samherji felli niður málið gegn íslenska lista­mann­inum

Á þriðja tug alþjóð­legra sam­taka sem berj­ast fyrir því að upp­ljóstr­arar séu vernd­aðir kalla eftir því að Samherji felli niður málið gegn lista­mann­inum Odee vegna lista­verks­ins We're Sorry. Samtökin leggja áherslu á sam­eig­in­legan grund­völl lista­manna og upp­ljóstr­ara hvað varðar mik­il­vægi þess að lýsa upp sann­leik­ann. Þá hefur Lista­há­skóli Íslands ákveðið að taka ekki opin­ber­lega afstöðu í máli Odee en verkið var útskrift­ar­verk­efni hans frá skól­anum.
Greining

Eru kannski að taka ranga hægri beygju

Heim­ildin fékk tvo almanna­tengla sem eru með haus­inn á kafi í póli­tík til að pæla í stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Annar þeirra seg­ist telja að með því að elta orð­ræðu Mið­flokks­ins sé Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að gera sér óleik. „Fólk er almennt ekki ras­istar á Íslandi,“ segir Andrés Jónsson. Björgvin Guð­munds­son segir marga Sjálf­stæð­is­menn í vanda, svo miklum að umræða sé farin af stað um nýtt fram­boð á hægri kant­inum. Og margt hefst með umræðu.

Mest lesið undanfarið ár