Manneskjan er mitt stærsta áhugamál
Viðtal

Mann­eskjan er mitt stærsta áhuga­mál

Á fimmtu­dags­kvöldið var opnuð sýn­ing Hrafn­hildar Arn­ar­dóttur, Shoplifter, í Lista­safni Reykja­víkur en verkið var fram­lag Íslands til Fen­eyjat­ví­ær­ings­ins 2019 og vakti þar mikla athygli. Inn­setn­ingin er ein sú stærsta sem Hrafn­hildur hefur gert en um 100 manns tóku þátt í fram­leiðslu­ferl­inu, meðal ann­ars rokksveitin HAM sem skap­aði tón­verkið. „Mig lang­aði alltaf til þess að skapa risa­vaxið umhverfi, ein­hvers konar fla­um­rændan sýnd­ar­veru­leika sem umlykur fólk,“ segir Hrafn­hildur.
Fyllti upp í tómið með fullvissunni um eitthvað æðra
Hamingjan

Fyllti upp í tómið með full­viss­unni um eitt­hvað æðra

Í Marra­kesh í Marokkó býr Birta Árdal Nóra Berg­steins­dóttir ásamt eig­in­manni og fjórum ungum dætrum. Hjónin eiga áhuga­verða sögu saman en þau giftu sig áður en þau byrj­uðu að vera saman. Áður en Birta flutti til Marokkó hafði hún reynt ýmis­legt til að fylla í „tómið í brjóst­inu“. Henni tókst það á end­anum með því að taka nýja trú og ger­ast múslimi.
Ég er bara ruglaður af því ég trúi á ævintýrið
Viðtal

Ég er bara rugl­aður af því ég trúi á ævin­týrið

Það er hverju sam­fé­lagi nauð­syn­legt að sumir þegnar þess séu gúgúgaga, sem er þá ekk­ert svo gúgúgaga. Þetta segir hand­bolta­goð­sögnin, heim­spek­ing­ur­inn og sagna­mað­ur­inn Ólafur Stef­áns­son. Hann streit­ist á móti því að fest­ast í hlaupa­hjóli hamst­urs­ins, nýtur óvissunnar sem lífið að lok­inni atvinnu­mennsku hefur verið og leitar ævin­týrin og þver­sagnir uppi. Hann óskar öðrum þess að taka líf­inu ekki of alvar­lega og vera þess í stað vak­andi fyrir töfrum og leynd­ar­dómum lífs­ins.
Dæmdur fyrir hryðjuverk fyrir að hvetja til mótmæla gegn tilraunum á dýrum
Viðtal

Dæmdur fyrir hryðju­verk fyrir að hvetja til mót­mæla gegn til­raunum á dýrum

Jake Conroy var ásamt fimm öðrum ung­mennum sóttur til saka af banda­rísku alrík­is­lög­regl­unni fyrir að halda úti vef­síðu sem hvatti til mót­mæla gegn fyr­ir­tæki sem gerði til­raunir á dýrum. Hann var dæmdur til fjög­urra ára fang­els­is­vistar á grund­velli hryðju­verka­laga, en sagan af þessu ótrú­lega máli er nú sögð í heim­ild­ar­mynd­inni The Animal People, sem er með­fram­leidd af Joker-stjörn­unni Joaquin Phoenix.
Of pólsk fyrir Ísland og of íslensk fyrir Pólland
Viðtal

Of pólsk fyrir Ísland og of íslensk fyrir Pólland

Upp til hópa eru Íslend­ingar skeyt­ing­ar­lausir í garð Pólverja og telja þá ekki hafa neitt áhuga­vert eða mik­il­vægt til mál­anna að leggja. Þetta segir pólski lista­mað­ur­inn Wiola Ujazdowska. Hún segir opin­berar lista­stofn­anir bregð­ast því hlut­verki að hlúa að gras­rót fjöl­breyttra lista­manna og gefa þeim rödd í sam­fé­lag­inu sem þeir til­heyra, ekki síður en lista­menn með íslenskrar rætur.
Lásu á netinu að Íslendingar beri virðingu fyrir konum og börnum
Viðtal

Lásu á net­inu að Íslend­ingar beri virð­ingu fyrir konum og börnum

Razia Abassi og Ali Ahmadi, átján og nítján ára nýbak­aðir for­eldrar frá Afganistan, fá ekki að setj­ast að á Íslandi. Þau eign­uð­ust sitt fyrsta barn á Land­spít­al­anum í Reykja­vík annan í jólum. Þau dreymir um að geta veitt nýfæddri dóttur sinni skjól og öryggi sem þau kann­ast sjálf ekki við, en þau hafa verið á flótta síðan þau voru þrettán og fjórtán ára.
„Hamingjugaldurinn ku vera sá, að holuna skal fylla innan frá“
Hamingjan

„Ham­ingju­gald­ur­inn ku vera sá, að hol­una skal fylla innan frá“

Fyrir nokkrum árum rakst Héðinn Unn­steins­son á heil­brigð­is­reglur sem ein for­mæðra hans, Sigríður Jóns­dóttir, hafði sett saman í aðdrag­anda flutn­inga sinna til Vest­ur­heims. Fund­ur­inn kom Héðni skemmti­lega á óvart enda hefur hann í gegnum tíð­ina sjálfur notað hnit­miðuð orð og setn­ingar, jafn­vel ort kvæði, til að skilja og reyna að fanga ham­ingj­una. Hann á bæði heið­ur­inn af geð­orð­unum tíu sem margir hafa á ísskápnum og lífs­orð­unum fjórtán sem voru hans bjarg­ráð á erf­iðum tímum.
„Þær voru ekkert skaplausar, þessar konur“
Viðtal

„Þær voru ekk­ert skap­lausar, þessar konur“

Syst­urnar úr St. Franciskusreglunni settu sinn svip á bæj­ar­lífið í Stykk­is­hólmi, þar sem þær reistu spít­ala, stofn­uðu leik­skóla og prent­smiðju, auk þess sem þær sinntu hjúkrun og ljós­mæðra­störfum. Dagbjört Hösk­ulds­dóttir ólst upp í næsta húsi við klaustrið, þar sem börnin stálu rófum og rifs­berjum. Hún rifjar upp kynni sín af systr­unum, sem er sárt saknað.
„Ég vil vera hamingjusöm að eilífu“
Viðtal

„Ég vil vera ham­ingju­söm að eilífu“

Líf þeirra sem hafa ákveðið að helga sig Guði krefst fórna, en María de la Sabi­duría de la Cruz segir það allt þess virði. Hún kemur úr kaþ­ólskri fjöl­skyldu í Argent­ínu, þær eru fimm systur sem allar eru nunnur. Bróðir þeirra er hins vegar bóndi og fjöl­skyldu­faðir. Sjálf ákvað hún snemma að verða nunna og gekk í klaustur aðeins þrettán ára gömul. Hér á landi elskar hún Nonna­bækur, fjall­göngur og harð­fisk með smjöri.
Kynferðisofbeldið mótaði sýn mína á samfélagið
Viðtal

Kyn­ferð­is­of­beldið mót­aði sýn mína á sam­fé­lagið

Í bók­inni Bréf til mömmu leit­ast rit­höf­und­ur­inn Mikael Torfason eftir því að gera upp æsku sína og áföll í ein­lægum skrifum til móður sinnar. Þar stígur hann fram og greinir frá kyn­ferð­is­of­beldi sem hann varð fyrir á ung­lings­árum. Hann segir það hafa mótað sig sem blaða­mann og síðar rit­stjóra enda einn af braut­ryðj­endum í umfjöll­unum um kyn­ferð­is­mál hér á landi.
Ég myndi hlaupa yfir sjó af glerbrotum
Viðtal

Ég myndi hlaupa yfir sjó af gler­brotum

Í nýút­kominni skáld­sögu minni, Svana­fólkið, er aðal­per­són­unni falið það verk­efni að rann­saka [kyn]hegðun og líðan kvenna í land­inu. Nið­ur­stöður birt­ust ekki í bók­inni en koma fyrir augum les­enda Stund­ar­innar. Bergþóra Snæ­björns­dóttir rit­höf­undur situr í þetta skipti fyrir svörum. Í haust kom út fyrsta skáld­saga hennar, Svíns­höfuð, en áður hefur hún gefið út tvær ljóða­bækur og búið til gjörn­inga með tvíeyk­inu Wunderkind Collective ásamt Rakel McMahon mynd­list­ar­konu. Svíns­höfuð hefur hlotið mikla athygli og lof og er hvort tveggja til­nefnd til Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna og Fjöru­verð­laun­anna.

Mest lesið undanfarið ár