Vitleysan og yfirvegun mín munu sættast þegar ég verð kerling

Í eft­ir­far­andi könnun á almennri líðan og [kyn]hegðun kvenna í skáld­aðri borg situr Fríða Ísberg rit­höf­undur og skáld fyrir svörum. Í haust kom út eftir Fríðu ljóða­bókin Leð­ur­jakka­veður. Áður hafa komið út smá­sagna­safnið Kláði og ljóða­bókin Slitför.

Vitleysan og yfirvegun mín munu sættast þegar ég verð kerling

Fríða er líka ein Svika­skáld­anna, ljóða­kollek­tív sex kvenna sem árlega gefur út ljóða­bók, þær eru orðnar þrjár bæk­urnar í allt og sú nýjasta heitir Nú sker ég net mín. Eftir að ég las Leð­ur­jakka­veður leita ég að hand­tösk­unni „Г í öllum stræt­is­vögn­unum sem ég tek. Að mínu mati hlýtur það að vera himneskt fal­legt að búa til hand­tösku úr þessum fal­lega bók­staf. 

Fríða Ísberg – fædd 1992, lauk grunn­prófi í heim­speki og meist­ara­prófi í rit­list frá Háskóla Íslands – hvert eft­ir­far­andi afla hafa haft – mestu – áhrif á val þitt á lífs­leiðum: guð, sam­fé­lagið, þú sjálf?

Sam­fé­lagið.

Hvert eft­ir­far­andi afla hafa – betri – áhrif á líf þitt almennt talið: guð, sam­fé­lagið, þú sjálf?

Sam­fé­lagið, svo ég, svo guð. 

Hefurðu talað við guð? Talarðu við guð?

Ég tal­aði við guð þangað til ég fermd­ist. 

Misstirðu þá trúna?

Já, ég missti trúna. 

Svaraði guð þér? 

Já, ég held …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár