Lásu á netinu að Íslendingar beri virðingu fyrir konum og börnum

Razia Abassi og Ali Ahmadi, átján og nítján ára nýbak­aðir for­eldrar frá Afganistan, fá ekki að setj­ast að á Íslandi. Þau eign­uð­ust sitt fyrsta barn á Land­spít­al­anum í Reykja­vík annan í jólum. Þau dreymir um að geta veitt nýfæddri dóttur sinni skjól og öryggi sem þau kann­ast sjálf ekki við, en þau hafa verið á flótta síðan þau voru þrettán og fjórtán ára.

Lásu á netinu að Íslendingar beri virðingu fyrir konum og börnum
Ali og Razia Þau voru 15 og 14 ára þegar þau flúðu Afganistan. Í dag eru þau 19 og 18 ára, nýbúin að eign­ast sitt fyrsta barn og búa við full­komna óvissu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Það eru ekki bein­línis heim­il­is­legar kveðjur á úti­dyra­hurð­inni þar sem bankað er upp á í ein­mana­legri blokk að Ásbrú í Reykja­nesbæ: Óvið­kom­andi bann­aður aðgangur. Þegar inn er komið verður gestum líka strax ljóst að þetta er ekki heim­ili, jafn­vel þó að þarna dvelji ung hjón sem eru nýbúin að eign­ast sitt fyrsta barn. Íbúðin er rúm­góð og hrein­leg en áþreif­an­lega óper­sónu­leg. Engar myndir á veggjum eða munir sem benda til þess að hér búi fjöl­skylda, ef frá eru skildar nokkrar ljós­myndir af litlum börnum, sem hafa verið límdar með lím­bandi upp á vegg fyrir ofan ósam­stætt sófa­sett í miðju íbúð­ar­innar. 

Þetta er heldur ekki heim­ili, heldur hús­næði sem hæl­is­leit­endur sem hafa börn á fram­færi eða eiga von á barni dvelja í meðan þeir bíða svars við því hvort þau fái að dvelja á Íslandi eða ekki. Hér hafa þau samt sem áður búið og beðið í nær hálft ár, Ali Ahmadi og Razia Abassi, nítján og átján ára gömul hjón ættuð frá Afganistan. Þeim hefur verið synjað um alþjóð­lega vernd á Íslandi, þrátt fyrir að vera korn­ung, hafa verið á flótta frá því þau voru börn og nú með korna­barn á sínu fram­færi. 

Stjórnvöldum til skammar

Í des­em­ber var þeim Ali og Raziu birt sú ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar að þau fengju ekki alþjóð­lega vernd á Íslandi, á grund­velli þess að þau hefðu þegar vernd í Grikk­landi. Sú ákvörðun var kærð fyrir þeirra hönd til kæru­nefndar útlend­inga­mála, sem stað­festi ákvörð­un­ina. Fram að þessum tíma­punkti í umsókn­ar­ferl­inu um alþjóð­lega vernd eru tals­menn hæl­is­leit­enda hjá Rauða kross­inum fólki til aðstoðar. Eftir að synjun fæst taka í sumum til­vikum sjálf­stætt starf­andi lög­menn við mál­unum. 

Magnús Davíð Norðdahl er nú tek­inn við máli hjón­anna og hefur hann lagt fram tvær kröfur til kæru­nefnd­ar­innar. Annars vegar um frestun rétt­ar­á­hrifa og hins vegar um end­ur­upp­töku máls­ins. Verði fall­ist á end­ur­upp­töku­kröf­una fær mál þeirra efn­is­lega með­ferð og þá er sá mögu­leiki til staðar að þau fái alþjóð­lega vernd. Krafan um frestun rétt­ar­á­hrifa snýr að því að fari mál hjón­anna fyrir dóm fái þau að vera á Íslandi á meðan dóms­málið er í gangi.

Alls er óvíst hvort fall­ist verður á kröf­urnar og hvenær hjónin mega eiga von á að verða flutt úr landi. Það er hins vegar ekk­ert sem bannar stjórn­völdum að flytja þau úr landi núna, þó að ólík­legt þyki að það verði gert á allra næstu vikum. „Þetta mál er sama merki brennt og mörg önnur sam­bæri­leg mál. Það skortir á mann­úð­lega nálgun hjá íslenskum stjórn­völdum þegar kemur að börnum á flótta. Komi til þess að brott­vísun verði fram­kvæmd er það íslenskum stjórn­völdum til hábor­innar skammar, enda eru skil­yrði upp­fyllt til að taka þetta mál til efn­is­með­ferðar, and­stætt mati stjórn­valda,“ sagði Magnús þegar blaða­maður hafði sam­band við hann, eftir að hafa heim­sótt fjöl­skyld­una.   

Áhyggjur af fjölskyldunni

Þau eru aug­ljós­lega lúin, bæði tvö. Þau afsaka það og útskýra fyrir okkur að þeim hafi ekki komið dúr á auga um nótt­ina sem leið. „Þið vitið hvað er að ger­ast í Íran, er það ekki?“ segir Ali og segir frá því að áður en þau fóru í hátt­inn kvöldið áður hafi þau lesið frétt­irnar af loft­skeyta­árásum Írana á her­stöðvar Banda­ríkj­anna í Írak. „Stór hluti af fjöl­skyldu okkar býr í Íran núna, svo við erum mjög áhyggju­full,“ útskýrir Ali.

„Stór hluti af fjöl­skyldu okkar býr í Íran núna, svo við erum mjög áhyggju­full“

Það var einmitt í Íran sem ungu hjónin urðu við­skila við fjöl­skyld­una, fyrir um það bil tveimur árum síðan, eftir að hafa verið með henni á flótta í önnur tvö ár. Í hópnum eru for­eldrar hans, yngri bróðir, eldri systir og þrjú börn hennar. Sjálf hafa þau verið gift frá því þau voru 13 og 14 ára en það var fjöl­skylda þeirra sem tók þá ákvörðun fyrir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár