„Ég vil vera hamingjusöm að eilífu“

Líf þeirra sem hafa ákveðið að helga sig Guði krefst fórna, en María de la Sabi­duría de la Cruz segir það allt þess virði. Hún kemur úr kaþ­ólskri fjöl­skyldu í Argent­ínu, þær eru fimm systur sem allar eru nunnur. Bróðir þeirra er hins vegar bóndi og fjöl­skyldu­faðir. Sjálf ákvað hún snemma að verða nunna og gekk í klaustur aðeins þrettán ára gömul. Hér á landi elskar hún Nonna­bækur, fjall­göngur og harð­fisk með smjöri.

Það er skýjað þennan dag í Stykk­is­hólmi. Ung kona í gráum og bláum nunnu­bún­ingi kemur gang­andi frá litlu, grá­mál­uðu báru­járns­húsi og gengur inn í gesta­mót­töku hót­els í bænum. Hótelið er í hús­næði sem var áður í eigu kaþ­ólsku kirkj­unnar, þar var systra­hús og leik­skóli á vegum St. Franciskusreglunnar. Enn er þar kapella, sem áður til­heyrði þeirri reglu en til­heyrir nú Mar­íu­regl­unni. Konan heilsar hlý­lega, gengur inn í kapell­una og signir sig, áður en hún heldur inn í eld­hús í annarri álmu í bygg­ing­unni þar sem hún hitar kaffi og vatn í katli.

María de la Sabi­duría de la Cruz er frá Argent­ínu og er 33 ára. Hennar eigið nafn er María Teresa de la Cruz. Hún er nunna og gekk í klaustur aðeins þrettán ára gömul. 

Í klaustur 13 ára

María de la Sabi­duría de la Cruz ólst upp á sveitabæ fyrstu árin en fjöl­skyldan flutti í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár