Manneskjan er mitt stærsta áhugamál

Á fimmtu­dags­kvöldið var opnuð sýn­ing Hrafn­hildar Arn­ar­dóttur, Shoplifter, í Lista­safni Reykja­víkur en verkið var fram­lag Íslands til Fen­eyjat­ví­ær­ings­ins 2019 og vakti þar mikla athygli. Inn­setn­ingin er ein sú stærsta sem Hrafn­hildur hefur gert en um 100 manns tóku þátt í fram­leiðslu­ferl­inu, meðal ann­ars rokksveitin HAM sem skap­aði tón­verkið. „Mig lang­aði alltaf til þess að skapa risa­vaxið umhverfi, ein­hvers konar fla­um­rændan sýnd­ar­veru­leika sem umlykur fólk,“ segir Hrafn­hildur.

„Ég er flækt í þennan efnivið“ Hár er eftirlætis efniviður Hrafnhildar. Hún er heilluð af því hvernig mannfólk reynir að temja á sér hárið og reynir að temja efniviðinn til þess að hann verði eitthvað annað en að vera bara búnt af hári.

Í Lista­safni Reykja­víkur, Hafn­ar­húsi, er verið að leggja loka­hönd á upp­setn­ingu Chromo Sapiens, umfangs­mikla og ævin­týra­lega inn­setn­ingu lista­kon­unnar Hrafn­hildar Arn­ar­dóttur. Hún er einnig þekkt undir nafn­inu Shoplifter, sem fest­ist við hana þegar fólk mis­heyrði erfitt íslenskt eig­in­nafnið í New York þar sem hún býr og starfar. Hrafn­hildur hefur um ára­bil kannað og unnið með manns­hárið og tákn­gildi þess og hefur öðl­ast fjöl­margar við­ur­kenn­ingar fyrir verk sín. Tengsl hennar við tísku­heim­inn eru sterk og hún hefur meðal ann­ars unnið náið með tón­list­ar­kon­unni Björk. 

Þegar ég geng inn í lista­safnið inn úr haglél­inu er mér vísað beint inn í ein­hvers konar hlýtt hell­is­mynni á jarð­hæð. Þar er ég hrein­lega gengin inn í lista­verkið, eða nánar til­tekið einn af þremur hlutum verks­ins, þrjú rými alsett gervi­hári í mis­mun­andi litum sem hrein­lega virð­ast anda og bær­ast og umlykja mig á meðan magn­þrungin drunu­tón­list hljómar í eyrum. Ein fyrsta til­finn­ing mín er að vilja …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár