FréttirFerðaþjónusta

Rík­is­sjóður fær engar leigu­tekjur af arð­bærri notkun á Langjökli

Ekki liggur fyrir hver er eig­andi svæð­is­ins þar sem ísgöngin í Langjökli eru. Milljóna tekjur á dag af ísgöng­unum en óvíst er hver leigan fyrir landið verður. Deilt er um það fyrir dóm­stólum að sögn stjórn­ar­for­manns Into the glacier ehf. Á meðan greiðir fyr­ir­tækið enga leigu fyrir afnot af land­inu. Um 150 gestir fóru í göngin á dag í lok árs í fyrra og hlupu tekjur dag hvern á nokkrum millj­ónum króna.
FréttirRíkisstjórnin

Almannafé varið til aug­lýs­inga­kaupa

For­sæt­is­ráðu­neytið hefur keypt heil­síðu­aug­lýs­inga­pláss í Frétta­blað­inu, Morg­un­blað­inu, Við­skipta­blað­inu, DV og Frétta­tím­anum þar sem vakin er athygli á kaup­mátt­ar­aukn­ingu á Íslandi. Er aug­lýst í nafni „rík­is­stjórnar Íslands“ og full­yrt að Íslend­ingar fái nú meira fyrir launin sín en nokkru sinni fyrr. Aug­lýs­inga­stofan Hvíta húsið hann­aði aug­lýs­ing­una og var ákveðið að ein­göngu yrði aug­lýst í dag­blöðum og viku­blöðum. Björn Valur Gíslason, vara­for­maður...
FréttirKynbundið ofbeldi

„Ekkert rétt­læti í rétt­ar­kerf­inu“

„Hvað er að mér að taka fokk­ing vid­eoið,“ sagði maður sem Júlía Birg­is­dóttir kærði fyrir að taka upp kyn­lífs­mynd­band af þeim og dreifa á net­inu. Hann lýsir sig sak­lausan en á milli þeirra hafa gengið skila­boð þar sem hann seg­ist ekki muna eftir þessu, en við­ur­kennir að hafa tekið upp mynd­bandið og biðst afsök­unar á því. Júlía höfð­aði jafn­framt einka­mál á hendur honum en því var vísað frá fyrir hér­aðs­dómi. Hún hefur kært þá nið­ur­stöðu. Nú vill hún að hefnd­arklám verði skil­greint í hegn­ing­ar­lögum en fyrir liggur frum­varp á Alþingi þess eðlis.

21 mín. lestur

Fréttir

Gunnar Bragi gagn­rýnir sjálf­stæð­is­menn fyrir þjónkun í Rússa­mál­inu: Jón fékk milljón frá útgerð­unum

Utan­rík­is­ráð­herra telur ekki ólík­legt að þing­menn sem fengu háa styrki frá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum gangi sér­stak­lega hart fram í and­stöðu sinni við við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum. Jón Gunn­ars­son hefur verið áber­andi í umræð­unni en sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin styrktu hann um eina milljón króna.
FréttirKvótinn

Félag Þor­steins Más fékk 300 millj­ónum meira í arð en Samherji greiddi í veiði­gjöld

Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn ehf. er stærsti hlut­hafi útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja og á reiðufé upp á þrjá millj­arða króna. Þor­steinn Már Bald­vins­son og eig­in­kona hans hafa selt hluta­bréf í félag­inu til þess sjálfs fyrir 1.850 millj­ónir króna á liðnum tveimur árum. Þor­steinn Már hefur sagt að ekki sé rétt að per­sónu­gera Samherja í nokkrum ein­stak­lingum þar sem 400 manns vinni hjá útgerð­inni.

Mest lesið undanfarið ár