Sigmundur segir verðtryggða íslenska krónu „sterkasta og stöðugasta gjaldmiðil heims“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra fór fögrum orðum um gjald­miðil Íslend­inga og sagði að ekki væri hægt að kenna honum um háa vexti.

Sigmundur segir verðtryggða íslenska krónu „sterkasta og stöðugasta gjaldmiðil heims“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir að verð­tryggð íslensk króna sé sterkasti og stöðug­asti gjald­mið­ill í heimi. Þetta kom fram í við­tali við hann í þætt­inum Í bítið á Bylgj­unni í morgun. 

Þegar rætt var um háa vexti á Íslandi í þætt­inum sagði Sig­mundur að sumir kenndu krón­unni um þetta. „Þá bendi ég á, eins og fleiri hafa nú bent á, við erum í raun­inni með sterkasta og stöðug­asta gjald­miðil heims sem er verð­tryggða krónan,“ sagði hann. 

Bar hann krón­una saman við kanadíska doll­ar­ann og sagði að ef Kana­da­dollar yrði tek­inn upp á Íslandi og valið stæði á milli þess að lána í verð­tryggðri íslenskri krónu eða doll­ar­anum, þá væri kanadíski doll­ar­inn óör­ugg­ari. „Í raun­inni ætti hann þá að bera hærri vexti heldur en verð­tryggða krónan. Þannig að það er eitt­hvað að í kerf­inu hérna annað en bara krónan þegar að meira að segja stöðug­asta mynt heims, verð­tryggða krónan, er með svona háa vexti ofan á verð­trygg­ing­una,“ sagði Sig­mundur. 

Gengi íslensku krón­unnar hefur verið stöðug allra síð­ustu ár innan gjald­eyr­is­hafta, en ef sveiflur gjald­mið­ils­ins und­an­farna ára­tugi eru bornar saman við aðra gjald­miðla blasir við önnur mynd. Til að mynda kemur fram í skýrsl­unni Geng­is­sveiflur krón­unnar og virkni inn­lends gjald­eyr­is­mark­aðar frá Seðla­bank­anum að á tíma­bil­inu 1995 til 2010 hafi stað­al­frá­vik mán­að­ar­legra geng­is­breyt­inga krón­unnar verið nokkru hærra en gildir um gjald­miðla ann­arra iðn­ríkja. Einungis gjald­miðlar Brasilíu, Suður-Afríku og Tyrk­landi voru með hærra stað­al­frá­vik en Ísland.

Sem kunn­ugt er tal­aði Sig­mundur Davíð fyrir því í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna 2013 að verð­trygg­ingin yrði afnumin. „Verk­efnin eru tví­þætt, ann­ars vegar afnám verð­trygg­ingar til fram­tíðar, hins vegar leið­rétt­ingin,“ skrif­aði hann í blogg­pistli þann 15. mars það ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

Kristján Þór og Þorsteinn Már „nánir  vinir“ í skilningi stjórnsýslulaga
FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár