Fréttir

„Tryllt og hálf­lömuð yfir því að hafa orðið vitni að þessum ras­isma“

Snærós Sindra­dóttir varð vitni að því þegar íslensk kona veitt­ist að svörtum manni í Hörpu um helg­ina. Maðurinn var þar staddur ásamt konu og börnum, og hafði staldrað við til að hlúa að dóttur Snærósar en fékk fyrir vikið yfir að heyra það. „HEI Bubba! Vertu ekki með kjaft. Hei Bubba skiptu þér ekki af hel­vítið þitt,“ kall­aði konan að mann­inum.
FréttirPlastbarkamálið

Birgir segir að hann hefði átt að kæra Macchiarini

Birgir Jak­obs­son, land­læknir og fyrr­ver­andi for­stjóri Karol­inska-sjúkra­húss­ins í Stokk­hólmi, skrif­aði undir ráðn­ingu Paulo Macchiarinis til Karol­inska-sjúkra­húss­ins árið 2010. Hann neit­aði hins vegar að end­ur­ráða Macchiarini þar sem plast­barka­að­gerðir hans höfðu ekki virkað vel og hann sinnti ekki sjúk­lingum sínum. Hann segir stærsta lær­dóm­inn í mál­inu að háskólar megi ekki ákveða klínískar með­ferðir á sjúk­lingum.

9 mín. lestur

Fréttir

Kaupa fjöl­býl­is­hús undir erlenda starfs­menn

Fjöl­margir einka­að­ilar standa nú í við­ræðum við Kadeco, þró­un­ar­fé­lag Kefla­vík­ur­flug­vallar, um kaup á fjöl­býl­is­húsum á gamla varn­ar­liðs­svæð­inu í Reykja­nesbæ. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er um að ræða mörg hund­ruð íbúðir, flest ein­stak­lings­í­búðir en þó eitt­hvað af fjöl­skyldu­í­búðum líka, sem nota á undir erlenda starfs­menn íslenskra fyr­ir­tækja sem vænt­an­legir eru til lands­ins á næstu mán­uðum. Fyr­ir­tækin sem um ræðir eru meðal ann­ars...
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Þrjú einka­rekin heil­brigð­is­fyr­ir­tæki meðal þeirra arð­söm­ustu á Íslandi

Þrjár nýjar einka­reknar heilsu­gæslu­stöðvar taka til starfa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Einka­rekin heil­brigð­is­þjón­usta getur verið afar ábata­söm og eru þrjú slík fyr­ir­tæki á lista Láns­trausts yfir arð­bær­ustu fyr­ir­tæki lands­ins miðað við hagnað í hlut­falli við eigin fé. Mörg hund­ruð millj­óna arð­greiðslur út úr tveimur fyr­ir­tækjum sem eru fjár­mögnuð að hluta af Sjúkra­trygg­ingum Íslands.
Fréttir

Hluthafi í VÍS segir fimm millj­arða arð­greiðsl­una „full­kom­lega eðli­lega“

Gestur Breið­fjörð Gestsson er hlut­hafi í Óska­beini ehf. sem á ríf­lega 5 pró­senta hlut í Vátrygg­inga­fé­lagi Íslands. Félagið keypti hlut­inn í nóv­em­ber á tæp­lega 1300 millj­ónir og gæti nú fengið tæp­lega 280 millj­óna arð út úr trygg­inga­fé­lag­inu. Gestur segir fjár­festa fara inn í fyr­ir­tæki til að fá greiddan arð.

Mest lesið undanfarið ár