Vinnur á kvöldin og um helgar samhliða leikskólastarfinu
Fréttir

Vinnur á kvöldin og um helgar sam­hliða leik­skóla­starf­inu

Sólveig Anna Jóns­dóttir, ófag­lærður leik­skóla­starfs­maður til átta ára, fær ein­ungis 240 þús­und krónur í útborguð laun. Hún vinnur í verslun á kvöldin og um helgar til að drýgja tekj­urnar. Leik­skólar borg­ar­innar standa frammi fyrir mik­illi mann­eklu og leggur Sólveig til að borg­ar­full­trúar stígi inn í fag­lega starfið sem unnið er á leik­skólum.
Boðist til að falla frá málsókn gegn þögn um frambjóðanda Framsóknarflokksins
FréttirUmræða um rasisma

Boðist til að falla frá mál­sókn gegn þögn um fram­bjóð­anda Fram­sókn­ar­flokks­ins

Lög­fræð­ing­ur­inn Sævar Þór Jónsson, sem er í þriðja sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík, sendi Stund­inni inn­heimtu­kröfu upp á 7,5 millj­ónir króna vegna birt­ingar mynda af Arnþrúði Karls­dóttur sem Útvarp Saga not­aði til kynn­ingar á dag­skrár­liðum. Fulltrúi Sævars bauðst til þess að fallið yrði frá kröf­unni gegn því að Sævari yrði haldið fyrir utan umfjöllun blaðs­ins um útvarps­stöð­ina.
Ráðuneytisstjóri sakaður um „beinar hótanir“ gegn fleiri en einum þingmanni
FréttirStjórnsýsla

Ráðu­neyt­is­stjóri sak­aður um „beinar hót­anir“ gegn fleiri en einum þing­manni

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar sakar Guðmund Árnason ráðu­neyt­is­stjóra um „beinar hót­anir“ gegn þing­mönnum. Guð­mundur hringdi í einn þing­mann nefnd­ar­innar og sagð­ist íhuga að leita réttar síns vegna skýrslu Vigdísar Hauks­dóttur þar sem meðal ann­ars er gefið í skyn að hann hafi viljað „frið­þægja kröfu­hafa“ á kostnað íslenskra hags­muna.
Átti að fara í blóðrannsókn til að kanna  berkla en verður vísað úr landi
FréttirFlóttamenn

Átti að fara í blóð­rann­sókn til að kanna berkla en verður vísað úr landi

Hæl­is­leit­and­anum Benjamin Akosa verður vísað úr landi á morgun, mánu­dag, þrátt fyrir að hann sé í miðjum rann­sóknum vegna mögu­legs berkla­smits. Hann er brenni­merktur í and­liti eftir að hafa neitað að taka þátt í galdra­trú fjöl­skyldu sinnar í Ghana. Norsk yfir­völd hafa við­ur­kennt við­kvæma stöðu hans en hyggj­ast senda hann til heima­lands­ins. Hann kallar á hjálp í bréfi sem hann hefur sent frá sér.

Mest lesið undanfarið ár