Benjamin Akosa Benjamin Akosa

Átti að fara í blóðrannsókn til að kanna berkla en verður vísað úr landi

Hæl­is­leit­and­anum Benjamin Akosa verður vísað úr landi á morgun, mánu­dag, þrátt fyrir að hann sé í miðjum rann­sóknum vegna mögu­legs berkla­smits. Hann er brenni­merktur í and­liti eftir að hafa neitað að taka þátt í galdra­trú fjöl­skyldu sinnar í Ghana. Norsk yfir­völd hafa við­ur­kennt við­kvæma stöðu hans en hyggj­ast senda hann til heima­lands­ins. Hann kallar á hjálp í bréfi sem hann hefur sent frá sér.

Útlend­inga­stofnun hefur úrskurðað að vísa skuli Benjamin Akosa, 28 ára gömlum hæl­is­leit­anda frá Ghana, úr landi á morgun, mánu­dag. Hann hefur und­an­farin miss­eri haldið til á heim­ili fyrir hæl­is­leit­endur í Sól­heimum 17, en þar greind­ist einn íbú­anna nýlega með berkla. Ekki liggur fyrir hvort Benjamin hafi smit­ast, en hann átti að fara í blóðprufu vegna mögu­legs berkla­smits á morgun, eða sama dag og hann verður sendur úr landi. „Benjamin átti að fara í sína síð­ustu blóð­rann­sókn á morgun en það verður ekk­ert af henni,“ sagði Daníel Thors, rétt­ar­gæslu­maður Benja­mins, í sam­tali við Stundina í gær­kvöldi. Hann bendir á að Benjamin hafi leitað læknis í krafti leyfis Útlend­inga­stofn­unar. Það skjóti því skökku við að senda hann úr landi áður en nið­ur­stöður úr slíkum prófum liggja fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið undanfarið ár