Ráðherra ritstýrði vefriti sem hæddist að Ástráði vegna stjórnmálaskoðana hans
FréttirACD-ríkisstjórnin

Ráðherra rit­stýrði vefriti sem hædd­ist að Ástráði vegna stjórn­mála­skoð­ana hans

Ástráður Har­alds­son hæsta­rétt­ar­lög­maður var met­inn í hópi hæf­ustu umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti við Lands­rétt en hlaut ekki náð fyrir augum Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra. Hún sat í rit­stjórn Vef­þjóð­vilj­ans þegar vefritið hædd­ist að Ástráði og kall­aði hann „funda­skelfi Æsku­lýðs­fylk­ing­ar­innar“ árið 2001. 
Ákvörðun Trump mun hafa skelfilegar afleiðingar fyrir allt mannkyn
ErlentLoftslagsbreytingar

Ákvörðun Trump mun hafa skelfi­legar afleið­ingar fyrir allt mann­kyn

Þóra Ellen Þór­halls­dóttir, pró­fessor við Háskóla Íslands, segir ákvörðun Donalds Trump um að draga Banda­ríkin úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu koma á afar vondum tíma, nú þegar þjóð­ar­leið­togar heims hafi loks­ins verið farnir að axla ábyrgð á lofts­lags­málum. Líklega muni ákvörð­unin leiða til þess að sam­dráttur á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda verði minni en þjóðir heims höfðu lofað, enda er um þriðj­ungur af losun jarðar frá Banda­ríkj­unum.
Treystir ekki þinginu til lengri umfjöllunar um dómaramál – óttast „þrýsting“ frá umsækjendum
FréttirACD-ríkisstjórnin

Treystir ekki þing­inu til lengri umfjöll­unar um dóm­ara­mál – ótt­ast „þrýst­ing“ frá umsækj­endum

Pawel Bartoszek, þing­maður Við­reisnar hefur áhyggjur af að „það komi þrýst­ingur á þing­menn, hugs­an­lega frá fólki sem hefur sótt um þessar stöður eða mönnum þeim tengdum til að hafna list­anum í því skyni að búa til ein­hvern annan lista.“ Hann er mót­fall­inn því að afgreiðslu máls­ins verði frestað.
Stóðu ekki við yfirlýsingar sínar um fjármálaáætlun
FréttirACD-ríkisstjórnin

Stóðu ekki við yfir­lýs­ingar sínar um fjár­mála­á­ætlun

Val­gerður Gunn­ars­dóttir, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sam­þykkti fjár­mála­á­ætlun sem felur í sér áform sem hún telur að muni „rústa“ fyr­ir­tækjum í hinum dreifðu byggðum. Þau Njáll Trausti Frið­berts­son sögð­ust ekki ætla að sam­þykkja áætl­un­ina óbreytta en stóðu ekki við yfir­lýs­ing­arnar þegar á reyndi.
Stjórnarliðar lögðust gegn tillögum um aukin framlög til heilbrigðis- og menntamála
Fréttir

Stjórn­ar­liðar lögð­ust gegn til­lögum um aukin fram­lög til heil­brigðis- og mennta­mála

Fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar var sam­þykkt með 32 atkvæðum gegn 31 í nótt. Þings­á­lykt­unin gengur í ýmsum grund­vall­ar­at­riðum í ber­högg við grunn­gildi laga um opin­ber fjár­mál og hefur sætt harðri gagn­rýni, meðal ann­ars frá stjórn­endum spít­ala og mennta­stofn­ana. Engar breyt­ingar voru gerðar á mál­inu við með­ferð þess á þingi þrátt fyrir að hátt í 200 umsagnir hafi borist.

Mest lesið undanfarið ár