Donald Trump Til­kynnti í gær að Banda­ríkin drægju sig út úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu um minnkun útblást­urs gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Mynd: Shutterstock

Ákvörðun Trump mun hafa skelfilegar afleiðingar fyrir allt mannkyn

Þóra Ellen Þór­halls­dóttir, pró­fessor við Háskóla Íslands, segir ákvörðun Donalds Trump um að draga Banda­ríkin úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu koma á afar vondum tíma, nú þegar þjóð­ar­leið­togar heims hafi loks­ins verið farnir að axla ábyrgð á lofts­lags­málum. Líklega muni ákvörð­unin leiða til þess að sam­dráttur á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda verði minni en þjóðir heims höfðu lofað, enda er um þriðj­ungur af losun jarðar frá Banda­ríkj­unum.

„Þetta eru mjög slæmar fréttir,“ segir Þóra Ellen Þór­halls­dóttir, pró­fessor við Háskóla Íslands og for­maður fyrsta fag­hóps ramma­á­ætl­unar, um ákvörðun Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta um að draga Banda­ríkin úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu um aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum. Hún segir ákvörð­un­ina auka lík­urnar á því loft­hiti jarðar fari yfir tvær gráður að með­al­tali.

Fjöldi vís­inda­manna hefur varað við því að loft­hiti jarðar hækki mikið meira og segja að það muni hafa skelfi­legar afleið­ingar fyrir allt mann­kynið. Það muni meðal ann­ars leiða til hrað­ari bráðnun jökla, hækkun á yfir­borði sjávar, upp­skerur muni bregð­ast og millj­ónir manna þurfa að flýja heim­ilin sín. Það muni leiða til enn meiri flótta­manna­straums og auka lík­urnar á stríðum og átökum um auð­lindir. 

„Beinu afleið­ing­arnar eru þær að nú er lík­legra að Banda­ríkin munu ekki draga úr losun eins og til stóð,“ segir Þóra Ellen. „Og þau eru svo stór, en um þriðj­ungur af allri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda skrif­ast á Banda­ríkin. Þannig það er lang­lík­leg­ast að þetta leiði til þess að sam­dráttur á losun verði minni á næstu árum heldur en þjóðir heims höfðu lofað og hafði náðst sam­komu­lag um í París.“

Þá segir hún ákvörðun Trumps hafa komið á afskap­lega vondum tíma. „Þetta hefur verið langur fer­ill að opna augu alþjóða­sam­fé­lags­ins og vekja þessa til­finn­ingu um ábyrgð hjá þjóðum og þjóð­ar­leið­togum. Þessi til­finn­in­ing var greini­lega ekki orðin nógu sterk á Kyoto-fund­inum og heldur ekki á Kaup­manna­hafnar-fund­inum, en hún virt­ist vera orðin það sterk í París að yfir­gnæf­andi meiri­hluti ríkja heims ætlar að skuld­binda sig til að draga úr losun. Þetta er mjög seint. Við erum alveg hreint á síð­asta snún­ingi, en von­andi erum við ekki of sein. Þetta sam­komu­lag næst, og síðan ætlar rík­asta þjóð heims að draga sig út úr sam­komu­lag­inu.“  

Þjóðir heims fordæma ákvörðun Trumps

Þóra Ellen Þórhallsdóttir
Þóra Ellen Þór­halls­dóttir pró­fessor við Líf- og umhverf­is­vís­inda­deild Háskóla Íslands, segir helstu rök­semdir Trumps fyrir því að draga Banda­ríkin úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu séu mjög þröngt skil­greindir við­skipta­legir og efna­hags­legir hags­munir Banda­ríkj­anna einna.

Ákvörðun Trumps hefði ekki átt að koma neinum á óvart, en útganga úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu var eitt af kosn­inga­lof­orðum hans. Trump sagði sam­komu­lagið, sem var und­ir­ritað í tíð Baracks Obama fyrr­ver­andi for­seta Banda­ríkj­anna, vera ósann­gjarnt gagn­vart verka­fólki í Banda­ríkj­unum og að eitt af hans lof­orðum hefði verið að setja Banda­ríkin í fyrsta sæti. „Ég var kjör­inn full­trúi íbúa í Pitts­burgh, ekki París,“ sagði Trump meðal ann­ars þegar hann til­kynnti ákvörðun sína í gær. „Frá og með deg­inum í dag munu Banda­ríkin hætta öllum aðgerðum vegna Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins og lyfta þeim hörðu fjár­hags­legu og efna­hags­legu byrðum sem sam­komu­lagið setur á herðar okkar.“ 

Hann sagð­ist engu að síður ætla að reyna að gera nýjan, „sann­gjarnan“ samn­ing. „Við munum hafa hrein­asta loftið. Við munum hafa hrein­asta vatnið. Við verðum umhverf­is­væn. En við munum ekki setja fyr­ir­tækin okkar á haus­inn. Við munum ekki glata stör­f­unum okkar,“ sagði Trump enn­fremur. 

„Hann er ekk­ert að horfa á málið í víð­ara sam­hengi.“

Þóra Ellen segir svo virð­ast að helstu rök­semdir Trumps fyrir því að gera þetta séu mjög þröngt skil­greindir við­skipta­legir og efna­hags­legir hags­munir Banda­ríkj­anna einna. „Hann er ekk­ert að horfa á málið í víð­ara sam­hengi og meira að segja fyrir Banda­ríkin er þetta mjög þröngt skil­greint. Fyrir utan það, eins og er vitað, þá mun Par­ís­ar­sam­komu­lagið, með sínum skuld­bind­ingum, ekki eitt og sér draga úr los­un­inni innan þeirra marka að með­al­hækkun loft­hita á jörð­inni verði undir tveimur gráðum. Það þarf að fara í strang­ari aðgerðir til að ná því.“

Samkvæmt heim­ildum Washington Post mun Ivanka Trump, dóttir for­set­ans og ráð­gjafi, vera á meðal þeirra sem reyndu að telja Trump ofan af þess­ari ákvörðun. Þá hafa bæði Elon Musk, for­stjóri Tesla, og Robert Iger, for­stjóri Disney, til­kynnt að þeir muni segja sig úr ráð­gjafateymi Trumps vegna ákvörð­un­ar­innar. 

Þjóðir heims fordæma ákvörðun Trumps

Alþjóða­sam­fé­lagið brást harka­lega við í gær og for­dæmdi ákvörðun hans.

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær, ásamt hinum for­sæt­is­ráð­herrum Norð­ur­land­anna, þar sem Trump var hvattur til þess að stíga ekki þetta skref. Þá hafa kín­versk­ir og evr­ópsk­ir ráða­menn sent frá sér sam­eig­in­lega yf­ir­lýs­ingu um að þessar þjóðir taki nú við for­yst­unni í lofts­lags­málum og að þær muni eftir fremsta megni reyna að upp­fylla skil­yrði Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins og þar með fylla í skarð Banda­ríkj­anna. Antonio Guterres, aðal­fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, sagði sömu­leiðis í yfir­lýs­ingu í gær­kvöld að hann harm­aði ákvörðun Trumps og sagð­ist vona að leið­togar banda­rískra borga, fylkja og fyr­ir­tækja muni áfram vinna að því að draga úr útblástri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Fjöl­margir innan Banda­ríkj­anna, meðal ann­ars stór­fyr­ir­tæki, stigið fram og sagst ætla að virða sam­komu­lagið áfram og vinna sam­kvæmt sínum eigin aðgerða­á­ætl­unum. Þá hafa borg­ar­stjórar 68 borga í Banda­ríkj­unum sent frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu um að þeir muni áfram vinna að mark­miðum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins.

„Þessi ákvörðun Trumps eykur lík­urnar á því að loft­hit­inn fari að með­al­tali yfir tvær gráður.“

„Ég held að það sé mjög lítið sem alþjóða­sam­fé­lagið geti gert til þess að þrýsta á rík­is­stjórn Trumps til þess að breyta þessu,“ segir Þóra Ellen. Hins vegar gæti hörð afstaða borg­ar­stjóra Banda­ríkj­anna hugs­an­lega mildað ákvörð­un­ina. „En á móti kemur að Trump hefur verið að tala um að styrkja kola­iðn­að­inn, árið 2017, sem myndi auð­vitað vinna á móti þessu.“

Þá segir hún enn óljóst hvaða óbeinu afleið­ingar ákvörðun Trumps muni hafa, það er hvaða áhrif hún muni hafa á önnur ríki. Góðu frétt­irnar séu hins vegar þær að það taki ríki nokkur ár að draga sig úr sam­komu­lag­inu. Fari til dæmis svo að annar for­seti verði kjör­inn í Banda­ríkj­unum eftir tæp fjögur ár verða Banda­ríkin ekki búin að draga sig úr sam­komu­lag­inu að fullu þegar sá hinn sami tekur við emb­ætti. „Hins vegar, ef Trump verður end­ur­kjör­inn og hann situr í emb­ætti í átta ár, og heldur þessu við­horfi út sín tvö kjör­tíma­bil, þá er það skelfi­legt.“  

Eykur líkurnar á að lofthitinn fari yfir tvær gráður

Einungis tvö önnur ríki eru ekki aðilar að sam­komu­lag­inu; Ník­aragva og Sýrland. Eins og kunn­ugt er hefur borg­ara­styrj­öld geisað í Sýrlandi frá árinu 2011. Ník­aragva und­ir­rit­aði hins vegar ekki sátt­mál­ann því þeim fannst sam­komu­lagið ekki ganga nógu langt og ekki krefj­ast nógu mik­illar fórnar af stóru ríkj­unum. 

Par­ís­ar­sátt­mál­inn var und­ir­rit­aður í París árið 2015 en sam­kvæmt honum skuld­binda þjóðir sig til þess að vinna mark­visst að því að halda hlýnun jarðar undir tveimur gráðum. Aðild­ar­þjóðir gera mark­vissar aðgerða­á­ætl­anir í lofts­lags­málum sam­kvæmt sátt­mál­anum, sem eru end­ur­skoð­aðar á fimm ára fresti, og halda nákvæmt bók­hald um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. 

Mark­miðin miða við það að vist­kerfi heims­ins þoli tveggja gráðu hlýnun, en ef hlýn­unin fer upp fyrir tvær gráður erum við lík­lega komin í gríð­ar­lega vond mál, segir Þóra Ellen. „Það gætu orðið mjög ófyr­ir­sjá­an­legar og hraðar breyt­ingar á vist­kerfum jarðar og algjör­lega ófyr­ir­sjá­an­legar afleið­ingar,“ segir hún. „Þessi ákvörðun Trumps eykur lík­urnar á því að loft­hit­inn fari að með­al­tali yfir tvær gráður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár