Yfirlýsingar Benedikts á skjön við raunverulega stefnu ríkisstjórnarinnar
FréttirACD-ríkisstjórnin

Yfir­lýs­ingar Bene­dikts á skjön við raun­veru­lega stefnu rík­is­stjórn­ar­innar

Fjár­mála­ráð­herra talar um að „hafna krón­unni“ eða tengja við annan gjald­miðil en for­sæt­is­ráð­herra segir hvor­ugt standa til. Jafn­framt vinnur verk­efn­is­stjórn um end­ur­skoðun pen­inga­stefn­unnar sam­kvæmt þeirri for­sendu að krónan verði gjald­mið­ill Íslend­inga um fyr­ir­sjá­an­lega fram­tíð.
Sjö vikna gamalt stúlkubarn í einangrun vegna kíghósta
Fréttir

Sjö vikna gam­alt stúlku­barn í ein­angrun vegna kíg­hósta

Rúma viku tók að greina stúlk­una en móð­irin var ítrekað send heim frá lækni án þess að fá rétta grein­ingu. Stúlkan er núna komin á lyf og liggur í ein­angrun á barna­spít­al­anum. Móðir hennar vonar að lyfin virki en það á eftir að koma í ljós. Hún gagn­rýnir þá sem ekki þiggja bólu­setn­ingu og brýnir fyrir fólki að það þurfi að bólu­setja börnin sín og end­ur­nýja eigin bólu­setn­ingar, því sjúk­dóm­ur­inn getur reynst hættu­legur börnum.
Kópavogsbær má semja við ISS um matseld fyrir grunnskóla
Fréttir

Kópa­vogs­bær má semja við ISS um matseld fyrir grunn­skóla

Kæru­nefnd útboðs­mála aflétti í gær stöðvun samn­ings­gerðar á milli Kópa­vogs­bæjar og ISS. FSG átti lægsta til­boðið í útboði Kópa­vogs­bæjar en til­boð þeirra var metið ógilt, og var sú ákvörðun kærð til kæru­nefndar útboðs­mála. Ræstinga- og veit­inga­fyr­ir­tækið ISS Ísland hefur und­an­farið tekið yfir mat­reiðslu mál­tíða fyrir leik­skóla- og grunn­skóla­börn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Marg­vís­legar athuga­semdir hafa verið gerðar af heil­brigð­is­eft­ir­lit­inu vegna hrein­lætis, rekj­an­leika og innra eft­ir­lits í eld­húsi ISS, meðal ann­ars vegna myglu.
Svipti sig lífi á átján ára afmælinu
Fréttir

Svipti sig lífi á átján ára afmæl­inu

Halla Mildred Cramer ætlar að ganga Reykja­nes­braut­ina frá Álverinu í Straums­vík að Innri-Njarð­vík­ur­kirkju til að minn­ast syst­ur­sonar síns, Krist­ó­fers Arnar Árna­sonar, og styrkja um leið PIETA Ísland, sem er úrræði fyrir ein­stak­linga í sjálfs­vígs­hug­leið­ingum. Krist­ó­fer Örn svipti sig lífi á 18 ára afmæl­is­dag­inn sinn árið 2014. „Ég vil ekki að aðrir upp­lifi að missa ein­hvern sem þeir elska vegna sjálfs­vígs, hvort sem það er vinur eða fjöl­skyldu­með­limur.“
Átta atriði um hið fordæmalausa Marple-mál
Fréttir

Átta atriði um hið for­dæma­lausa Marple-mál

Dómur féll nýverið á nýjan leik í hér­aðs­dómi í Marple-mál­inu svo­kall­aða. Hæsti­réttur hafði ómerkt fyrri nið­ur­stöð­una vegna van­hæfis eins af með­dóm­end­unum. Málið er ein­stakt að mörgu leyti en um sér­stak­lega alvar­legan fjár­drátt var um að ræða. Þá beitti hér­aðs­dómur í fyrsta skipti í hrun­mál­unum refsi­þyng­ing­ar­á­kvæði hegn­ing­ar­laga þegar hann ákvað refs­ingu Hreiðars Más í mál­inu.

Mest lesið undanfarið ár