Ummæli forsætisráðherra ekki í samræmi við mat Útlendingastofnunar
FréttirACD-ríkisstjórnin

Ummæli for­sæt­is­ráð­herra ekki í sam­ræmi við mat Útlend­inga­stofn­unar

„Það hefur aldrei verið látið standa á fjár­veit­ingum til Útlend­inga­stofn­unar eða kæru­nefnd­ar­innar til að ýta undir sem skjótasta máls­með­ferð,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son í umræðum um útlend­inga­lög­gjöf­ina. Raunin er sú að Útlend­inga­stofnun hefur ekki fengið þá fjár­muni og þann mann­afla sem stofn­unin hefur kallað eftir til að geta hraðað máls­með­ferð og haldið í við fjölgun hæl­is­um­sókna.
Einkarekið hjúkrunarheimili fjármagnað af ríkinu lánar hálfan milljarð í fasteignaviðskipti
Fréttir

Einka­rekið hjúkr­un­ar­heim­ili fjár­magnað af rík­inu lánar hálfan millj­arð í fast­eigna­við­skipti

Lán upp á ríf­lega hálfan millj­arð króna hafa verið veitt út úr rekstr­ar­fé­lagi Sóltúns á liðnum árum. Pen­ing­arnir not­aðir til að reisa íbúðir fyrir 60 ára og eldri sem seldar eru á mark­aði. Fram­kvæmda­stjóri Sóltúns telur lán­veit­ing­arnar ekki vera á gráu svæði. Stærsti eig­andi Sóltúns hagn­að­ist um rúm­lega 700 millj­ónir króna í fyrra og greiddi út 230 millj­óna króna arð.
Sjálfstæðismenn óttast „flökkusögur“ og segja að lagabreyting í þágu flóttabarna hjálpi glæpamönnum
FréttirFlóttamenn

Sjálf­stæð­is­menn ótt­ast „flökku­sögur“ og segja að laga­breyt­ing í þágu flótta­barna hjálpi glæpa­mönnum

Allir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins greiddu atkvæði gegn frum­varpi um breyt­ingu á útlend­inga­lög­gjöf­inni í nótt. Full­trúar flokks­ins telja „erfitt að sporna við því að flökku­sögur fari á kreik um að auð­veld­ara sé að fá hæli hér á landi en áður og að skipu­lögð glæp­a­starf­semi sem gerir út á smygl á fólki víli ekki fyrir sér að kynda undir þá túlkun“.
Fyrirtæki aðstoðarkaupfélagsstjóra KS borgar út 100 milljónir vegna matarsölu í Leifsstöð
FréttirÚtboð í Leifsstöð

Fyr­ir­tæki aðstoð­ar­kaup­fé­lags­stjóra KS borgar út 100 millj­ónir vegna mat­ar­sölu í Leifs­stöð

Lag­ar­d­ére Travel Retail ehf. hefur greitt tæp­lega 130 millj­óna króna arð til hlut­hafa sinna á tveimur fyrstu rekstr­ar­árum sínum. Kaup­fé­lags­stjóri hjá KS, Sigurjón Rúnar Rafnsson, var meðal stjórn­enda félags­ins, sem fékk versl­un­ar­rými í Leifs­stöð í umdeildu útboði árið 2014. Nýir hlut­hafar í Lag­ar­d­ére Travel Retail vilja ekk­ert segja um við­skipti sín. Aða­heiður Héð­ins­dóttir í Kaffi­tári stendur í ströngu við að leita réttar síns gegn rík­is­fyr­ir­tæk­inu Isavia út af útboð­inu.

Mest lesið undanfarið ár