Þorsteinn Már og Helga voru sektuð fyrir brot upp á 1,3 milljarða
FréttirSamherjaskjölin

Þor­steinn Már og Helga voru sektuð fyrir brot upp á 1,3 millj­arða

Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga S. Guð­munds­dóttir voru sektuð fyrir brot á skila­skyldu laga um gjald­eyr­is­mál sem tóku gildi eftir banka­hrunið. Sekt­irnar voru end­ur­greiddar fyrr á þessu ári vegna mis­taka sem gerð voru við brot á setn­ingu laga um gjald­eyr­is­mál. Gögnin í Sam­herj­a­mál­inu sýna frek­ari milli­færslur til þeirra frá félagi Samherja á Kýpur.
„Rannsóknarlögreglumaður Samherja“ sat fund með namibísku mútuþegunum
FréttirSamherjaskjölin

„Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður Samherja“ sat fund með namibísku mútu­þeg­unum

Samherji segir að fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður hafi farið til Namibíu og gert úttekt á rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Um er að ræða Jón Óttar Ólafsson, sem var rek­inn frá Sér­stökum sak­sókn­ara fyrir brot í starfi. Sam­herj­a­skjölin sýna að hann var fullur þátt­tak­andi í starf­sem­inni, fund­aði með Þor­steini Má Bald­vins­syni og namibísku mútu­þeg­unum og fékk afrit af póstum um milli­færslur til skatta­skjóls.
Sagður hafa fyrirskipað mútugreiðslur: „Það eru lygar“
FréttirSamherjaskjölin

Sagður hafa fyr­ir­skipað mútu­greiðslur: „Það eru lygar“

Fyrr­ver­andi starfs­maður Samherja, Jóhannes Stef­áns­son, segir að Aðal­steinn Helgason hafi gefið honum fyr­ir­mæli um að greiða sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu mútur. Aðal­steinn neitar að svara fyrir mútu­greiðsl­urnar því hann sé orð­inn gam­all maður, en hann hætti að vinna fyrir þremur árum. Ráð­herr­ann sagði af sér í dag vegna máls­ins.

Mest lesið undanfarið ár