Nýtt efni

Píratar undrandi á Góðan daginn-framboðinu: „Mér finnst þetta mjög skrítið“
Það hitnaði kolunum í oddvitasamtali Heimildarinnar þegar það kom í ljós að oddviti Góðan daginn-framboðsins var ráðinn til starfsins. Hann segist ekki vera á launum og gerir ekki athugsemd við að fjársterkur einstaklingur velji fólk á framboðslista.

Olía hækkar um 7% eftir viðvörun Trumps um langt hafnarbann
Útlit er fyrir að hafnarbann Bandaríkjanna á írönskum höfnum gæti staðið mun lengur en áður hefur verið gert ráð fyrir. „Þeir ættu að verða skynsamir fljótlega!“ segir Donald Trump Bandaríkjaforseti um Írani. Olíuverð hefur náð nýjum hæðum.

Forseti Írans segir hafnarbann Bandaríkjanna dæmt til að mistakast
Masoud Pezeshkian, forseti Írans, segir hafnarbann Bandaríkjanna á íranskar hafnir andstætt alþjóðalögum.

Oddvitasamtöl: Góðan daginn, Flokkur fólksins og Píratar
Oddvitasamtöl Heimildarinnar halda áfram í dag, en þá mætast Ingimar Þór Friðriksson fyrir Góðan daginn, Guðmundur Ingi Þóroddsson fyrir Flokk fólksins og Alexandra Briem fyrir Pírata.

Þurfa að fækka starfsmönnum vegna úrsagnar Guðmundar
Flokkur fólksins má hafa færra starfsfólk í vinnu á kostnað Alþingis eftir að Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður gekk úr flokknum. Fjöldi starfsmanna ræðst af þingstyrk hvers flokks og riðlar úrsögnin skiptingu aðstoðarmanna á milli flokka. Framsókn má í staðin bæta við sig.

Okkar borg ætlar ekki að flæma múslima úr landi
Baldur Borgþórsson, annar maður á lista Okkar borgar, segir það ekki stefnu framboðsins að flæma múslima úr landi, en oddvitinn lét þau orð falla að hann vildi gera það.

Verðbólgan lækkar lítillega
Verðbólga mælist nú 5,2 prósent, sem er það sama og hún mældist í janúar og febrúar. Það er lækkun um 0,2 prósentustig á milli mánaða. Verðhækkanir á bensíni og dísil höfðu einna mest áhrif.

Oddvitasamtöl: Miðflokkur, Okkar borg, Samfylking og Sjálfstæðisflokkur
Oddvitasamtöl Heimildarinnar halda áfram í dag, en þá mætast Ari Edwald fyrir Miðflokkinn og Baldur Borgþórsson fyrir Okkar borg í fyrri umferð og Pétur H. Marteinsson fyrir Samfylkinguna og Hildur Björnsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

„Er þá atkvæði greitt þér atkvæði greitt Miðflokknum?“
Skotin gengu á milli oddvita Viðreisnar og Framsóknarflokks í Oddvitasamtali Heimildarinnar í Tjarnarbíói í gærkvöldi. Björg Magnúsdóttir tók engu að síður fram að þau Einar Þorsteinsson væru vinir: „Einar er frændi minn.“

Íranar segja Bandaríkin ekki lengur „skipa öðrum fyrir“
Bandaríkin fara yfir nýja tillögu Írana vegna stríðsins, á meðan Íranar stæra sig af því að hafa undirtökin. „Þeir eru mjög góðir samningamenn,“ segir Marco Rubio utanríkisráðherra.

Oddviti Vinstrisins veit ekki enn hvort hann sé skráður í Sósíalista
Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, hefur ekki fengið svör um skráningu sína í Sósíalistaflokkinn. Uppgjör átti sér stað í oddvitaspjalli Pressunnar.

Olíufélag greinir frá risagróða
Stríðið gegn Íran skapar stökkbreyttan hagnað fyrir olíuframleiðendur.

Kimmel svarar fyrir sig eftir aflýsingartilraun Melaniu og Trumps
Grínistinn Jimmy Kimmel sagði Melania Trump „ljóma eins og verðandi ekkja“. Forsetinn og forsetafrúin reyna nú að láta reka hann vegna „hatursfullrar orðræðu“, sem Trump hefur sjálfur ástundað.

Oddvitasamtöl: Vinstrið, Sósíalistar, Framsókn og Viðreisn
Oddvitasamtöl Heimildarinnar hefjast í kvöld, en þá mætast Sanna Magdalena Mörtudóttir fyrir Vinstrið og Silja Sóley Birgisdóttir fyrir Sósíalistaflokk Íslands í fyrri umferð og Einar Þorsteinsson fyrir Framsókn og Björg Magnúsdóttir fyrir Viðreisn í þeirri seinni.

Oddvitasamtöl Heimildarinnar hefjast í kvöld
Lesendur geta sent inn spurningar fyrir oddvitasamtöl Heimildarinnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Í kvöld mætast Sanna Magdalena Mörtudóttir fyrir Vinstrið og Silja Sóley Birgisdóttir fyrir Sósíalistaflokk Íslands í fyrri umferð og Einar Þorsteinsson fyrir Framsókn og Björg Magnúsdóttir fyrir Viðreisn í þeirri seinni.









