Kristján Þór enn með mál útgerða sem tengjast Þorsteini Má

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra vonar að friður skap­ist um Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra sem segir sig frá málum tengdum Samherja. Önnur félög í sjáv­ar­út­vegi njóta hins vegar áfram starfs­krafta Þor­steins Más Bald­vins­sonar.

Kristján Þór enn með mál útgerða sem tengjast Þorsteini Má
Kristján Þór og Þor­steinn Már Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra hefur sagt sig frá mál­efnum Samherja, sem á rúm 6 pró­sent allra afla­heim­ilda. Mynd: Samsett

Þor­steinn Már Bald­vins­son, sem stigið hefur til hliðar sem for­stjóri Samherja eftir að upp­ljóstrað var um mútu­greiðslur fyr­ir­tæk­is­ins til namibískra stjórn­mála­manna, er enn í stjórnum ann­arra íslenskra útgerð­ar­fyr­ir­tækja. Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra hefur sagt sig frá mál­efnum Samherja vegna tengsla, en hefur ekki nefnt hags­muna­á­rekstra þegar kemur að öðrum fyr­ir­tækjum tengdum Þor­steini Má.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra var spurð um tengslin í við­tali á vef Morg­un­blaðs­ins í dag. „Tengsl hans við for­stjóra Samherja sem hefur nú stigið til hliðar hafa líka legið öllum ljós mjög lengi,“ sagði hún. „Hann hefur sagt, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, að hann muni stíga til hliðar í þeim ákvörð­unum sem varða þetta til­tekna fyr­ir­tæki. Á sama tíma hefur téður for­stjóri stigið til hliðar á meðan rann­sókn stendur. Ég tel nú að hvort tveggja eigi að þjóna því að tryggja ákveð­inn frið.“

Katrín Jak­obs­dóttirFor­sæt­is­ráð­herra telur að ákvörðun Kristján Þórs muni tryggja frið.

Þor­steinn Már er hins vegar enn með aðkomu að öðrum fyr­ir­tækjum í sjáv­ar­út­vegi. Hann situr meðal ann­ars í stjórn Síld­ar­vinnsl­unnar, sem er tólfta kvóta­mesta útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins. Hann er einnig í fram­kvæmda­stjórn Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga, sem er það fimmt­ánda kvóta­mesta, á helm­ings­hlut í Rif ehf. sem gerir út hrað­fiski­bát, auk þess að sitja í fjölda stjórna ann­arra félaga sem tengj­ast sjáv­ar­út­vegi. Samherji á rúm 6 pró­sent allra afla­heim­ilda.

„Ég hef litið svo á að við munum aldrei kom­ast hjá því að maður þekki mann á Íslandi,“ sagði Katrín. „En við þurfum að vera mjög passa­söm einmitt þess vegna að tryggja gagn­sæi um það hver við erum, hverjir okkar hags­munir eru og svo fram­vegis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár