Umdeild ríkisaðstoð: Arðgreiðslur til félags Ágústu frá Bláa lóninu nema nærri 330 milljónum
FréttirHlutabótaleiðin

Umdeild rík­is­að­stoð: Arð­greiðslur til félags Ágústu frá Bláa lón­inu nema nærri 330 millj­ónum

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son þing­maður var áður 50 pró­sent hlut­hafi í félag­inu utan um eign­ar­haldið á hluta­bréf­unum í Bláa lón­inu. Félagið hefur hagn­ast um tæp­lega 530 millj­ónir króna frá árinu 2012. Bláa lónið var eitt fyrsta fyr­ir­tækið til að til­kynna að það ætl­aði að nýta sér hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu í kjöl­far útbreiðslu COVID.
Heimilisofbeldi eykst í faraldrinum – tvær látnar
FréttirCovid-19

Heim­il­is­of­beldi eykst í far­aldr­inum – tvær látnar

Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum hefur óskað eftir fram­leng­ingu á gæslu­varð­haldi yfir sam­býl­is­manni konu sem fannst látin í heima­húsi í Sand­gerði að kvöldi 28. mars. Fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins, dóms­mála­ráð­herra og rík­is­lög­reglu­stjóri lýsa allar yfir áhyggjum af auknu heim­il­is­of­beldi. Flest bendir til þess að tvær konur hafi verið myrtar í heima­húsum á Íslandi eftir að kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn braust út.
Segja nú að öllum beri að bera andlitsgrímur
FréttirCovid-19

Segja nú að öllum beri að bera and­lits­grímur

Nokkur Evr­ópu­lönd skylda nú fólk til þess að bera and­lits­grímur. Yfirvöld í Banda­ríkj­unum hafa snúið afstöðu sinni og mæl­ast nú einnig til þess. Ólafur S. Andr­és­son, pró­fessor í erfða­fræði við Líf- og umhverf­is­vís­inda­deild Háskóla Íslands, segir að grímur veiti falskt öryggi. Sótt­varna­læknir taldi „vafa­samt“ að láta almenn­ing bera grímur.
Eins og geimfarar á gjörgæslu
FréttirCovid-19

Eins og geim­farar á gjör­gæslu

„Hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir á Covid-stof­unni okkar minna helst á geim­fara á leið til tungls­ins. Vírnetið í örygg­is­rúð­unni tengir mig hins vegar við rimla í fang­elsi, enda taka hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir okkar 3-4 klst. tarnir þarna inni, tvisvar á vakt, án þess að nær­ast eða kom­ast á kló­sett.“ Á þennan hátt lýsir Tómas Guð­bjarts­son hjarta­læknir ástand­inu á þeim hluta gjör­gæslu­deildar Land­spít­ala þar sem COVID-19 sjúk­lingar njóta með­höndl­unar.
Fastar á Kyrrahafseyju: „Lán í óláni“
FerðirCovid-19

Fastar á Kyrra­hafs­eyju: „Lán í óláni“

Þegar vin­kon­urnar Ásdís Embla Ásmunds­dóttir, Unnur Guð­munds­dóttir og Margrét Hlín Harð­ar­dóttir lögðu af stað í heims­reisu í febr­úar óraði þær ekki fyrir því hvaða stefnu ferðin myndi taka. Þær eru nú á Cook-eyjum í Suður-Kyrra­hafi, ætl­uðu að dvelja þar í viku, en hafa nú verið þar í mánuð, því nán­ast engar flug­sam­göngur hafa verið til og frá eyj­unum und­an­farnar þrjár vikur vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Þær hafa ving­ast við heima­fólk sem hefur aðstoðað þær á alla lund og segj­ast vart geta verið á betri stað, fyrst aðstæður eru með þessum hætti.
Fór í frí og kemst ekki heim til sín
FréttirCovid-19

Fór í frí og kemst ekki heim til sín

Guð­mundur Ingi Jónsson alþjóða­við­skipta­fræð­ingur býr í borg­inni Haimen í Jinangsu-hér­aði á aust­ur­strönd Kína. Hann fór þaðan til Fil­ipps­eyja um miðjan jan­úar, í það sem átti að vera stutt frí, en vegna ýmissa ferða­tak­mark­ana vegna COVID-19 far­ald­urs­ins hefur hann ekki kom­ist til síns heima og dvelur nú í Taílandi. Þar í landi tók útgöngu­bann gildi í gær.

Mest lesið undanfarið ár