Tveir í haldi vegna andláts konu í Hafnarfirði

Konan fannst látin í heima­húsi eftir að til­kynnt var um málið og lög­regla hélt á stað­inn. Menn­irnir voru hand­teknir í þágu rann­sókn­ar­innar.

Tveir í haldi vegna andláts konu í Hafnarfirði
Fannst látin í heima­húsi Konan sem fannst látin var um sex­tugt. Mynd: Shutterstock

Kona um sex­tugt fannst látin í heima­húsi í Hafn­ar­firði í nótt. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hand­tók tvo menn á heim­il­inu í þágu rann­sókn­ar­innar. 

Tilkynnt var um málið um hálf­tvöleytið í nótt og hélt lög­regla þegar á vett­vang. Þegar að var komið reynd­ist konan látin. Tveir karlar, annar um þrí­tugt og hinn á sex­tugs­aldri, voru staddir á heim­il­inu þegar lög­regla kom á stað­inn. Þeir voru báðir hand­teknir í þágu rann­sókn­ar­innar. Rannsókn máls­ins er á frum­stigi en hún bein­ist meðal ann­ars að því hvort menn­irnir hafi átt þátt í and­láti kon­unnar. Lög­reglan veitir að svo komnu máli ekki frek­ari upp­lýs­ingar um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár