Leifur í morgunroða
Mynd dagsins

Leifur í morg­un­roða

Leifur í morg­un­roða, en það er gömul þjóð­trú að morg­un­roð­inn væti en kvöldröð­inn bæti, en þurrkur er tal­inn til bóta. En styttan af þessum Dala­manni sem var fæddur um 980, var gefin okkur af Banda­ríkja­mönnum í til­efni Alþing­is­há­tíð­ar­innar fyrir 90 árum. Höfundur stytt­unar er Alex­ander Stirling Calder, sem vann sam­keppni um að end­ur­skapa Leif árið 1929, til að gefa okkur ári síðar.
Aðeins 2 flug
Mynd dagsins

Aðeins 2 flug

Aðeins 2 flug fóru í dag frá Kefla­vík­ur­flug­velli. Icelandair flaug snemma í morgun til Kaup­manna­hafnar, en seinna flugið var undir hádegi til Lundúna, með British Airways. Flug­ferðum til og frá land­inu á eftir að fækka enn meir, því bæði easyJet og British Airways hætta að fljúga hingað nú um mán­aða­mótin. Í síð­asta mán­uði flugu 28.317 um Keflavík, sam­an­borið við 646.415 far­þega í sama mán­uði í fyrra.
Umhverfisfyrirtæki ársins dreifði plastmengaðri moltu í Krýsuvík: „Öllum geta orðið á mistök“
Fréttir

Umhverf­is­fyr­ir­tæki árs­ins dreifði plast­meng­aðri moltu í Krýsuvík: „Öllum geta orðið á mis­tök“

Samtök atvinnu­lífs­ins útnefndu Terra „umhverf­is­fyr­ir­tæki árs­ins“. Terra dreifði mörgum tonnum af plast­meng­aðri moltu í Krýsuvík í sumar. Van­kunn­átta á eigin ferlum var ástæða þess. Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA, segir Terra hafa gefið sér grein­ar­góðar skýr­ingar.
Repúblikanar snúa baki við Trump á ögurstundu
Erlent

Repúblikanar snúa baki við Trump á ögur­stundu

Nokkrir þing­menn Repúblikana­flokks­ins eru byrj­aðir að draga í land með stuðn­ing sinn við Donald Trump nú þegar innan við tvær vikur eru til kosn­inga. Banda­rískir fjöl­miðlar full­yrða að skelf­ing hafi gripið um sig í her­búðum Repúblik­ana sem ótt­ist að fara niður með sökkvandi skipi ef Trump bíður lægri hlut fyrir Joe Biden, líkt og skoð­ana­kann­anir sýna að mestar líkur séu á. „Ég er ekki hræddur, ég er reiður,“ segir Trump sjálfur.
HAM bjargaði Flosa
Menning

HAM bjarg­aði Flosa

Eftir ára­tuga bar­áttu Flosa Þor­geirs­sonar við þyng­lyndi og kvíða urðu alvar­leg kvíða­köst og algjört nið­ur­brot hans mesta blessun. Í dag líður honum vel og hefur fundið leiðir sem virka í hans bar­áttu. Með hug­rænni atferl­is­með­ferð hefur Flosi skapað hlið­ar­sjálf í höfð­inu á sér, skítugan og ill­kvitt­inn Flosa í gervi kvíð­ans. Sá lýtur hins vegar í í lægra haldi fyrir rökum Frökenar Skynsemi, í gervi greinds og sexí bóka­safnsvarðar.
Dómsmálaráðuneytið: Skrifstofustjórinn bað um þriggja daga seinkun á birtingu laganna
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Dóms­mála­ráðu­neytið: Skrif­stofu­stjór­inn bað um þriggja daga seinkun á birt­ingu lag­anna

Dóms­mála­ráðu­neytið segir ekki óvana­legt að starfs­menn ráðu­neyta komi að ákvörð­unum um birt­ingu laga í Stjórn­ar­tíð­indum. Atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu þótti inn­grip Jóhanns Guð­munds­sonar í birt­ingu laga um fisk­eldi í fyrra það gagn­rýni­vert að hann var sendur í leyfi frá störfum.

Mest lesið undanfarið ár