Bílasala
Mynd dagsins

Bílasala

Bílasala til ein­stak­linga hefur auk­ist um 2% á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins. Sextíu pró­sent af þeim 4.400 bif­reiðum sem hafa selst eru svo­kall­aðir nýorku­bílar. Á sama tíma í fyrra voru þeir 25% seldra öku­tækja. Auðvitað kemur þetta niður á olíu­fé­lög­unum en sam­dráttur hjá þeim í sumar var um þriðj­ungur. Að hluta til má auð­vitað rekja það til þess að mun færri erlendir ferða­menn lögðu hér land undir fót.
Skammaði starfsfólk fyrir grímuskyldu: „Þá verður að kalla til lögreglu“
FréttirCovid-19

Skammaði starfs­fólk fyrir grímu­skyldu: „Þá verður að kalla til lög­reglu“

„Þetta er svo mikið kjaftæði,“ sagði Víðir Reyn­is­son við því að fólk þrá­ist við að nota grímur. Sama dag birti maður mynd­band af sér í Bónus þar sem hann sýndi dóna­skap vegna grímu­skyldu. Guð­mundur Mart­eins­son, fram­kvæmda­stjóri Bónus, segir að ef fólk taki ekki rökum verði að kalla til lög­reglu. Allt að 100 þús­und króna sekt getur varðað við brotum gegn notkun á and­lits­grímum.
Ein af 4.481
Mynd dagsins

Ein af 4.481

Alba er ein af þeim 4.481 Íslend­ingum, fæddum 2014, sem hófu skóla­göngu nú í haust. Hún lærir ekki bara staf­rófið heldur líka að reikna hvað 2 metrar eru langir. Það reikn­ings­dæmi er ansi flókið – mjög margir full­orðnir falla á því prófi dag­lega. Grímunotkun og hand­þvottur eru spenn­andi fög sem koma ný inn á þessu skóla­ári og á meðan eru íþróttir felldar út úr námskrá, þó tíma­bundið.
Dómurinn í máli Þorsteins Más getur haft  fordæmisgildi í 18 sambærilegum málum
FréttirSamherjamálið

Dómurinn í máli Þor­steins Más getur haft for­dæm­is­gildi í 18 sam­bæri­legum málum

Seðla­banki Íslands aft­ur­kall­aði alls 19 ákvarð­anir um sektir vegna brota á gjald­eyr­is­hafta­lög­unum. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur nú gert Seðla­banka Íslands að greiða Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Samherja, bætur vegna kostn­aðar hans við að sækja rétt sinn gagn­vart bank­anum. Dómurinn getur verið for­dæm­is­gef­andi fyrir aðra sem greiddu sektir.
Terra dreifir enn plastmengaðri moltu í Krýsuvík - Gler og skrúfur í efninu
Fréttir

Terra dreifir enn plast­meng­aðri moltu í Krýsuvík - Gler og skrúfur í efn­inu

Nýjir farmar af moltu sem Terra hefur flutt í Krýsuvík reynd­ust meng­aðir af plasti. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra segir það ekki við­un­andi. Hann segir jafn­framt að koma þurfi á eft­ir­liti með moltu­gerð. Stjórn­ar­maður í Land­vernd segir ekk­ert eðli­legt við það að setja efni sem inni­heldur plast, gler og skrúfur út á víða­vang.
Ráðuneytið svarar ekki af hverju skrifstofustjóri var sendur í leyfi eftir afskipti af birtingu laga
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Ráðu­neytið svarar ekki af hverju skrif­stofu­stjóri var sendur í leyfi eftir afskipti af birt­ingu laga

Atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið er ekki með svar við því af hverju Jóhann Guð­munds­son var sendur í „ótíma­bundið leyfi“. Ráðu­neytið veit ekki af hverju Jóhann lét seinka birt­ingu laga í Stjórn­ar­tíð­indum og veit því ekki hvort ráðu­neytið var mögu­lega mis­notað af ein­hverjum aðilum.

Mest lesið undanfarið ár