6 plús sex + mínus 1
Mynd dagsins

6 plús sex + mínus 1

Lax­ár­dæl­ing­ur­inn, Félags- og barna­mála­ráð­herra, Ásmundur Einar Daðason er að leggja fram á Alþingi rík­is­stjórn­ar­frum­varp um fæð­ingar- og for­eldra­or­lof. Nýju lögin taka við lögum sem sett voru fyrir tutt­ugu árum, og þóttu þá fram­sækin. Helstu breyt­ingar sem lagðar eru til í frum­varp­inu er leng­ing fæð­ing­ar­or­lofs í 12 mán­uði vegna barna sem fæð­ast, eru ætt­leidd eða tekin í var­an­legt fóstur frá 1. jan­úar 2021. Reikn­aður kostn­aður rík­is­ins vegna fæð­ing­ar­or­lofs­ins næsta ár eru rúmir 19 millj­arðar. Og þetta segir ráð­herra um frum­varpið: „Með þessu frum­varpi erum við að auka enn á rétt­indi for­eldra til sam­vista með börn­unum sínum á fyrstu mán­uð­unum ævi þeirra.“
Kristján telur óþarft að komast að því af hverju starfsmaður ráðuneytis hans lét fresta birtingu laga
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Kristján telur óþarft að kom­ast að því af hverju starfs­maður ráðu­neytis hans lét fresta birt­ingu laga

Kristján Þór Júl­í­us­son, atvinnu­vega-og nýsköp­un­ar­ráð­herra, er ósam­mála því mati stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar að kom­ast þurfi að því hvað Jóhanni Guð­munds­syni gekk til. Ráð­herr­ann telur að máli Jóhanns sé lokið jafn­vel þó það hafi ekki verið upp­lýst.
Auðlindafyrirtæki á markað í Noregi: Aflandsfélag á Kýpur á nær helming hlutabréfanna
FréttirLaxeldi

Auð­linda­fyr­ir­tæki á markað í Noregi: Aflands­fé­lag á Kýpur á nær helm­ing hluta­bréf­anna

Íslensk lax­eld­is­fyr­ir­tæki fara á hluta­bréfa­markað í Noregi eitt af öðru. Norsk lax­eld­is­fyr­ir­tæki eiga stærstu hlut­ina í íslensku félög­unum. Hagn­að­ur­inn af skrán­ingu félag­anna rennur til norsku. Engin sam­bæri­leg lög gilda um eign­ar­hlut erlendra aðila á íslensku lax­eld­isauð­lind­inni og á fisk­veiði­auð­lind­inni.
Hvít blá fjöll
Mynd dagsins

Hvít blá fjöll

Það var fal­legt í Blá­fjöllum í morgun (him­in­inn er ekki photosjopp­aður - var svona). Ekki er vitað hvenær skíða­svæðið getur opnað, ekki vegna snjó­leysis heldur vegna veirunnar sem herjar á heims­byggð­ina. Í fyrra var opið í Blá­fjöllum í 57 daga og mættu sam­tals rúm­lega 80.000 á svæðið. Þegar mest gekk á mættu 6.000 manns á einum degi, þá auð­vitað bæði í lyft­urnar og á göngu­skíða­svæðið sem hefur aldrei verið vin­sælla en síð­ast­lið­inn vetur. Enda til fyr­ir­myndar á allan hátt.
Svandís segir stjórnendur Landspítala bera ábyrgðina á Landakoti
FréttirHvað gerðist á Landakoti?

Svandís segir stjórn­endur Land­spít­ala bera ábyrgð­ina á Landa­koti

Það er ekki á ábyrgð heil­brigð­is­ráð­herra að stýra mönnun innan heil­brigð­is­kerf­is­ins né heldur ber ráð­herra ábyrgð á starfs­um­hverfi starfs­fólks spít­al­ans, segir í svari Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. Ábyrgðin sé stjórn­enda Land­spít­al­ans.
Leitið og þér munuð finna
Mynd dagsins

Leitið og þér munuð finna

Lög­reglu­mað­ur­inn Guð­mundur Fylk­is­son hefur und­an­farin sex ár gegnt því erf­iða starfi að finna börn og ung­menni sem týn­ast. Það eru um 250 mál á ári sem koma inn á borð til hans og flest leys­ast þau far­sæl­lega. Á föstu­dag­inn fékk hann úr hendi Forseta Íslands við­ur­kenn­ingu Barna­heilla - Save the Children, fyrir störf sín í þágu barna og ung­menna í vanda. „Þetta er dag­vinna, frá átta á morgn­anna til sjö fimm­tíuo­gníu dag­inn eftir. Maður þarf oft að hafa skjótar hendur, og sím­ann minn þekkja þau flest - hann er alltaf opinn. Fyrir þau sem ekki vita er núm­erið: 843 1528," sagði Guð­mundur og rauk af stað.
Drottningarbragð
Mynd dagsins

Drottn­ing­ar­bragð

Þriðja bylgja skák­æðis hefur skollið á Íslandi, eftir að hálf þjóðin hefur sest niður og horft á Netflix ser­í­una The Queen's Gambit, eða Drottn­ing­ar­bragð. Fyrsta bylgjan varð árið 1958, þegar Friðrik Ólafsson náði fimmta til sjötta sæti á HM í skák í Portorož, gömlu Júgóslavíu, og varð með þeim árangri fyrstur Íslend­inga að verða stór­meist­ari í skák. Áhugi lands­manna á skák­íþrótt­inni náði svo nýjum hæðum í ann­ari bylgju, árið 1972, þegar heims­meistar­ein­vígið í skák fór fram í Laug­ar­dals­höll­inni milli Boris Spassky og Bobby Fischer. Bobby vann að lokum, eftir 21 skák. Seinna fékk hann íslenskan rík­is­borg­ara­rétt og var jarð­settur í Laug­ar­dals­kirkju­garði austur í Flóa. Fyrir þá sem ekki vita, er drottn­ing­ar­bragð; 1. d4 d5 2. c4 og svartur á leik!

Mest lesið undanfarið ár